FH-ingar feti frá titlinum 31. ágúst 2004 00:01
FH-ingar stigu í gærkvöldi stórt skref í átt að fyrsta Íslandsmeistaratitli félagsins í knattspyrnu í meistaraflokki karla með því að leggja Grindvíkinga að velli, 0-4, á útivelli. Fimleikafélag Hafnarfjarðar hefur nú 3ja stiga forskot á Eyjamenn þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af Landsbankadeildinni og það er ekki margt sem bendir til þess að FH-ingar komi til með að misstíga sig. Liðið er að leika hreint út sagt frábæra knattspyrnu og sjálfstraustið skín af því og allir sem að liðinu koma trúa því að árangur náist. Á löngum köflum í gærkvöldi yfirspiluðu FH-ingar andstæðinga sína og boltinn gekk hratt og örugglega á milli manna og þeir áttu í engum vandræðum með að opna svæði upp á gátt. Það var síðan ekki til að bæta úr skák fyrir heimamenn að Grétar Ólafur Hjartarson fór meiddur af velli sex mínútum eftir annað mark FH-inga. Sinisa Kekic var ekki með Grindvíkingum að þessu sinni og því var í raun engin spurning um hvort liðið myndi ná sigri eftir annað mark gestanna - frekar það hversu mörg mörk FH-ingar myndu skora. Lið FH er eins og vel smurð vél sem gengur hnökralaust. Eftir hinn glæsilega sigur í Skotlandi í síðustu viku var alveg ljóst að þetta lið er tilbúið - tilbúið í titla - tilbúið í hvað sem er. Breidd þess er án efa sú mesta á landinu en það er á engan hallað þótt sérstaklega sé minnst á þátt Heimis Guðjónssonar, fyrirliða. Heimir var að vonum kátur eftir leik en þó jarðbundinn: "Við lékum mjög vel í þessum leik og liðsheildin var eins og best verður á kosið. Við vorum afar einbeittir alveg frá byrjun og menn voru meira en staðráðnir að ná sigri hér og gerðum það með stæl - spiluðum góðan fótbolta og unnum þetta sannfærandi. Stór partur af góðum árangri okkar er sá að menn eru að hafa virkilega gaman af þessu og það smitar út frá sér. Þá segi ég það enn og aftur að það er ekkert nema gott að spila svona marga leiki eins og við erum búnir að gera í sumar. Fleiri leikir þurfa ekkert endilega að þýða meira álag, það er miklu betra að spila meira og æfa minna og miklu skemmtilegra," sagði Heimir Guðjónsson. Óli Stefán Flóventsson, hinn fjölhæfi leikmaður Grindvíkinga, var að vonum svekktur með frammistöðu síns liðs eftir leik: "FH-ingar voru einfaldlega mun betri en við í þessum leik og óhætt að segja að þeir hafi sýnt sannkallaða meistaratakta - ef þeir halda svona áfram er engin spurning hvert titlarnir í ár fara. Við verðum hins vegar að gjöra svo vel að hysja upp um okkur buxurnar og halda áfram ótrauðir. Við höfum staðið í svona fallbaráttu áður - vitum alveg um hvað þetta snýst - og höfum fulla trú á því að við getum rétt úr kútnum í þeim tveimur leikjum sem eftir eru," sagði Óli Stefán.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi Fótbolti Hraunaði yfir slúðurblað vegna myndar af sér með ekkju Jota Fótbolti Um hnífsárásina sem breytti lífi hans: „Hluti af mér er horfinn“ Enski boltinn Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Handbolti Er hluti af leikmannahópnum þrátt fyrir að vera í fangelsi Enski boltinn „Setti oft fótboltann fram yfir mína andlegu heilsu“ Íslenski boltinn Dagný ólétt að sínu þriðja barni Fótbolti Engin stig dregin af Chelsea Enski boltinn Brosandi Emelía sneri aftur eftir 406 daga bið Fótbolti Sjáðu mörkin: ÍA rúllaði yfir Íslandsmeistarana Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slot í skýjunum eftir ákvörðun þjálfara Svía Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Sjáðu mörkin: ÍA rúllaði yfir Íslandsmeistarana „Setti oft fótboltann fram yfir mína andlegu heilsu“ Brosandi Emelía sneri aftur eftir 406 daga bið Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi Hraunaði yfir slúðurblað vegna myndar af sér með ekkju Jota Er hluti af leikmannahópnum þrátt fyrir að vera í fangelsi Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, Íslendingaslagur, enski og margt fleira Um hnífsárásina sem breytti lífi hans: „Hluti af mér er horfinn“ Engin stig dregin af Chelsea Dagný ólétt að sínu þriðja barni Tyrkneska félagið staðfestir komu Onana Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad „Ljúft að klára leikinn svona“ „Þá gætum við lagst niður og gefist upp“ Dilja Ýr lagði Man United og Sædís Rún lagði upp Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Ólafur Ingi öruggur í starfi Martial á leið til Mexíkó Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 3-0 | Áfram með hreðjatak á Blikum Þjálfara kvennaliðs Sheffield United vikið tímabundið frá störfum Fékk tveggja vikna bann og sekt fyrir að hrinda starfsmanni lyfjaeftirlits Dagleg mótmæli trufla Spánarhjólreiðarnar Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Innbrot í Kaplakrika: „Tóku peningahirsluna og brutu hana upp“ Vaknaði útataður í eigin ælu eftir að hafa komist í Ryder-lið Evrópu Sjá meira