Markalaust í Krikanum 8. ágúst 2004 00:01
FH-ingar misstu af gullnu tækifæri til að auka forystu sína á toppi Landsbankadeildarinnar í gær þegar þeir tóku á móti Víkingum. FH-liðið sem hefur verið á miklu skriði að undaförnu náði sér aldrei á strik í leiknum gegn vel skipulögðu Víkingsliði og endaði leikurinn með markalausu jafntefli. Það brá fyrir ágætis samleiksköflum hjá báðum liðum í fyrri hálfleik en leikmönnum liðanna virtust allar bjargir bannaðar þegar upp að vítateignum var komið. Danski varnarmaðurinn Tommy Nielsen átti hættulegasta færi hálfleiksins en skalli hans eftir hornspyrnu var varinn á línu. Bæði lið fengu síðan tækifæri til að skora í síðari hálfleik. Víkingurinn Jermaine Palmer fékk dauðafæri á 64. mínútu en var alltof lengi að athafna sig og missti boltann og hinum megin fengu Guðmundur Sævarsson og Allan Borgvardt mjög góð færi sem fóru bæði forgörðum. FH-ingar pressuðu stíft á lokamínútum en Víkingar voru þéttir fyrir og tryggðu sér eitt dýrmætt stig. Það er erfitt fyrir FH-liðið að halda því flugi sem það hefur verið á undanförnu leik eftir leik. Liðið náði sér ekki á strik, hin leiftrandi sóknarknattspyrna sem hefur einkennt liðið að undanförnu var á bak og burt og í staðinn voru sendingar leikmanna liðsins tilviljunarkenndar og máttlitlar. Vörnin var hins vegar sterk með Tommy Nielsen sem besta mann og var gaman að fylgjast með honum taka Palmer og hreinlega pakka honum saman. Víkingar spiluðu skynsamlega og hefðu, með meiri þolinmæði, getað gert sér mat úr nokkrum ágætis sóknarmöguleikum. Þeir féllu hins vegar aftar á völlinn í síðari hálfleik og virtust vera hæstánægðir með eitt stig gegn toppliðinu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Fótbolti Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Sport „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Fótbolti Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Segja Breka á leiðinni til Benfica Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Okeke farinn frá Álftanesi Børge Lund tekur við stórliði Kiel Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Stolt að fá að spila á móti frænku sinni Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Liðsfélagi Fanneyjar og Thelmu verður sú dýrasta í sögunni Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“ Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Sjá meira