Strákarnir unnu stórsigur á Finnum 10. ágúst 2004 00:01
Íslensku strákarnir í 16 ára landsliðinu eru að standa sig vel í Evrópukeppni 16 ára liða en íslenska liðið tekur nú þátt í b-deildinni sem fram fer í Brighton á Englandi. Íslenska liðið vann stórsigur á Finnum, 71-53, í fimmta leik sínum á mótinu í gær og hefur unnið fjóra af fimm leikjum sínum til þessa. Í kvöld mæta strákarnir gríðarlega sterku liði Makedóníu sem er ósigrað á mótinu. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir íslenska liðið sem lenti 10-17 undir í fyrsta leikhluta. Eftir það fóru strákarnir að spila frábæran bolta og leiddu í hálfleik, 45-33. Finnar reyndu nokkrar leikaðferðir í síðari hálfleik en það var sama hvað þeir reyndu, okkar strákar áttu svör við öllu. Íslenska liðið átti stórleik í gær og allir léku vel að þessu sinni. Hittnin fyrir utan var góð megnið af leiknum og var gott jafnvægi í sóknarleiknum. Enn sem fyrr spiluðu strákarnir góða vörn og hefur vörnin verið aðall liðsins hingað til í mótinu. Njarðvíkingurinn Hjörtur Hrafn Einarsson var stigahæstur með 23 stig, Hörður Axel Vilhjálmssson var með 18 stig og 8 stoðsendingar og Brynjar Þór Björnsson var með 14 stig en hann er stigahæsti leikmaður íslenska liðsins á mótinu. Íslenska liðið er sem fyrr í öðru sæti í mótinu en þjálfari þess er Benedikt Guðmundsson.
Íþróttir Mest lesið „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Íslenski boltinn Zubimendi með tvö í frábærum sigri Enski boltinn Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Fótbolti Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Fótbolti Dagskráin í dag: Enska úrvalsdeildin aftur af stað eftir hlé Sport Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Sport Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur Enski boltinn Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Enski boltinn Brynjólfur leikmaður mánaðarins í Hollandi Fótbolti „Þeir sem standa sig betur hreppa hnossið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Real Sociedad - Real Madrid | Madrídingar í Baskalandi Zubimendi með tvö í frábærum sigri Fagnar eins og Gyökeres og bjó til skýringu Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Dagskráin í dag: Enska úrvalsdeildin aftur af stað eftir hlé Brynjólfur leikmaður mánaðarins í Hollandi „Þeir sem standa sig betur hreppa hnossið“ Staðfestir að Bayindir verði í markinu gegn Man City Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Uppgjör: Stjarnan - Fram 3-1 | Stjörnukonur komust upp í fjórða sæti með sigri gegn Fram KR verður án tveggja sem fengu heilahristing á æfingu Uppgjörið: FH - Víkingur 1-2 | Víkingar á mikilli siglingu Uppgjörið: Þór/KA - Þróttur 0-1 | Keyra heim með sigur í farteskinu Delap gæti verið frá fram í desember „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Grealish valinn leikmaður mánaðarins í fyrsta sinn Heimsmethafinn Powell í bann 61 árs en ástæðan á huldu Viðhafnarútsending af Doc Zone: Fimm leikir í enska og lokaumferðin í Lengjunni Segist græða jafn mikið á einum Steraleikum og þrettán heimsmeistaramótum Skór United týndust og kátur búðareigandi í Björgvin græddi vel Sigurbjörn Árni um Steraleikana: Gæti orðið framtíðin með nægu fjármagni Sjá meira