Lífið

Saknar að ganga um óáreitt

Angelina Jolie, 35 ára, saknar daganna þegar hún gat gengið um New York borg án þess að nokkur tæki eftir henni. Í dag getur leikkonan hvergi látið sig án þess að fjöldi ljósmyndara elti hana eða aðdáendur biðji hana um eiginhandaráritun. „Ég sakna þess að vera ein af fjöldanum. Ég hef búið í New York síðan ég var ung. Stundum gekk ég um og mældi út göturnar. Ég elskaði það," sagði Angelina en hún kynnir um þessar mundir nýju mynd sína Salt sem frumsýnd verður hér á landi eftir þrjá daga.

Lífið

Maskari er nauðsynlegur

„Þegar ég nota sólarpúður passa ég mig að setja það ekki nálægt nefinu eða augunum því þá lítur Jennifer út fyrir að vera miklu eldri en hún er."

Lífið

Segir Tyson hafa stolið gælunafninu

Boxarinn óhugnarlegi, Mike Tyson á nú yfir höfði sér kæru frá fyrrverandi boxara sem vill meina að Tyson hafi stolið gælunafni „Iron Mike“ af honum fyrir 25 árum síðan.

Lífið

Hver er þessi Paul Allen?

Bandaríski milljarðamæringurinn Paul Allen er staddur á landinu. Heimsókn hans hefur vakið gríðarlega athygli, enda fer lúxussnekkja hans, sem er ein sú stærsta í heimi, ekki framhjá neinum. Paul stofnaði Microsoft á sínum tíma ásamt Bill Gates og er í 37. sæti yfir ríkustu menn heims samkvæmt tímaritinu Forbes.

Lífið

Miri fagnar nýrri plötu

Hljómsveitin Miri heldur útgáfutónleika í félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði í kvöld í tilefni af plötu sinni Okkar sem kom út í júní. Ásamt Miri koma hljómsveitirnar Sudden Weather Change og hin seyðfirska Broken Sound fram á tónleikunum. Unnsteinn úr Retro Stefson þeytir skífum að þeim loknum. Platan Okkar var unnin í samstarfi við upptökustjórann Curver Thoroddsen og er hún prýdd ýmsum gestaleikurum. Aðrir útgáfutónleikar verða haldnir í Reykjavík 28. ágúst.

Lífið

Kvörtunum rignir yfir FM 957 vegna mellulags Erps

Útvarpsstöðin FM 957 hefur dregið úr spilun á laginu Elskum þessar mellur með röppurunum Erpi og Emmsjé Gauta vegna fjölda kvartana að undanförnu. Eins og titillinn gefur til kynna er lagið opinskátt og hefur það helst farið fyrir brjóstið á fjölskyldufólki.

Lífið

Robin Wright sem Erika Berger

Robin Wright hefur verið ráðin í hlutverk Eriku Berger í bandarísku útgáfunni af Karlar sem hata konur. Persónan Berger er ritstjóri tímaritsins Millenium og ástkona blaðamannsins Mikaels Blomkvist, sem Daniel Craig mun leika. Enn á eftir að ráða í hlutverk Lisbeth Salander. Wright hefur á ferilsskránni myndir á borð við Forrest Gump, Unbreakable og State of Play.

Lífið

Nýja Weezer-platan heitir Hurley

Næsta plata hljómsveitarinnar Weezer nefnist Hurley og kemur út um miðjan september. Þetta verður áttunda plata sveitarinnar og fylgir hún í kjölfar Raditude sem kom út í fyrra. Weezer yfirgaf útgáfurisann Geffen á síðasta ári og kemur nýja platan út hjá fyrirtækinu Epitaph Records.

Lífið

Kardashian veldið í fatabisness

Kim Kardashian og systur hennar Kourtney og Khloé eru harðákveðnar að demba sér í fatabransann. Sjónvarpsstjörnurnar hafa tekið sig saman með hönnuðinum Bruno Schiavi og ástralska fataframleiðandanum Jupi Corporation við að útfæra fatalínu og fylgihluti til handa ungum konum. Framleiðsla systranna kemur í verslanir árið 2011.

