Magnús Lárusson sigraði 2. ágúst 2004 00:01
Hið árlega Shoot-out góðgerðamót Nesklúbbsins fór fram í áttunda sinn í gær á Nesvellinum á Seltjarnarnesi. Tíu af bestu kylfingum öttu kappi saman með Shoot-out fyrirkomulagi þar sem kylfingurinn með versta skorið á hverri holu fellur út þar til einn stendur eftir. Tvær konur mættu til leiks, þær Ragnhildur Sigurðardóttir, sem vann þetta mót í fyrra, og Íslandsmeistarinn Ólöf María Jónsdóttir. Átta karlar voru meðal keppenda, Íslandsmeistararinn Birgir Leifur Hafþórsson, Björgvin Sigurbergssson, Heiðar Davíð Bragason, Magnús Lárusson, Sigurpáll Geir Sveinsson, Ólafur B. Loftsson, Örn Ævar Hjartarson og Stefán Már Stefánsson en styrktaraðili mótsins DHL-hraðflutningar gáfu 250 þúsund krónur sem runnu að þessu sinni til "Einstakra barna" sem er félag barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma. Magnús Lárusson, kylfingur úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ, sem tók þátt í mótinu í fyrsta sinn fór með sigur af hólmi eftir að hafa lagt Örn Ævar Hjartarson úr Golfklúbbi Suðurnesja á lokaholunni. Magnús byrjaði illa og þurfti þrívegis að fara í svokallað Shoot-out á fyrstu holunum þar sem þeir sem eru með versta árangurinn á holunni keppa sín á milli hver dettur út. Hann komst hins vegar í gegnum þær raunir og spilaði lokaholurnar mjög vel. Hann fékk fugl á sjöundu og áttundu holu og hefði væntanlega fengið fugl á lokaholunni ef Örn Ævar hefði ekki gefið honum auðvelt pútt og sigurinn. Magnús var glaðbeittur þegar Fréttablaðið ræddi við hann að móti loknu og sagði þetta mót vera hörkuskemmtilegt. "Þetta er skemmtilegt fyrirkomulag, ekkert stress og virkilega gaman að spila. Ég byrjaði afar illa en náði mér síðan á strik og get ekki verið annað en sáttur með sigurinn í fyrstu tilraun," sagði Magnús.
Íþróttir Mest lesið Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Fótbolti Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Sport „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Fótbolti Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Segja Breka á leiðinni til Benfica Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Okeke farinn frá Álftanesi Børge Lund tekur við stórliði Kiel Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Stolt að fá að spila á móti frænku sinni Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Liðsfélagi Fanneyjar og Thelmu verður sú dýrasta í sögunni Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“ Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Sjá meira