Erlent

Varar við lækkun dollarans

Robert Rubin, fyrrverandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, varar við því að gengi Bandaríkjadals kunni að lækka verulega og vextir hækka til muna ef Bandaríkjastjórn bregðist ekki skjótt við og dragi úr skuldum ríkisins. Hann telur að verði ekki tekið á vandanum kunni það að hafa alvarlegar afleiðingar. Bandaríkjadalur náði sögulegu lágmarki gagnvart evrunni í gær. Rubin gagnrýnir ríkisstjórn George Bush forseta fyrir að láta dalinn veikjast gegn öðrum erlendum gjaldmiðlum í því augnamiði að lækka verð bandarískra afurða á erlendum mörkuðum og greiða þannig fyrir útflutningi, líkt og oft hefur verið gert hér á landi í tímans rás.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×