FH mætir Haverfordwest 28. júlí 2004 00:01
FH-ingar taka á móti velska liðinu Haverfordwest í Kaplakrika í kvöld klukkan 19.15, í forkeppni UEFA-keppninnar. Fyrri leikurinn ytra, endaði 0-1, og staða hafnfirsku hetjanna því góð. FH-ingar hafa verið á mikilli siglingu í Landsbankadeildinni að undanförnu og eru nú í toppsætinu, fjórum stigum á undan Fylkismönnum. Fréttablaðið náði tali af Heimi Guðjónssyni, fyrirliða FH: "Við eigum ágæta möguleika á að komast áfram í næstu umferð og þetta er undir okkur sjálfum komið. Þeir verða væntanlega öllu sterkari en í fyrri leiknum því að tímabilið er ekki hafið hjá þeim en nú hafa þeir haft tvær vikur til að koma sér í betra form. Þetta lið er mikið baráttulið þannig að við verðum að vera á tánum. Þeir láta finna vel fyrir sér en eru þó ekki grófir. Þeir spila týpískan enskan bolta, kýla fram og eru góðir loftinu. Við höldum auðvitað áfram að gera það sem við höfum verið að gera enda sé ég enga ástæðu til að breyta því." Saga FH er ekki mörkuð af sigrum í UEFA-keppninni en félagið hefur þrisvar tekið þátt, 1990, 1994 og 1995, án þess að komast áfram úr fyrstu umferð. Ætlunin er að breyta því: "Við erum staðráðnir í því að komast áfram því Evrópukeppnin er bónus fyrir félögin og mjög jákvætt fyrir leikmenn að fá að takast á við aðra andstæðinga en þá hérna heima. Takist það munum við lenda á móti félögum frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð eða Skotlandi og verður það að teljast jákvætt, bæði frá knattspyrnulegu sjónarmiði og fjárhagslegu," segir Heimir. Í Kaplakrika er spilaður skemmtilegur og árangursríkur fótbolti og þar er heimili líflegustu stuðningsmannanna. Er eitthvað mál fyrir Heimi að halda sínum mönnum á jörðinni? "Nei, það er það ekki. Mótið er bara rétt rúmlega hálfnað og við eigum enn eftir að komast áfram í Evrópukeppninni og engin hætta á að við förum að ofmetnast eitthvað," sagði Heimir Guðjónsson, að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Íslenski boltinn „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Íslenski boltinn Zubimendi með tvö í frábærum sigri Enski boltinn Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Fótbolti Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Fótbolti Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Enski boltinn Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Handbolti Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Sport Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad Fótbolti Fleiri fréttir „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Mark Sveindísar duggði skammt Carvalho rændi stigi af Chelsea Endurkomusigur í ótrúlegum sjö marka leik Sævar hetjan í endurkomusigri Brann Arnór tryggði Norrköping stig í Íslendingaslag „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Grótta og Ægir upp í Lengjudeildina Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Heimsmethafinn hélt út Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad Zubimendi með tvö í frábærum sigri Fagnar eins og Gyökeres og bjó til skýringu Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Sjá meira