Zagorakis bestur á EM 5. júlí 2004 00:01
Fyrirliði grísku Evrópumeistaranna, Theodoros Zagorakis, var valinn besti leikmaður mótsins og er sú tilnefning punkturinn yfir i-ið á hinu ótrúlega gríska ævintýri sem við höfum orðið vitni að undanfarnar þrjár vikur. Þessi 32 ára gamli leikmaður AEK í Aþenu er holdgervingur gríska liðsins - vinnusamur miðjumaður sem lætur ekkert hafa áhrif á leik sinn, gerir það sem fyrir hann er lagt og efast ekki um ákvarðanatöku þjálfarans. Zagorakis var valinn besti maður vallarins í fyrsta leik mótsins og einnig í þeim síðasta og er það lýsandi dæmi um árangur Grikkjanna á EM - þeir opnuðu mótið með stæl og lokuðu því með stæl. Árangur þeirra var síður en svo tilviljun - margir héldu að fyrri sigurinn á Portúgölum hefði verið tilviljun ein, bóla sem myndi springa í næsta leik - en hafi þetta verið bóla þá var hún úr stáli. Zagorakis var um tíma hjá enska liðinu Leicester City en saga hans þar er ekki mörkuð af sigrum né frægð, frekar en grísk knattspyrnusaga fram til þessa dags. Á tveimur og hálfu ári í Leicester-borg var Zagorakis aðeins 45 sinnum í byrjunarliðinu og fékk að fara á frjálsri sölu sumarið 2000 til AEK þar sem hann er enn. Hann átti afar erfitt með að tjá sig um tilfinninguna sem fylgdi því að taka á móti bikarnum í leikslok: "Hugur minn var algerlega tómur, það eina sem ég vildi gera var að hefja bikarinn á loft. Í raun á ég engin orð til að lýsa því hvernig mér líður núna - þetta er ólýsanleg tilfinning." Zagorakis verður tíðrætt um sálina í gríska liðinu: "Við höfum sannað enn og aftur að gríska sálin er, og verður alltaf, aðalstyrkur okkar. Hún er stórkostlegasta gjöfin sem Guð hefur nokkurn tímann gefið okkur." Fyrir EM í Portúgal höfðu Grikkir ekki unnið leik á stórmóti. Reyndar hafa þeir aðeins verið þátttakendur í tveimur - EM 1980 og HM 1994. "Bara það að komast í lokakeppnina var mikið afrek hjá okkur," sagði Zagorakis en Grikkir þóttu einnig koma mikið á óvart í undankeppninni. Þeir stóðu sig frábærlega þar, urðu að lokum efstir í sínum riðli og skutu sterkum knattspyrnuþjóðum eins og Spánverjum og Úkraínumönnu ref fyrir rass. "Þrátt fyrir góðan árangur okkar í undankeppninni bjóst enginn við þessum árangri í lokakeppninni. Það sem við afrekuðum síðan hér í Portúgal er auðvitað ekki búið að vera neitt annað en eitt allsherjarævintýri sem mikil forréttindi hafa verið að fá að taka þátt í." Zagorakis sagði fögnuðinn í búningsklefanum eftir leikinn hafa verið rosalegan: "Þú getur ekki ímyndað þér hvað gekk á, öll þessi gleði umlykjandi, allur þessi fögnuður. En að sjálfsögðu tileinkum við þennan sigur öllum Grikkjum hvar sem þeir eru í heiminum. Ég held að við höfum gefið fólkinu eitthvað meira en bara gleði. Við höfum gefið þeim mikið stolt - stolt sem það getur borið með sér ævina á enda," sagði fyrirliði grísku Evrópumeistaranna og besti leikmaður EM í Portúgal, Theodoros Zagorakis.
Íslenski boltinn Mest lesið Ricky Hatton látinn Sport Víti í blálokin dugði Liverpool Enski boltinn Tvö frá Haaland og Manchester er blá Enski boltinn Leik lokið: KR - Víkingur 0-7 | KR-ingar niðurlægðir á heimavelli Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Fram 2-2 | Dramatík í Krikanum Íslenski boltinn Daníel Tristan skoraði tvö og benti á Guðjohnsen-nafnið Fótbolti Sturluð lokaumferð fyrir skiptingu: Hvaða lið enda fyrir ofan strik? Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - Vestri 4-1 | Frábær sigur dugði ekki til Íslenski boltinn Áfall fyrir Norðmenn: „Þetta var mun verra en ég hélt“ Sport Glódís ekki enn spilað á tímabilinu Fótbolti Fleiri fréttir Hildur lagði upp í Madrídarslagnum „Búnir að æfa það að setja Sigurjón upp í senterinn“ Daníel Tristan skoraði tvö og benti á Guðjohnsen-nafnið Uppgjörið: KA - Vestri 4-1 | Frábær sigur dugði ekki til Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Uppgjörið: Valur - Tindastóll 6-2 | Fanndís fór hamförum Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Uppgjör: FHL - Breiðablik 1-5 | Breiðablik náði 11 stiga forystu á toppnum og felldi FHL um leið Uppgjörið: FH - Fram 2-2 | Dramatík í Krikanum Í beinni: KR - Víkingur | Víkingar geta skotist á toppinn Víti í blálokin dugði Liverpool Tvö frá Haaland og Manchester er blá Mikael hraunaði yfir dómarann í hálfleik og lagði svo upp Glódís ekki enn spilað á tímabilinu Fljótasta fólk heims er frá Jamaíku og Bandaríkjunum Hlín fagnaði sætum sigri gegn Liverpool Ricky Hatton látinn Hvoru megin í Manchester er meiri krísa? Áfall fyrir Norðmenn: „Þetta var mun verra en ég hélt“ Vandræðalegt víti frá Messi Sturluð lokaumferð fyrir skiptingu: Hvaða lið enda fyrir ofan strik? Guðrún Karítas fjarri nýja metinu á sínu fyrsta HM „Draumur síðan ég var krakki“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Dagskráin í dag: Manchester-slagur á sófasunnudegi Stefnir á heimsmet og segist aldrei hafa verið í betra formi Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Sjá meira