Lífið

Dauðasveitir Hillary Clinton í Kastljósinu

Áhorfendur Kastljóssins í gærkvöldi ráku margir hverjir upp stór augu þegar sýna átti auglýsingu frá stuðningsmönnum Hillary Clinton í umræðu um forkosningar demókrata í Bandaríkjunum.

Lífið

Leitað að börnum fyrir þátt Opruh

Þekkir þú barn eða ungling sem er undabarn, hefur sett heimsmet, eða gert eitthvað undravert? Þáttur Opruh Winfrey leitar nú að afburðabörnum til að fjalla um í þættinum.

Lífið

Létt Bylgjan heiðrar afrekskonu ársins

Létt Bylgjan ætlar að heiðra afrekskonu ársins á konukvöldi sínu næstkomandi sunnudag. Í tilkynningu frá Bylgjunni segir að allir geti farið á netið og komið með hugmyndir um hvaða onu eigi að tilnefna. Hún þurfi alls ekki að vera þjóðþekktur einstaklingur. Konan geti hafa sigrast á erfiðleikum, klifið fjöll, alið upp börn, klárað nám, hlaupið maraþon, sungið í beinni, eða skarað fram úr að öðru leiti.

Lífið

Harry Potter hótað lífláti

Fjórir sérsveitarmenn gæta nú Harry Potter stjörnunnar Daniel Radcliffe öllum stundum, eftir að æstur aðdáandi hótaði honum lífláti. Við tökur á nýjustu Harry Potter myndinni á laugardag þurfti hann að skipta þrisvar sinnum um bíl til að villa um fyrir mögulegum misyndismönnum.

Lífið

Máni er ekki spenntur fyrir sterahlunkum

„Mér finnst leiðinlegt að ég hafi skrifað eitthvað sem ekki mátti spyrjast út varðandi þennan þátt. Þeir sem þekkja mig vita að ég fer ekki að bulla með neitt svona," segir Þorkell Máni Pétursson, útvarpsmaður á X-inu.

Lífið

Cheryl Cole fyrirgefur eiginmanninum

Cheryl Cole hefur ákveðið að fara aftur til eiginmannsins, hins fláráða Ashley Cole. The Sun hefur eftir vini söngkonunnar að hún hafi því ákveðið að fyrirgefa honum einungis mánuði eftir að hann varð uppvís að því að hafa ítrekað haldið framhjá henni.

Lífið

Gillz segir Mána vera skotinn í sér

Þorkell Máni Pétursson útvarpsmaður á X-inu segir á blogginu sínu í dag að hann hafi fyrir því öruggar heimildir að Gillzenegger komi út úr skápnum í þættinum Sjálfstæðu fólki sem verður sýndur þarnæsta sunnudag. Egill Gilzenegger Einarsson segir þetta af og frá.

Lífið

Fáfnismaður trúlofast æskuástinni

„Það er nú kannski best að gera ekkert mikið úr þessu, hafa smá dulúð,“ segir Fáfnismaðurinn Jón Trausti Lúthersson, sem trúlofaðist á dögunum sinni heittelskuðu, Völu Reynisdóttir. Parið tók nýlega saman aftur eftir fimm ára hlé, en þau eiga tvö börn saman, átta og tíu ára.

Lífið

Rafvirki vill kynnast einstæðri milljónamóður

„Óska eftir að kynnast 2 barna móður á höfuðborgarsvæðinu...ps. tölurnar 2,5,13,20,21 þurfa að tengjast henni.“ Svona hljómaði smáauglýsing í Fréttablaðinu í morgun. Þar stendur ennfremur að frekari upplýsingar gefur Ágúst og undir er símanúmer.

Lífið

Demantshringlur og smáhestar fyrir tveggja vikna tvíbura J-Lo

Þó þeir séu ekki orðnir tveggja vikna, eru tvíburar Jennifer Lopez strax farnir að lifa lúxus-lífi. J-Lo hefur að sögn lagt sig alla fram við að veita þeim heilbrigða og hamingjusama æsku. Tvíburarnir hafa sér til aðstoðar listmeðferðarfræðing, nuddara og eiga sitt eigið gjafaherbergi. Þá hefur mamma þeirra látið mála barnaherbergið í ljósbláum og grænbláum tónum, sem eiga að auka greind barnanna.

