Lífið

Klúðraði risavinningi í beinni útsendingu

Félagarnir Steindi og Björn Bragi eru í aðalhlutverki í hljóðbroti úr útvarpsþættinum FM95BLÖ sem nýtur mikilla vinsælda á útvarpsvef Vísis og fer eins og eldur í sinu um netið þessa dagana.

Lífið

Skælbrosandi nýfráskilinn

Leikkonan Lea Michele, 25 ára, og leikarinn Ashton Kutcher, 33 ára, voru brosmild á frumsýningu kvikmyndarinnar New Year's Eve í gærkvöldi...

Lífið

Mugison græjaði fjögur þúsund eintök í Höllinni

Björgvin Halldórsson hertók Laugardalshöllina um helgina með Jólagesti sína. Þegar mest lét voru um 140 manns á sviðinu í einu og því var sægur af fólki baksviðs. Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, Mugison, sá sér þarna leik á borði og fékk tónlistarfólkið til að hjálpa sér að föndra umslög fyrir plötu sína, Haglél.

Lífið

Ný tónlist Jónsa fær glimrandi dóma

Jónsi fær góða dóma á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchfork fyrir tónlist sína við kvikmyndina We Bought a Zoo. Platan fær sjö í einkunn af tíu mögulegum. Gagnrýnandinn segir Jónsa vera undir áhrifum frá sólóplötu sinni Go og að strengja- og lúðraútsetningar Nico Muhly séu smekklegar. Einnig segir hann melódíuna í einu laginu líkjast hinu sígilda jólalagi White Christmas.

Lífið

Myndaði BDSM-fólk í Hamraborg

„Þetta er svolítið öðruvísi en síðasta bók,“ segir Jónatan Grétarsson um nýja ljósmyndabók sína sem fylgir í kjölfar portrettbókar hans af íslenskum listamönnum sem kom út í fyrra.

Lífið

Les óbirtan kveðskap föður síns, Kristjáns Eldjárns forseta

Þórarinn Eldjárn rithöfundur ætlar að flytja óbirtan kveðskap eftir föður sinn, Kristján Eldjárn, forseta Íslands, á vísnakvöldi í Breiðfirðingabúð í kvöld. "Ég var búinn að lofa að mæta á þessa samkomu og fara þar með einhvern kveðskap. Þegar ég áttaði mig á að hana bar upp á afmælisdag föður míns, sem hefði orðið 95 ára í dag, þá fannst mér upplagt að fara með eitthvað eftir hann. Faðir minn orti mikið og þýddi. Minnst af því hefur birst en ég ætla að lesa svolítið úrval af því,“ segir Þórarinn.

Lífið

Hollywoodstjarna með koddann sinn

Gossip Girl stjarnan, Blake Lively, 24 ára, yfirgaf íbúð leikarans Ryan Reynolds, 35 ára, í Boston eldsnemma í gærmorgun með kodda í fanginu eins og sjá má á myndunum...

Lífið

Jolie fílar tengdó

Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, og unnusti hennar Brad Pitt stilltu sér upp á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndarinnar In the Land of Blood & Honey...

Lífið

Þingmenn á stífum dansæfingum

„Þetta verður mjög fróðlegt," segir Ólína Þorvarðardóttir þingkona, sem leggur hart að sér þessa vikuna við að undirbúa hátíðahöld á Degi rauða nefsins, sem haldinn verður með mikilli viðhöfn á föstudaginn.

Lífið

Höfundur Gamlingjans hrærður yfir viðtökunum

„Ég er undir miklum áhrifum frá Njálu og Gunnlaugs sögu ormstungu. Og er þess vegna mjög hrærður yfir vinsældum hennar á Íslandi, það skiptir mig miklu máli að þjóð sem hefur lesið og skrifað bækur í jafn langan tíma og þið skuli kunna að meta hana,“ segir Jonas Jonasson, höfundurbókarinnar Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf. Jonas er höfundarnafn skáldsins, hann heitir réttu nafni Pär-Ola og varð fimmtugur í júlí, er fæddur í Växjö en hefur hreiðrað um sig á Gotlandi.

Lífið

Græðir á óléttunni

Það verður seint sagt að bandaríska söngkonan Jessica Simpson, sem gengur með fyrsta barnið sitt, sé ekki með viðskiptavit...

Lífið

Dorrit á djammi með Pippu

Forsetafrúin Dorrit Moussaieff var smart og elegant þegar skautasvellið í Somerset-menningarmiðstöðinni í London var opnað fyrir skemmstu. Meðal annarra gesta voru Pippa Middleton, systir Kate Middleton, og Judi Dench, sem hefur leikið M í síðustu James Bond-myndum.