Lífið

Fegurðin kemur innan frá

Jessica Simpson, 30 ára, segir að lykillinn að sannri fegurð sé að vera sátt við líkama sinn og sálina ekki síður. Jessica viðurkennir að hafa verið í tilvistarkreppu meira og minna undanfarinn áratug af því að hún hafði stöðugar áhyggjur af því hvaða skoðun aðrir höfðu á líkama hennar. Þess vegna reyndi Jessica allt hvað hún gat til að líkjast Barbie. „Við konur erum allt of oft með útlitið á heilanum. Að líta út eins og fullkomna Barbie-dúkkan er ekki alltaf það besta í stöðunni. Fegurð gengur út að á vera fullkomlega sátt við sjálfa sig burtséð frá fatastærð eða kílóafjölda," lét Jessica hafa eftir sér í tímaritinu Lucky.

Lífið

Keypti grafreit við hlið Monroe

Hugh Hefner, 84 ára, keypti grafreitinn við hlið gröf Marilyn Monroe. Þar vill hann láta grafa sig þegar hann fellur frá. Hugh, sem minntist ljóskunnar á Twitter síðunni sinni, var góðvinur Marilyn sem lést 5. ágúst árið 1962 aðeins 36 ára gömul en hún birtist á fyrstu forsíðu Playboy tímaritsins árið 1953. Hugh segir tölublaðið með Marilyn á forsíðunni enn vera í uppáhaldi hjá honum. Sagan segir að Hugh hafi átt í ástarsambandi við Marilyn en hann hefur aldrei staðfest þá sögu.

Lífið

Notar andlitskrem í miklum mæli

Leikkonan Jennifer Aniston hugsar vel um andlitið á sér. „Ég þvæ andlitið á mér á hverjum morgni og á kvöldin. Ég hef alltaf notað sama kremið alveg síðan ég var í framhaldsskóla. Það heitir Neutrogena. Vörurnar sem ég nota á andlitið eru Dr. Hauschka rakakremið og þá nota ég það yfir daginn. Ég nota augnkremið SK-II," svaraði Jennifer aðspurð hvaða krem hún setur á andlitið. Við gerðum könnun á Facebooksíðunni okkar og spurðum: Notar þú augnkrem (ef já, hvaða krem)? „NouriFusion augngel á morgnana og augnkrem á kvöldin." „Hef notað stundum augnkrem frá gamla apótekinu finnst það mjög gott. Er í smá vandræðum núna með að finna nýtt því ég er flutt erlendis." „Sensai frá Kanebo." „Nota Nourifusion, kostar ekki augun úr og er allgjör snilld. Það virkar þvílíkt vel, það er bæði til augnkrem og augngel. Augngelið er aðeins kælandi og vinnur vel á þreytt og þrútin augu..... get ekki verið án kremana frá þeim." „Bláalóns augnkremið er æði." „Nota alltaf augnkrem og sé mikin mun ef ég sleppi t.d viku eða svo. Besta augnkremið er frá Helena Rubinstein sem heitir Prodigy það er æði." „EGF húðdropana..alveg frábær vara. Fann minna fyrir ofnæmi í sumar vegna þeirra." Við þökkum frábæra þátttöku.

Lífið

Mamma Jerry Hall vissi betur

„Mamma sagði eitt sinn við mig að auðvelt væri að halda í eiginmann," sagði Jerry Hall fyrrverandi eiginkona Mick Jagger. „Þú þarft að vera þjónn í stofunni, kokkur í eldhúsinu og hóra í svefnherberginu. Þá sagði ég við mömmu að ég myndi ráða manneskjur í fyrstu tvö hlutverkin sem hún nefndi en sjá sjálf um svefnherbergið." Meðfylgjandi myndir voru teknar af Jerry í gær í Ástralílu þar sem verslunarkeðjan Myer kynnti haustlínuna í ár.

Lífið

Skrifar þriðju bókina um Bubba

„Vinnuferlið við bókina er nýfarið af stað og við Bubbi búnir að hittast nokkrum sinnum,“ segir Árni Árnason markaðsfræðingur en hann er með samtalsbók við tónlistarmanninn Bubba Morthens í bígerð og stefnir á að demba henni í næsta jólabókaflóð.

Lífið

Skrifa saman ævisögu Miðbaugsmaddömunnar

„Við höfum fylgst með gangi og málaferlum Catalinu í þónokkurn tíma og það er ljóst að þarna er alveg ofboðslega mögnuð saga. Þetta er 49 kílóa, þeldökk kona sem gjörsamlega snýr þjóðfélaginu á haus,“ segir Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður.

Lífið

Naomi Campell vitnar gegn stríðsherra í Haag

Naomi Campbell var í óvenjulegum aðstæðum í gær þegar hún sat í dómsal Stríðsdómstólsins í Haag. Fyrirsætan þurfti að bera vitni gegn meinta stríðsherranum og demantakónginum Charles Taylor en hún á að hafa fengið blóðdemanta að gjöf frá Taylor árið 1997.

