Sport

Sven Göran í bobba

Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, hefur átta daga til þess að bera af sér sögur þess efnis að hann hafi haldið við einn af riturum sínum. Takist honum ekki að sannfæra forkólfa enska knattspyrnusambandsins innan þess tíma er líklegt að hann þurfi að taka poka sinn og fái jafnvel engar skaðabætur. Knattspyrnusambandið enska hefur sett sig í samband við lögfræðinga til að kanna möguleikann á því hvort reka megi Sven Göran án þess að borga krónu af þeim tæplega 2000 milljónum sem það myndi kosta að borga upp samning hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×