13. umferð hefst í kvöld 7. ágúst 2004 00:01
Fjórir leikir fara fram í 13. umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu í kvöld og eru margar athyglisverðar viðureignir á dagskrá. Af mörgum stórum leikjum fer sennilega sá allra stærsti fram í Eyjum þar sem heimamenn fá íslandsmeistara KR í heimsókn. Bæði lið þurfa nauðsynlega á öllum þremur stigunum að halda; ÍBV til að halda pressu á FH á toppi deildarinnar og KR-ingar til að eiga einhverja glætu á að verja titilinn. Eyjamenn hafa verið á fljúgandi siglingu að undanförnu í deildinni og unnið þrjá leiki í röð en það er spurning hvort að tapið gegn KA í bikarnum í síðustu viku sitji eitthvað í leikmönnum liðsins. KR-ingar fengu skell gegn FH í bikarnum og þurfa að spila mun betur en í þeim leik til að eiga einhverja möguleika á að leggja ÍBV af velli. Kristinn Hafliðason mun ekki leika með KR vegna meiðsla en talið er að Bjarki Gunnlaugsson verði hugsanlega í leikmannahópi liðsins í fyrsta skipti í langan tíma. Fylkismenn fá tækifæri til að rétta sinn hlut aðeins fjórum dögum eftir að hafa tapað fyrir Keflavík í bikarnum, en liðin mætast í Keflavík í kvöld. Fylkir hefur verið í frjálsu falli undanfarnar vikur og verða hreinlega að sigra til að halda sér við toppinn. Keflavík gæti hinsvegar með tapi sogast alvarlega niður í fallbaráttunni. Lykilmenn hjá báðum liðum eiga við meiðsli að stríða svo að vel gæti hugsast að ungir og efnilegir leikmenn liðanna fái tækifæri í leiknum. ÍA sækir KA heim á Akureyri og endurheimta Stefán Þór Þórðarson sem var í banni í síðasta leik. Þannig munu gestirnir örugglega ná að stilla upp sínu sterkasta liði en hjá heimamönnum er Dean Martin í leikbanni auk þess sem Steinn V. Gunnarsson og Örn Kató Hauksson eru tæpir. Í Hafnarfirði mætast þau tvö lið sem hafa náð bestum árangri í deildinni upp á síðkastið, FH og Víkingur. Ólafur Jóhannsson, þjálfari FH, hefur ekki verið að breyta sínu liði mikið á milli leikja og er vís til þess að stilla upp sama liði og lagði KR sannfærandi af velli í bikarnum í síðustu viku. Víkingar hafa heldur verið að gefa eftir og náð aðeins einu stigi af sex mögulegum í síðustu tveimur leikjum og gæti sjálfstraust liðsins hafa dalað eitthvað við það.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ronaldo sagður hafa hótað að siga lögreglunni á börnin Fótbolti Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Handbolti Rekinn fyrir að kyssa liðsfélaga sinn Sport Stóð uppi sem hetja Englands þrátt fyrir áfall skömmu fyrir mót Fótbolti Trúnaðarbrestur og formaðurinn hættur Íslenski boltinn „Ég get ekki pissað eins og ég gerði áður“ Sport Ætlar að vera á íslensku á TikTok Sport „Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Íslenski boltinn Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni Körfubolti Sjáðu markið sem var stolið, rauða spjaldið og alla markaveislu Stjörnunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Eddie Howe segir að Newcastle hafi ekki enn fengið tilboð í Isak Byssumaðurinn ætlaði á skrifstofu NFL en tók vitlausa lyftu „Ég get ekki pissað eins og ég gerði áður“ Jóhannes skrifar undir hjá Kolding „Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Trúnaðarbrestur og formaðurinn hættur Alisson flaug heim vegna persónulegra mála Ótrúlegur skákáhugi í Noregi en ná samt ekki íslensku prósentunni Ekroth skúrkurinn í Stúkunni: „Hann grípur um andlitið, hann veit af þessu“ Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Ætlar að vera á íslensku á TikTok Sjáðu markið sem var stolið, rauða spjaldið og alla markaveislu Stjörnunnar Tólf ára sundkona hársbreidd frá verðlaunum á HM Ronaldo sagður hafa hótað að siga lögreglunni á börnin Stóð uppi sem hetja Englands þrátt fyrir áfall skömmu fyrir mót Rekinn fyrir að kyssa liðsfélaga sinn Dagskráin í dag: Undanúrslit Suður-Ameríkukeppni kvenna Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni „Bara pæling sem kom frá Caulker“ „Vorum búnir að vera miklu betri“ „Þurftum ekkert að vera að drífa okkur“ Uppselt á Evrópuleik KA á Akureyri Gæti enn spilað í úrvalsdeildinni eftir að hafa fallið þrívegis Markasúpur í „Íslendingaslögum“ KR lætur þjálfarateymið fjúka Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Tómas Bent nálgast Edinborg Nýtt útlit hjá Guardiola Sjá meira