Lífið

Barrymore hatar símakynlíf

Drew Barrymore hefur greint frá því að hún sé enginn aðdáandi fjarsambands og ástæðan sé sú að hún hati kynferðisleg símtöl.

Lífið

Ný andlit á svið í Þjóðleikhúsið í vor

„Ég heyrði það einu sinni frá reyndum leikara að það væri frábært að geta planað líf sitt hálft ár fram í tímann í þessu starfi og nú get ég planað næstum eitt ár svo ég er gríðarlega sáttur,“ segir Ævar Þór Benediktsson, nýútskrifaður leikari.

Lífið

Neverland komið á sölu

Neverland býli hins sáluga konungs poppsins Michaels Jackson er komið á sölu og ekki lítill verðmiði á húsinu sem er metið á rúma 3 milljarða íslenskra króna.

Lífið

Sigga Beinteins syngur með Páli Óskari

Á morgun fer fram hið árlega Gay Pride ball Páls Óskars í tilefni af Hinsegin dögum. Palli hefur haldið ball á Gay Pride frá því að hátíðin hófst 1999 og troðfyllt húsið í hvert einasta sinn. Síðustu ár hafa húsin stækkað með hátíðinni og hefur ballið verið í þónokkurn tíma á Nasa. Þar þeytir Palli skífum ásamt því að syngja öll sín bestu lög og virðist ekkert lát vera á vinsældum ballsins.

Lífið

Myndi rappa með Bieber

Leikarinn Mark Wahlberg var nýlega spurður hvort einhver tónlistarmaður gæti fengið hann til að rappa á ný. Wahlberg var sem kunnugt er fyrst þekktur sem rappari hljómsveitarinnar New Kids on the Block og kallaði sig þá Marky Mark.

Lífið

Beckham og Ramsay opna bar

David Beckham hyggst fara út í barrekstur á næstunni og skoðar nú að opna barinn The Queen Vic í Los Angeles. Barinn á að vera í breskum stíl og nafnið er vísun í eiginkonu Beckams, hina snoppufríðu Victoriu.

Lífið

Lily Allen ólétt

Söngkonan og vandræðagemlingurinn Lily Allen á von á barni. Allen sagði fjölskyldu og vinum góðu fréttirnar um síðustu helgi og breska dagblaðið The Sun birti forsíðufrétt um málið í gær.

Lífið

Lily Allen ólétt

Breska söngkonan Lily Allen, 25 ára, er ófrísk af fyrsta barni sínu. Lily Allen og kærasti hennar undanfarið ár, Sam Cooper, tilkynntu í dag að þau eiga von á sínu fyrsta barni. Fjölmiðlafulltrúi parsins send frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: Lily Allen og Sam Cooper tilkynna með ánægju að Lily gengur meðfyrsta barnið þeirra. Dagskrá söngkonunnar mun ekki breytast næstu vikur og mun hún skemmta næstu helgi eins og ákveðið hafði verið.

Lífið

Undirbjó sig alla ævi fyrir hlutverkið

„Þetta var draumur fyir mig því ég hef alltaf viljað leika töframann. Mér finnst eins ég hafi verið að undibúa mig alla ævi fyrir þetta hlutverk," sagði Nicolas Cage leikari spurður út í ævintýramyndina The Sorcerer´s Apprentice sem sýnd er i Sambíóunum og hlutverk hans í myndinni en hann fer með hlutverk galdramannsins Balthazar Blake. „Pabbi reyndi alltaf að opna huga minn gagnvart því sem þig langar að skapa," sagði Nicolas.

Lífið

Paris Hilton söluvænlegt vörumerki

Paris Hilton, 29 ára, á í samningaviðræðum við Macy´s verslanakeðjuna um að setja á markað nýjan ilm sérstaklega hannaðan fyrir ungar konur. Nú þegar hefur Paris markaðssett tíu ilmvötn en ilmurinn hennar Tease er mest selda ilmvatnið í umræddri verslunarkeðju í Bandaríkjunum. Macy´s var að tilkynna mér að Tease ilmvatnið mitt er mest seldi ilmurinn hjá þeim og núna er ég byrjuð að vinna í því að setja ellefta ilmvatnið í mínu nafni á markað," skrifaði Paris á Twitter síðuna sína.

Lífið