FH að klára Íslandsmótið 15. ágúst 2004 00:01
FH-ingar tóku stórt skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum með 3-1 sigri á ÍBV á Hásteinsvelli í Eyjum í gær. FH-ingar hafa ekki tapað í Landsbankadeildinni síðan í 22. maí og hafa nú gott forskot á toppi deildarinnar. Einar Þór Daníelsson, leikmaður ÍBV, telur titilinn vera í höndum FH-inga. “Það eru fjórir leikir eftir en ég sé ekki að FH misstígi sig mikið úr þessu. Þetta var dagur FH-inga það er alveg ljóst og þeir höfðu allt með sér – það er það sem þarf til að vinna titla,” sagði Einar Þór sem náði sér ekki á strik í leiknum frekar en aðrir í fáliðari sóknarlína Eyjaliðsins sem var með fjóra miðverði í byrjunarliðinu. Tryggvi Bjarnason og Páll Hjarðar voru í vörninni að venju en varnarmennirnir Einar Hlöðver Sigurðsson og Andri Ólafsson léku á miðjunni hjá ÍBV ásamt varnartengiliðnum Bjarnólfi Lárussyni og hljóta menn því að spyrja sig hvort Eyjamenn hafi mætt til leiks á heimavelli til að verjast. Einar Þór var sammála því að liðinu vantaði bitkraft í sóknina. “Það segir sig auðvitað sjálft að það vantaði meira þunga í sóknina. Um leið og við lendum undir baka þeir til baka og þá er erfiðara fyrir okkur að skapa færi. Munurinn á liðunum í dag var bara sá að þeir voru að klára færin vel, við fengum alveg nóg af færum en vorum bara ekki að nýta þau.” FH liði lék undan vindinum í fyrri hálfleik en það voru Eyjapeyjar sem byrjuðu betur og sköpuðu sér fyrsta marktækifærið. Andri Ólafsson átti gott skot að marki sem góður markvörður FH, Daði Lárusson, varði vel. Það voru hins vegar FH-ingar sem komu knettinum fyrst í netið og má segja að það hafi verið gegn gangi leiksins. Atli Viðar Björnsson fylgdi eftir skoti Guðmundar Sævarsson og skoraði sitt 5 mark í Landsbankadeildinni og staðan orðinn 1-0 fyrir FH. Eyjamenn fengu svo rothöggið fimm mínútum síðar þegar Emil Hallfreðsson skoraði beint úr horni. “Ég átti bara að smella honum inn að markinu en það var kannski ekki ætlunin að skora. Ég ætlaði samt að setja hann að markinu en ég verð að viðurkenna að það kom mér á óvart þegar ég sá hann inni,” sagði Emil sem sagðist ekki hafa áður skorað úr beint úr horni í meistaraflokki. Eyjaliðinu gekk illa að skapa sér færi og náðu ekki að ógna Daða í markinu og FH-ingar fóru inn í búningsklefa í hálfleik með gott forskot. Í upphafi seinni hálfleiks má svo segja að hin magnaði Atli Viðar Björnsson hafi gert út um leikinn þegar hann setti boltann framhjá Birki Kristinssyni í marki ÍBV eftir frábæra stungusendingu frá Jóni Þorgrími Stefánssyni. Staðan orðinn 3-0 og Eyjapeyjar kannski minni fyrirstaða en Ólafur Jóhannesson þjálfari FH átti von á. “Auðvitað átti maður von á þeim erfiðum hérna á sínum heimavelli og kannski var þetta auðveldara en maður þorði að vona. Við spiluðum skynsamlega og fengum vindinn í bakið í fyrri hálfleik og kláruðum leikinn þá,” sagði Ólafur sem vildi samt ekki taka undir það að titilinn væri í höfn eftir sigurinn í Eyjum. Það er enn mikið eftir að þessu móti og ég veit allt um það. Við eigum erfiða leiki eftir og verðum að klára þetta eins og menn.” ÍBV náði að klóra í bakkann á 72. mínútu þegar Gunnar Heiðar Þorvaldsson átti gott skot að marki FH sem hafði viðkomu félaga hans í framlínunni, Steingrími Jóhannessyni, og þaðan í netið. FH-ingar vörðust vel síðustu 20 mínúturnar gegn vindinum og fögnuðu þegar Erlendur Eiríksson, dómari leiksins, flautaði til leiksloka enda liðið komið með 4 stiga forskot á toppi deildarinnar þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir. ÍBV-FH 1-3 0-1 Atli Viðar Björnsson 24. 0-2 Emil Hallfreðsson 28. 0-3 Atli Viðar Björnsson 48. 1-3 Steingrímur Jóhannesson 72.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Donald Trump sást svindla á golfvellinum Golf Fékk meira að segja kveðju frá sínum helsta óvini Sport „Ef ég geri það ekki þá mun ég kannski sjá eftir því alla ævi“ Sport Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Golf Grét þegar hann var kynntur hjá nýju félagi Fótbolti Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Fótbolti Sú besta í áfalli og baðst afsökunar Fótbolti Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Fótbolti Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Fótbolti Fleiri fréttir Flúraði sig til minningar um Jota Bönnuðu öllum leikmönnum liðsins að koma inn í landið Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Segja Jóhannes kosta tæpar tíu milljónir króna Flýr Ten Hag og semur við Sunderland Grét þegar hann var kynntur hjá nýju félagi Sjáðu Pedersen jafna metið og Kennie kremja hjörtu Víkinga NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals „Ef ég geri það ekki þá mun ég kannski sjá eftir því alla ævi“ Eir Norðurlandameistari en fékk of mikla hjálp til að fá metið Sú besta í áfalli og baðst afsökunar Siggi Raggi for holu í höggi á vellinum þar sem Íslandsmótið fer fram Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Donald Trump sást svindla á golfvellinum Fékk meira að segja kveðju frá sínum helsta óvini Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Dagskráin í dag: Mikilvægur leikur í Garðabæ Rashford mátaði treyjuna í leik sem átti ekki að fara fram Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir „Þeir refsuðu okkur í dag“ Evrópumót kvenna aldrei betur sótt en nú „Þurftum að fá aðeins ferskt blóð inn í þetta“ „Það er að kosta okkur mikið að nýta ekki færin“ Rúnar Kristinsson: Glaðir með stigið Skrifaði undir nýjan samning eftir að hafa verið svo gott sem farinn „Ég klikka ekki á tveimur vítaspyrnum í röð“ Rigningin setti strik í reikninginn er Piastri sigraði í Belgíu Uppgjörið: Fram - Víkingur 2-2 | Kennie Chopart stal stigi fyrir Fram Sjá meira