Íslendingaslagur á Akranesi 30. júlí 2004 00:01 "
Það er bara mikil tilhlökkun á mínum bæ og virkilega gaman að snúa heim og keppa við Skagamenn. Lið undir stjórn Ólafs Þórðarsonar hafa löngum verið þekkt fyrir mikla baráttu og þannig býst ég við að þetta verði hörkuleikur," sagði Pétur Marteinsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Hammarby í Svíþjóð, í samtali við Fréttablaðið í gær. Hammarby dróst gegn liði ÍA í annarri umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða, en Skagamenn slógu sem kunnugt er eistneska liðið TVMK Tallin út úr keppni fyrr í vikunni. FH drógust gegn skoska liðinu Dunfermline en það lið hafnaði í 4. sæti skosku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og komst nýlega í heimsfréttirnar þegar Diego Armando Maradona yngri var við það að ganga til liðsins. Þó að andstæðingarnir séu á pappírunum töluvert sterkari en íslensku liðin verður drátturinn að teljast nokkuð góður, og þá sérstaklega fyrir ÍA, sem slapp til að mynda við að mæta firnasterku liði Bröndby frá Danmörku. Ferðalögin eru eins ódýr og kostur er og möguleikinn á að sigra er svo sannarlega fyrir hendi, en helsti lösturinn er að bæði ÍA og FH leika síðari leikinn á útivelli. "Ég er bara nokkuð sáttur við að mæta Dunfermline en við fyrstu sýn þá eiga þeir að vera með talsvert sterkara lið en við. En við förum í einvígið til að vinna og ætlum að reyna að hafa gaman af," segir Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH. Lið hans átti í litlum vandræðum með að leggja hið skelfilega velska lið Herefordwest. En sér Ólafur þó ágætis kost í því að hafa þegar mætt liði frá Bretlandseyjum í keppninni? "Dunfermline spilar ábyggilega svipaðan bolta nema hvað þeir eru miklu betra fótboltalið. Ég veit lítið sem ekkert um liðið en við munum ábyggilega senda mann út til að sjá þá spila áður en við mætum þeim," segir Ólafur. Um möguleika liðs síns gegn Skagamönnum segir Pétur að þeir séu sýnd veiði en ekki gefin. "En ef við spilum samkvæmt eðlilegri getu þá tel ég að við vinnum þetta einvígi. Við eigum að vera með betra lið en það getur samt ávallt brugðið til beggja vona í Evrópukeppni," segir hann og bætir við að leikmenn ÍA geti ekki búist við neinni greiðastarfsemi af sinni hálfu. "Rétt eins og liðið í heild sinni fer ég í alla leiki til að vinna. Ég er auðvitað liðsmaður Hammarby og engu skiptir að ég kem frá Íslandi. Þetta er mín vinna og ég mun bara spila minn venjulega leik og láta finna fyrir mér," segir Pétur, sem hefur verið fastamaður í vörn Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í sumar og gengið vel. "Mér líður mjög vel hérna, klúbburinn er töluvert sterkari en þegar ég var hér síðast og það er mun fagmannlegra að öllum málum staðið. Metnaðurinn er mikill að komast lengra í Evrópukeppninni og ég er bjartsýnn á að það takist."
Íslenski boltinn Mest lesið Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Íslenski boltinn „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Íslenski boltinn Zubimendi með tvö í frábærum sigri Enski boltinn Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Fótbolti Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Fótbolti Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Fótbolti Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Handbolti Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Sport Dagskráin í dag: Enska úrvalsdeildin aftur af stað eftir hlé Sport Fleiri fréttir Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Mark Sveindísar duggði skammt Í beinni: Brentford - Chelsea | Bláliðar hafa byrjað vel Endurkomusigur í ótrúlegum sjö marka leik Sævar hetjan í endurkomusigri Brann Arnór tryggði Norrköping stig í Íslendingaslag „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Grótta og Ægir upp í Lengjudeildina Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Heimsmethafinn hélt út Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad Zubimendi með tvö í frábærum sigri Fagnar eins og Gyökeres og bjó til skýringu Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Dagskráin í dag: Enska úrvalsdeildin aftur af stað eftir hlé Brynjólfur leikmaður mánaðarins í Hollandi Sjá meira