Eiður Smári með eina markið 15. ágúst 2004 00:01
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði eina markið í heimasigri á Manchester United í fyrsta keppnisleik liðsins undir stjórn portúgalska stjórans Jose Mourinho. Eiður Smári skoraði markið af miklu harðfylgi strax á 15. mínútu leiksins eftir skallasendingu frá Didier Drogba. Leikmenn Manchester áttu þó mun meira í leiknum, voru meira með boltann en náðu ekki að opna sterka vörn Chelsea. Leikurinn bauð þó ekki upp á mikla skemmtun enda erfitt fyrir bæði lið að byrja mótið á risaslag. Bæði lið hafa breyst mikið frá því í fyrra og koma þar meiðsli lykilmanna inn í myndina hjá Sir Alex Fergusson og lærisveinum hans í Manchester-liðinu. Það vantaði níu menn í lið United af þeim sökum. Arsenal vann öruggan útisigur á Everton, 1-4, þar sem mestu tíðindin voru kannski að Thierry Henry var ekki meðal markaskorara Arsenal. Henry lagði reyndar upp mörk fyrir bæði Dennis Bergkamp og Fredrick Ljungberg í leiknum en hin mörkin skoruðu þeir Jose Antonio Reyes og Robert Pires. Framkvæmdastjóri Everton, David Moyes, lét hafa það eftir sér eftir leikinn að hann væri í erfiðasta starfinu í ensku úrvalsdeildinni. "Þetta er líklega erfiðasta starfið í deildinni en þetta er jafnframt mikil áskorun fyrir mig til að sigrast á og ef það tekst verðum við mun betri á eftir. Ég kann enn vel við mig hér en það skiptir miklu máli að Everton haldi sér í deildinni enda hefur félagið verið þar í 125 ár eða meira," sagði Moyes sem þarf líklega sjá á eftir Wayne Rooney sem hefur líklega verið allt annað en heillaður af frammistöðu liðsins. Arsenal lék hinsvegar sinn 41 deildarleik án þess að tapa og mun jafna met Nottingham Forest ef þeir tapa ekki gegn Middlesbrough á Highbury á sunnudaginn kemur.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Golf Rashford mátaði treyjuna í leik sem átti ekki að fara fram Fótbolti Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Fótbolti „Þeir refsuðu okkur í dag“ Fótbolti Skrifaði undir nýjan samning eftir að hafa verið svo gott sem farinn Fótbolti „Þurftum að fá aðeins ferskt blóð inn í þetta“ Fótbolti „Það er að kosta okkur mikið að nýta ekki færin“ Fótbolti Dagskráin í dag: Mikilvægur leikur í Garðabæ Sport „Ég klikka ekki á tveimur vítaspyrnum í röð“ Fótbolti Fleiri fréttir Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Dagskráin í dag: Mikilvægur leikur í Garðabæ Rashford mátaði treyjuna í leik sem átti ekki að fara fram Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir „Þeir refsuðu okkur í dag“ Evrópumót kvenna aldrei betur sótt en nú „Þurftum að fá aðeins ferskt blóð inn í þetta“ „Það er að kosta okkur mikið að nýta ekki færin“ Rúnar Kristinsson: Glaðir með stigið Skrifaði undir nýjan samning eftir að hafa verið svo gott sem farinn „Ég klikka ekki á tveimur vítaspyrnum í röð“ Rigningin setti strik í reikninginn er Piastri sigraði í Belgíu Uppgjörið: Fram - Víkingur 2-2 | Kennie Chopart stal stigi fyrir Fram Uppgjörið: Valur - FH 3-1 | Pedersen jafnaði markametið og Valur á toppinn LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Luiz Diaz til Bayern Englendingar Evrópumeistarar eftir vítaspyrnukeppni Æfingaleikur United betur sóttur en úrslitaleikur HM Sjáðu mörkin úr Sumardeildinni í gær Arsenal hafði betur í Singapúr Uppgjörið: Vestri - ÍBV 2-0 | Fyrsti sigur Vestra síðan 15. júní Hætt að rigna í Francorchamps og ræs klukkan eitt PSG semja við væntanlegan eftirmann Donnarumma Joao Felix til liðs við Ronaldo hjá Al Nassr Bíða enn eftir Mbeumo Píndi sig í gegnum beinbrot eftir læknamistök Úrhellir í Belgíu og tvísýnt með keppni dagsins United aftur á sigurbraut Sjá meira