Lífið

Ást við fyrstu sýn hjá ritstjóra

"Jú, þetta er frábær auglýsing," segir vöruhönnuðurinn Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir. Fyrir helgi birtist umfjöllun um Not Knot-púða Ragnheiðar á einu af vinsælustu hönnunarbloggum Bandaríkjanna, Design Milk, en daglega sjá á bilinu hálf milljón til tveggja milljóna lesenda efnið sem birtist á síðunni. Það var sjálfur ritstjóri síðunnar sem skrifaði um púðana og sagði það hafa verið ást við fyrstu sýn þegar hún rak aukun í þá. Púðana gerir Ragnheiður úr íslensku einbandi.

Tíska og hönnun

Þorvaldur Davíð andlit nýs herrailms

Þegar við hófum framleiðslu á herrailminum fóru í gang miklar pælingar með hvaða karlmaður yrði andlit ilmsins. Það er enginn annar en sjarmurinn og leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson sem varð fyrir valinu...

Lífið

Púslað með borgarstjóranum í bleikum kjól

Fyrirtækið Puzzled by Iceland hefur bætt við vörulínu sína og er nú hægt að kaupa púsl með mynd af Jóni Gnarr borgarstjóra klæddum í fagurbleikan kjól. Púslið ber heitið Puzzled by People og er hið fyrsta í þeirri línu.

Lífið

Svona færðu hvítar tennur

Förðunarmeistarinn Rúna Kærnested Óladóttir hjá Tannhvíttun með Laser í Reykjanesbæ sýnir í meðfylgjandi myndskeiði hvernig tannhvíttun fer fram...

Lífið

PJ Harvey og Bon Iver best

Erlend tónlistartímarit eru byrjuð að senda frá sér lista yfir bestu plöturnar á árinu. Tónlistarkonan PJ Harvey er á toppnum í Bretlandi en Bon Iver í Bandaríkjunum. Nú er runninn upp sá tími sem erlend tónlistartímarit senda frá sér árlega plötulista sína yfir bestu útgáfurnar. Það kemur vafalítið fáum á óvart að enska tónlistarkonan PJ Harvey er mest áberandi hjá breskum tónlistarspekúlöntum, enda fékk tíunda hljóðsversplata hennar Let England Shake, frábæra dóma á árinu og einnig hin virtu Mercury-verðlaun.

Lífið

Mamma Angelina

Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, leiddi dætur sínar, Zahara og Shiloh, á leið þeirra í leikhús í New York á laugardag. Þá var sonur hennar, Pax, einnig með í för...

Lífið

Íslenski fáninn í X factor

Einhverjir Íslendingar urðu eflaust ánægðir þegar þeir horfðu á síðasta þátt af bandarísku útgáfunni af X factor því í einu atriðinu kom íslenski fáninn ítrekað fyrir. Það fylgir íslensku hugsuninni að fyllast af stolti þegar Ísland kemur fyrir á erlendum vettvangi.

Lífið

Kalt viðmót Kidman

Það fer ekki gott orð af leikkonunni Nicole Kidman á tökustað kvikmyndarinnar Stoker. Viðmót Kidman við samstarfsfólk sitt mun vera svo kaldranalegt að hún er uppnefnd Ísdrottningin.

Lífið

Börn Jackson

Systkinin Paris, Prince, og Blanket Jackson stilltu sér upp saman á rauða dreglinum á frumsýningu söngleiksins Michael Jackson: The Immortal World Tour í Las Vegas...

Lífið

Fær heilu doðrantana með sérþörfum stjarnanna

„Það er ekkert hægt að mauksjóða pasta eða spagettí og hella tómatssósu yfir, það eru gerðar þær kröfur að þetta sé ferskt og bragðgott," segir Guðmundur Kr. Ragnarsson matreiðslumeistari sem sér um að allir fái nóg að borða á tökustað Game of Thrones. Hann segist oft fara hlæja þegar hann sjái menn fá nokkur blöð með sérþörfum stjarnanna. „Ég fæ yfirleitt heilu doðrantana."

Lífið

Engin íslensk jólamynd í ár

Engin íslensk mynd verður frumsýnd um þessi jól. Því verða aðdáendur íslenskra kvikmynda að leita á önnur mið vilji þeir skemmta sér um jólin. Vonir stóðu til að annaðhvort Svartur á leik eða Djúpið yrðu frumsýndar um jólaleytið en ekki verður af því. Baltasar Kormákur, leikstjóri Djúpsins, var ekki viss hvenær frumsýning myndarinnar yrði og var ekki reiðubúinn til að staðfesta endanlega dagsetningu í samtali við Fréttablaðið. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður Svartur á leik ekki frumsýnd fyrr en í mars en myndin er byggð á samnefndri bók Stefáns Mána.

Lífið

Komin lengra á leið

Verið gæti að söngkonan Beyonce sé komin lengra á leið með fyrsta barn sitt og rapparans Jay-Z en áður var haldið.

Lífið