Innlent

Óánægja með töf

Mikillar óánægju gætti hjá farþegum Flugleiða sem urðu fyrir klukkutíma töf á leið sinni heim til Íslands frá Lundúnum í gærkvöldi. Rangar upplýsingar frá afgreiðslufólki Flugleiða á flugvellinum leiddu til þess að fjórtán farþegar misstu af vélinni og varð að snúa henni á flugbrautinni og sækja farþeganna þar sem farangur þeirra var kominn um borð. Meðal þeirra sem nánast urðu strandaglópar í London voru Halldór Blöndal, forseti alþingis, og Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri þingsins. Þeir voru við þingsetningu í skoska þinginu nú um helgina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×