Lífið

Ragga Bjarna dagar á Stjörnunni

Í tilefni af sjötugsafmæli Ragnars Bjarnasonar 22. september næstkomandi mun útvarpsstöðin Stjarnan FM 94,3 heiðra stórsöngvarann. Dagana 20.-26. september verður dagskrá stöðvarinnar helguð afmælisbarninu. Ótrúlegur ferill Ragga Bjarna hófst árið 1954 og er hann enn að. Lögin hans, sem þjóðin þekkir og kann, verða leikin í bland við viðtöl við Ragga sjálfan en einnig munu fjölmargir samferðamanna hans segja frá kynnum sínum af honum. Dagskrárstjóri Stjörnunnar FM 94,3, Sigurður Pétur Harðarson, mun leggja línurnar og hlustendum gefst kostur á að senda Ragga kveðjur og votta honum vinsemd með ýmsum hætti. Ragga Bjarna dagarnir verða líflegir og af nógu er að taka þar sem söngvarinn hefur staðið á sviði í hálfa öld. Enginn hefur verið lengur í dægurtónlistinni hér á Íslandi en Ragnar Bjarnason. Enginn getur betur!





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.