FIFA ber traust til KSÍ 18. ágúst 2004 00:01
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, segir það vera mál lögreglu og slökkviliðs í Reykjavík hversu mörgum áhorfendum verður hleypt inn á leik Íslands og Ítalíu á Laugardalsvelli í kvöld. Sambandið beri fullt traust til KSÍ í málinu. Leikur Íslands og Ítalíu hefst klukkan 19:15. Nú þegar er búið að selja á sextánda þúsund miða og að sögn Geirs Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Knattspyrnusambands Íslands, stefnir í að aðsóknarmetið á knattspyrnuleik hér á landi verði slegið en það var sett þegar Valur og portúgalska liðið Benfica áttust við á vellinum árið 1968. Þá voru hátt í 18 þúsund manns á vellinum og setið og staðið alls staðar þar sem hægt var að koma sér fyrir. Mjög strangar öryggisreglur gilda hjá Knattspyrnusambandi Evrópu og FIFA um fjölda áhorfenda og þá almennt einungis leyft að miðar verði seldir í sæti, en ekki stæði, og undanþágur almennt ekki veittar. Laugardalsvöllur rúmar um sjö þúsund manns í sæti og þar sem um vináttulandsleik er að ræða heyrir málið undir FIFA. Talsmaður Alþjóðaknattspyrnusambandsins sagði fréttastofunni að engar reglur FIFA banni að bæði sé selt í sæti og stæði á vináttuleikjum. Það sé ákvörðun lögreglu og slökkviliðs á viðkomandi stað að taka ákvörðun um slíkt í samvinnu við viðkomandi knattspyrnusamband og að tekið sé tilliti til allra helstu öryggisþátta. Samkvæmt talsmanninum ber FIFA fyllsta traust til KSÍ í þessu máli og þeirra ákvarðana sem teknar verða. Lögreglan í Reykjavík vill minna fólk á að öll meðferð áfengis verður bönnuð á vallarsvæðinu og bendir á að vegna fyrirsjáanlegs fjölda áhorfenda megi búast við töfum í umferð við Laugardal. Lögreglan hvetur knattspyrnuáhugamenn að samnýta bíla og almenningssamgöngur. Forsölu aðgöngumiða átti að ljúka í gærkvöldi en ákveðið hefur verið að framlengja forsölu til klukkan 14. Miðar eru seldir á Laugardalsvelli og á Essó-stöðvunum í Borgartúni, Geirsgötu, Ártúnshöfða og Lækjargötu í Hafnarfirði. Miðinn í forsölu kostar þúsund krónur, annars 1200, en helmingsafsláttur er fyrir yngri en 16 ára. Eins og fyrr segir var núverandi met sett árið 1968 en þá lék portúgalski snillingurinn Eusebio með Benfica. Hann var þá einn allra besti knattspyrnumaður í heimi og átti áreiðanlega sinn þátt í góðri aðsókn. Eusebio verður einmitt heiðursgestur á leiknum í kvöld.
Íslenski boltinn Innlent Mest lesið Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Íslenski boltinn Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Golf Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM Fótbolti „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Fótbolti „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Sport Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum Fótbolti Fleiri fréttir Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Stolt að fá að spila á móti frænku sinni Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Liðsfélagi Fanneyjar og Thelmu verður sú dýrasta í sögunni Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“ Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Varnarjaxl og varamaður tryggðu sínum þjóðum nauma sigra í nótt Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM Dagskráin í dag: Sigdís þarf sigur „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Sjá meira