Langefstur af Íslendingunum 27. október 2004 00:01
Páll Kristinsson hefur farið á kostum í fyrstu fjórum leikjum Njarðvíkurliðsins í vetur en alla leikina hefur liðið unnið með meira en tuttugu stiga mun, fyrstir liða í sögu úrvalsdeildarinnar. Páll er stigahæstur hjá Njarðvíkurliðinu með 21,1 stig að meðaltali og er sá Íslendingur í deildinni sem hefur lagt langmest til síns liðs í fyrstu fjórum umferðum Intersportdeildarinnar. "Liðsheildin er búin að vera mjög góð hjá okkur og þar skiptir það miklu máli að við byrjuðum á því að fara í æfingaferð til Danmerkur fyrir tímabilið sem tókst mjög vel. Við fórum út með stóran hóp og vorum auk þess mikið saman í fjáröflun fyrir ferðina í sumar. Það hefur verið mikið bil á milli þeirra eldri og yngri hjá okkur í gegnum tíðina og það hefur náð að brúast með þessari ferð og því hve við höfum náð að vera mikið saman. Við leikmennirnir höfum líka ákveðið það í sameiningu að gera þetta að skemmtilegu tímabili með því að gera það sjálfir skemmtilegt," segir Páll. Njarðvíkurliðið hefur spilað mjög hraðan bolta það sem af er tímabili og Páll játti því að það hentaði honum vel. "Ég nýt mín vel í hröðum bolta og það hefur æxlast þannig að ég er mikið opinn. Í næsta leik getur vel verið að það verði einhver annar. Við erum með breiðan og góðan hóp og það eru allir að skila sínu, allt frá útlendingnum til ungu strákanna. Við erum með gott lið og vorum mjög heppnir með Bandaríkjamanninn Matt Sayman. Hann er gull af manni, spilar frábæra vörn og leggur sig alltaf fram. Síðan er Brenton Birmingham í feiknaformi og það hjálpar okkur. Vörnin hefur verið góð og það hefur gert það að verkum að sigrarnir hafa orðið svona stórir " sagði Páll. Páll æfði með landsliðinu í sumar og hann sagði aðspurður að það ætti sinn þátt í því að hann væri jafngóðu formi og raun ber vitni. "Það voru góðar æfingar í sumar og öflugir mótherjar og það gerði manni eflaust gott," sagði Páll. Hann sagði að Einar Árni Jóhannsson, þjálfari liðsins, sem er að stýra liði í fyrsta sinn í efstu deild karla, hefði haldið vel utan um liðið. "Hann hefur staðið sig mjög vel og ég hef ekki orðið var við neitt reynsluleysi. Hann hefur auðvitað reynslu af því að stýra liðum í stórum leikjum úti eftir að hafa verið með unglingalandsliðið." Hann sagðist eiga vona á meiri mótspyrnu frá andstæðingum Njarðvíkur í næstu leikjum og hræddist það ekki. "Þessir leikir okkar hafa alls ekki verið léttir. Við höfum komið sterkir upp í lokin og klárað marga leiki þá. Deildin er mjög sterk og það eru fullt af erfiðum leikjum framundan. Við ætlum okkur hins vegar að taka alla titla sem í boði eru - það þýðir ekkert annað," sagði Páll en Njarðvíkingar hafa ekki unnið titla undanfarin tvö ár - nokkuð sem er óvanalegt á þeim bænum.
Íþróttir Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Golf Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Titilbaráttunni formlega lokið í kvöld? Lars Lagerbäck veit hvað er stærsta vandamál sænska liðsins Þjálfari Íraks um Mbappé: Bað um að fá að spila með þrjá markverði Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Sakar þýska landsliðið um óheiðarleika Messi er ekki búinn að ná Mörtu Goðsögnin fær að keppa á Wimbledon-mótinu Einum mánuði yngri en Eiður Smári Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Kom pabba sínum algjörlega á óvart á átjándu holunni á US Open Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Maður dagsins: Fyrirliði Orra úr aðhlátursefni í hetju Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Kóngafólkið dansaði í klefa Curacao Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Kristín setti heimsmet og vann brons á HM: „Stolt af sjálfri mér“ Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Bauluðu á verðandi US Open meistara Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Dagskráin í dag: KRÍA og Besta deild kvenna „Loksins næ ég að skora þrennu“ „Vorum litlir í okkur á stóra sviðinu“ Sjá meira