Orrahríð á Gylfa Orrason 8. ágúst 2004 00:01
Leikurinn í gær var frábær skemmtun og bauð upp á allt sem góðan knattspyrnuleik þarf að prýða - nema mörkin. Fullt af færum, gríðarlega baráttu, umdeilda dómgæslu og mikla spennu. Það má segja að vendipunkturinn í leiknum hafi komið á síðustu fimm mínútum fyrri hálfleiks, sem fram að þeim tíma átti sína góðu kafla. Fyrst skoraði Arnar Gunnlaugsson fallegt mark sem dæmt var af vegna rangstöðu og var það mjög umdeildur dómur, allavega frá áhorfendastæðunum séð. KR-ingar pressuðu stíft í kjölfarið og átti Guðmundur Benediktsson meðal annars skalla í þverslá. Mínútu síðar var síðan Sölva Davíðssyni brugðið inn í teig af Matt Garner. Gylfi Orrason, mjög svo umdeildur dómari leiksins, dæmdi ekkert og urðu KR-ingar í kjölfarið æfir og létu Gylfa heyra það svo um munaði þegar gengið var til búningsklefa í hálfleik. Hann segist hinsvegar mjög viss í sinni sök að um enga vítaspyrnu hafi verið að ræða. "Ég var mjög vel staðsettur í þessu atviki og það var vissulega samstuð. En ég er alveg sannfærður um að þetta var ekki brot, annars hefði ég dæmt víti. Í markinu sem er dæmt af flaggar línuvörðurinn rangstöðu og ég get að sjálfsögðu ekki annað en brugðist við," sagði Gylfi í samtali við Fréttablaðið eftir leik. Sölvi var hinsvegar á öðru máli og sagðist hann hafa fengið vítaspyrnu fyrir mun minna. "Ég var að undirbúa skot og þá var hlaupið aftan á bakið á mér. Ég féll og mér fannst þetta klárlega vera víti. Ég veit ekki hvort dómarar eru búnir að merkja mig eða hvað það er, en þetta var engin öxl í öxl. Hann fór í bakið á mér," sagði Sölvi. Þótt að KR-ingar hafi kvartað markaði þetta mótlæti undir lok fyrri hálfleiks hinsvegar einskonar uppvakningu hjá leikmönnum liðsins, þeir voru greinilega reiðir og mættu gríðarlega vel stemmdir í seinni hálfleik. Eftir að hafa spilað í sama dúr og í tapleiknum gegn FH í síðustu viku lengst af í fyrri hálfleik, var allt annað að sjá til liðsins í síðari hálfleik. Löngu og glórulausu sendingarnar fram völlinn, sem voru í aðalhlutverki í fyrri hálfleik, voru á bak og burt í þeim síðari og var Guðmundur Benediktsson sérstaklega duglegur í því að sækja boltann og dreifa spilinu. Heimamenn voru án efa að spila sinn besta bolta í langan tíma og sköpuðu sér fullt af færum, reyndar rétt eins og Eyjamenn sem einnig fengu mörg upplögð færi sem ekki nýttust og voru að spila mjög vel. Eftir því sem leið á hálfleikinn náðu KR-ingar betri völdum og var það aðeins stórleikur Birkis Kristinssonar sem kom í veg fyrir að heimamenn skoruðu. Ekki má taka neitt af Eyjamönnum; þeir voru mjög skeinuhættir á köflum og sönnuðu að það er engin tilviljun að liðið sé í bullandi toppbaráttu. Það var í raun ótrúlegt að ekki skuli hafa verið skorað mark í leiknum; hann var feykilega opinn og klárlega einn sá skemmtilegasti í sumar. Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, trúði því vart í leikslok að lið hans hefði ekki unnið leikinn. "Þetta var mjög góður leikur af okkar hálfu, liðið barðist mjög vel og það eina sem kom í veg fyrir að við unnum þennan leik var Birkir Kristinsson." Aðspurður um dómgæsluna kvaðst Willum ekki vera í vafa um að Gylfi hefði haft rangt fyrir sér í lok fyrri hálfleiks. "Dómararnir verða bara að eiga það við sig en frá mínum sjónarhóli var þetta löglegt mark og vítaspyrna," sagði Willum ómyrkur í máli. Birkir, sem reyndist betri en enginn fyrir Eyjamenn á lokamínútunum, kvaðst sáttur með eitt stig. "Ég er sáttur með eitt stig eftir að leikurinn þróaðist eins og hann gerði en fyrir leikinn hefði ég ekki gert það. Við ætluðum okkur að sigra hér í kvöld. En síðan kom það á daginn að við þurftum að verjast stóran hluta leiksins en hefðum þó alveg getað stolið sigri. Með þessu stigi höldum við okkur í skottinu á FH og eigum þá í næsta leik. Og það verður einfaldlega algjör úrslitaleikur fyrir okkur."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Íslenski boltinn „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Íslenski boltinn Zubimendi með tvö í frábærum sigri Enski boltinn Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Fótbolti Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Fótbolti Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Fótbolti Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Handbolti Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Sport Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad Fótbolti Fleiri fréttir Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Mark Sveindísar duggði skammt Í beinni: Brentford - Chelsea | Bláliðar hafa byrjað vel Endurkomusigur í ótrúlegum sjö marka leik Sævar hetjan í endurkomusigri Brann Arnór tryggði Norrköping stig í Íslendingaslag „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Grótta og Ægir upp í Lengjudeildina Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Heimsmethafinn hélt út Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad Zubimendi með tvö í frábærum sigri Fagnar eins og Gyökeres og bjó til skýringu Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Dagskráin í dag: Enska úrvalsdeildin aftur af stað eftir hlé Brynjólfur leikmaður mánaðarins í Hollandi Sjá meira