Tyson snýr aftur í hringinn 29. júlí 2004 00:01
Mike Tyson, fyrrum heimsmeistari í þungavikt, snýr aftur í hringinn eftir 17 mánaða hlé og mætir hinum breska Danny Williams, í kvöld í Kentucky. Flestir líta á Williams sem fallbyssufóður en hann segist þó fullviss um að geta strítt Tyson og mæti hvergi banginn til leiks. Bardaginn verður sýndur beint á Sýn og ekki að efa að margir horfi á enda Tyson án efa langvinsælasti og langumdeildasti boxari heims. Ferillinn hjá Tyson er með þeim skrautlegri en hann varð yngsti þungaviktarheimsmeistari sögunnar árið 1985, aðeins 19 ára. Síðan þá hafa skipst á skin og skúrir en þó hafa skúrirnir verið öllu fleiri. Hann hefur þurft að dvelja í fangelsi vegna nauðgunar og margoft verið dæmdur í keppnisbann, til að mynda þegar hann beit vænan bita úr eyra Evanders Holyfields í frægum bardaga. Alltaf hefur hann þó náð að koma aftur og til að mynda endurheimti hann heimsmeistaratitilinn árið 1996 þegar hann pakkaði Bretanum Frank Bruno saman. Seinna sama ár missti hann síðan titilinn til Evanders Holyfields og þeir kappar mættust aftur árið eftir og þá var einmitt boðið upp á eyrnasmjattið. Eftir þessa tvo sögufrægu bardaga við Holyfield hefur Tyson ekki náð því að keppa aftur um sjálfan titilinn en þess í stað hefur hann barið fjölda minnipokamanna í spað. Það sem helst hefur hrjáð Tyson er andleg heilsa hans en þó nokkuð langt er síðan hann viðurkenndi að bryðja þunglyndislyfið Zoloft eins og brjóstsykur. Þá hafa afætur ýmiskonar herjað á Tyson og haft af honum nánast allan hans auð og nú er svo komið að hann er nánast gjaldþrota og býr í lítilli íbúð. Hvort Tyson eigi nóg eftir til að komast í tæri við titilinn að nýju er stór spurning. Ef þessi höggþyngsti boxari sögunnar er með líkamann og sálina í lagi er engin spurning að það er mögulegt; þetta tvennt hefur bara svo óskaplega sjaldan farið saman á síðastliðnum árum. Sjáum hvað setur.
Íþróttir Mest lesið Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Íslenski boltinn „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Íslenski boltinn Zubimendi með tvö í frábærum sigri Enski boltinn Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Fótbolti Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Fótbolti Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Enski boltinn Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Handbolti Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Sport Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad Fótbolti Fleiri fréttir „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Mark Sveindísar duggði skammt Carvalho rændi stigi af Chelsea Endurkomusigur í ótrúlegum sjö marka leik Sævar hetjan í endurkomusigri Brann Arnór tryggði Norrköping stig í Íslendingaslag „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Grótta og Ægir upp í Lengjudeildina Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Heimsmethafinn hélt út Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad Zubimendi með tvö í frábærum sigri Fagnar eins og Gyökeres og bjó til skýringu Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Sjá meira