Eiður í fótspor föður síns 29. desember 2004 00:01
Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen var í kvöld kjörinn íþróttamaður ársins 2004 af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta er í fyrsta sinn sem Eiður Smári hlýtur þennan titil en hann er fyrsti knattspyrnumaðurinn sem hlýtur hann í sautján ár. Síðasti knattspyrnumaðurinn sem hlaut þennan titil var faðir hans, Arnór Guðjohnsen, en hann hlaut hann árið 1987 eftir frábært tímabil með belgíska liðinu Anderlecht. Eiður Smári átti mjög gott ár með Chelsea og mörk hans áttu þátt í því að liðið hafnaði í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni og komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Hann var yfirburðamaður í íslenska landsliðinu og skoraði þrjú af fjórum mörkum liðsins í undankeppni EM. Eiður Smári er fimmti knattspyrnumaðurinn sem hlýtur þennan titil en áður höfðu Ásgeir Sigurvinsson, í tvígang, Guðni Kjartansson, Jóhannes Eðvaldsson og Arnór Guðjohnsen fengið þessa virtu viðurkenningu. Eiður Smári tekur við kyndlinum af handknattleiksmanninum Ólafi Stefánssyni en hann varð efstur í kjörinu 2002 og 2003. Eiður Smári var ekki viðstaddur afhendinguna í gær þar sem hann fékk ekki leyfi frá knattspyrnustjóra Chelsea, Jose Mourinho, til að mæta vegna þess gífurlega álags sem er á leikmönnum þessa dagana. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1984 sem íþróttamaður árins er ekki viðstaddur kjörið. Eiður Smári og Arnór eru aðrir feðgarnir sem hljóta þessi verðlaun en áður höfðu þeir Vilhjálmur Einarsson og Einar Vilhjálmsson fengið þau.
Íþróttir Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Handbolti Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Enski boltinn Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Enski boltinn Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Íslenski boltinn Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Körfubolti Fleiri fréttir Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Orri áfram heitur á Spáni Skoruðu eftir 15 sekúndur og Þórir fékk engu breytt Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Lið Benónýs í góðri stöðu eftir dramatískt sigurmark Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Skjöldur á loft hjá Glódísi og Bayern Munchen Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar hefst Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Sjá meira