Heppnir að ná jafntefli 10. október 2004 00:01
Fjölmiðlar á Möltu segja að Íslendingar geti þakkað markverðinum Árna Gauti Arasyni að hafa náð jafntefli í landsleiknum í gær þegar Íslendingar og Möltumenn gerðu markalaust jafntefli. Þetta var besti leikur Möltumanna í tvö ár segja fjölmiðlar þar í landi og telja að Malta hafi átt sigurinn skilið. Kristján Örn Sigurðsson varnarmaður meiddist í leiknum og litlar líkur eru á því að hann verði með á miðvikudag þegar Íslendingar mæta Svíum. Það er óhætt að taka undir með fjölmiðlum á Möltu. Íslendingar voru stálheppnir að sleppa með stig úr leiknum. Árni Gautur Arason, sem hefur verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í undanförnum leikjum, var langbesti maður íslenska liðsins. Þjálfararnir og formaður Knattspyrnusambandsins sögðu fyrir leikinn að ekkert annað en sigur á Möltu kæmi til greina. Íslenska landsliðið er núna í 88. sæti á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins og hefur fallið um 30 sæti frá áramótum. Miðað við yfirlýsingar þjálfara og formanns KSÍ fyrir leikinn gegn Möltu vaknar sú spurning hvort leikur Íslendinga og Svía á miðvikudag verður sá síðasti undir stjórn þeirra Ásgeirs Sigurvinssonar og Loga Ólafssonar. Ljóst er að engin breyting verður á þjálfaramálum fyrr en eftir þann leik. Tapi Íslendingar fyrir Svíum á miðvikudag verður eitt stig uppskeran úr fjórum leikjum sem varla getur talist ásættanlegt. Eftir Svíaleikinn kemur hlé þar til í mars þegar Íslendingar mæta Króötum ytra. Miðvikudagurinn gæti verið örlagavaldur í fótboltanum fyrir þá Ásgeir og Loga. Ekkert annað en sigur á Svíum, sem eru í 22. sæti á styrkleikalistanum, heldur þeim Ásgeiri og Loga í starfi. Miðað við svör þeirra fyrir Möltuleikinn gætu þeir ákveðið að segja af sér eftir leikinn gegn Svíum verði úrslitin óhagstæð. Óvíst er að jafntefli dugi. Kröfuharðir knattspyrnuáhugamenn sætta sig ekki við enn einn ósigurinn. Leikmennirnir sem spila gegn Svíum gætu því haft örlög þjálfaranna í hendi sér. Landsliðsmennirnir þurfa auðvitað að axla einhverja ábyrgð sjálfir - frammistaðan í undanförnum leikjum er engan veginn ásættanleg. MYND/Domenic AquilinaMYND/Domenic AquilinaMYND/Domenic AquilinaMYND/Domenic AquilinaMYND/Domenic AquilinaMYND/Domenic AquilinaMYND/Domenic Aquilina
Innlent Íþróttir Mest lesið Uppgjörið: Frakkland - Ísland 2-1 | Grátlegt tap í París eftir hetjulega baráttu Fótbolti Þurfti þrjú spor eftir árekstur við rútu landsliðsins Fótbolti Pirraður Heimir: „Er þetta spurning?“ Fótbolti „Þú veist að það er bara einn Siggi Hall“ Íslenski boltinn Onana stóð sem steinn og ýtti áhorfanda Fótbolti Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Enski boltinn Man. Utd er ekki eins lélegt og flestir halda Enski boltinn Einn þekktasti handknattleiksdómari heims látinn Sport Bólivía vann Brasilíu og fer í umspil álfanna Fótbolti Segir Eið Smára ekki fá það hrós sem hann á skilið Sport Fleiri fréttir Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Ofurtölvan telur Liverpool líklegast til að vinna Meistaradeildina Ómar Ingi fór áfram hamförum Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Óðinn markahæstur á vellinum Rétthentu landsliðshornamennirnir í stuði Álftanes mætir stórliði Benfica „Gagnrýnið mig en ekki liðið“ Finnar afgreiddu Georgíu með stæl „Þurftum að spila á móti dómurum, lögreglu og boltastrákum líka“ Einn þekktasti handknattleiksdómari heims látinn Gamla merkið verður áfram á landsliðsbúningunum Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Stærsta lið Úkraínu samdi við aðdáanda Pútin Man. Utd er ekki eins lélegt og flestir halda „Þú veist að það er bara einn Siggi Hall“ Tiger byrjaður að æfa á nýjan leik Veðreiðafólk fer í verkfall og mótmælir við breska þingið Onana stóð sem steinn og ýtti áhorfanda „Vissi ekki að ég væri sá fyrsti“ Köstuðu kúk og hentu handsprengjum: „Allt sem suður-amerískur fótbolti á að standa fyrir“ Hitabylgja hjá íslensku keppendunum í Tókýó Bólivía vann Brasilíu og fer í umspil álfanna Myndasyrpa: Borg ástarinnar stóð ekki undir nafni Dagskráin í dag: Hafnabolti Breiðablik hafnaði tilboði í Ágúst Orra Pirraður Heimir: „Er þetta spurning?“ Sjá meira