Lífið

Undirfataverslun gefur flugfarþegum poka

„Ég er alltaf að ferðast með snyrtivörur og það pirraði mig að þurfa að hlaupa hring og borga tíkall fyrir pokann,“ segir Sjöfn Kolbeins hjá undirfataversluninni La Senza. Verslunin hefur ákveðið að gefa flugfarþegum sem ferðast um Flugstöð Leifs Eiríkssonar poka undir snyrtivörurnar.

Lífið

Fiðrildaganga UNIFEM í kvöld!

Í tilefni af Fiðrildaviku UNIFEM efna BAS og UNIFEM til FIÐRILDAGÖNGU miðvikudaginn 5. mars kl. 20:00. Gengið verður frá húsakynnum UNIFEM á mótum Frakkastígs og Laugavegs, niður á Austurvöll.

Lífið

Sokkabandið á Lókal

Leikhópnum Sokkabandinu hefur verið boðið að sýna nýjustu leiksýningu sína, Hér & Nú, á LÓKAL - alþjóðlegu leiklistarhátíðinni sem haldin verður í fyrsta skipti í Reykjavík dagana 5. – 9. mars. Tveimur öðrum íslenskum sýningum var boðið að taka þátt. Erlendu sýningarnar á hátíðinni eru ýmist frá Bandaríkjunum, Frakklandi og Belgíu.

Lífið

Serbíutónleikum Bjarkar var ekki aflýst

Tónleikum Bjarkar á EXIT tónlistarhátíðarinni í Serbíu var ekki aflýst í kjölfar þess að hún hvatti Kosovó til að lýsa yfir sjálfstæði á tónleikum í Tokyo í febrúar. Þetta segir í yfirlýsingu sem tónleikahaldarar sendu Iceland Review.

Lífið

Jordan vill bleika einkaþotu

Glamúrmódelið Jordan er um þessar mundir að versla sér einkaþotu til að ferja fjölskylduna. Þotan er af gerðinni Hawker 900 og kostar 4,5 milljónir punda, eða tæpar sex hundruð milljónir íslenskra króna.

Lífið

Ummæli Bjarkar falla í grýttan jarðveg í Kína

Stuðningsyfirlýsing Bjarkar við sjálfstætt Tíbet á tónleikum hennar í Sjanghæ á sunnudag fer misvel í kínverskan almenning. Stjórnvöld og ríkisreknir fjölmiðlar hafa þagað þunnu hljóði yfir atburðinum, en spjallþræðir á netinu loguðu af reiðum athugasemdum eftir að ummælin láku út.

Lífið

Júróbandið æfir Hey hey hey we say ho ho ho

Júróbandið undirbýr Serbíuför sína af miklum móð, og ætlar sér stóra hluti ytra. „Við ætlum upp úr þessum riðli,"segir Friðrik Ómar Evróvisjónfari, og bætir við að það hafi alltaf verið markmið Júróbandsins að taka þátt í Evróvisjón og sigra.

Lífið

Seldist nærri upp á Clapton á hálftíma

Miðasala á tónleika Eric Clapton í Egilshöllinn hófst klukkan 10:00 í morgun. Klukkan hálf ellefu var búið að selja um átta þúsund miða. Raðir mynduðust fyrir utan afgreiðslustaði. Miðarnir klárast í hádeginu.

Lífið

Andlit Iceland á kafi í kóki

Þrátt fyrir að vera komin fjóra mánuði á leið og bumban sé orðin greinileg sýgur fyrirsætan Kerry Katona kókaín með upprúlluðum 20 dala seðli eins og ekkert sé. Katona, sem er andlit Iceland keðjunnar, fullyrðir við vini sína að ekkert sé að óttast.

Lífið

Sagði krafta aflraunamanna ótrúlega

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, var meðal þúsunda manna sem komu saman til þess að fylgjast með aflraunamönnum á Arnold Scwarzenegger Classic mótinu í Columbus í Ohio um helgina.

Lífið

Björk styður Tíbeta á tónleikum í Sjanghæ

Björk Guðmundsdóttir hvatti til sjálfstæðis Tíbets á tónleikum sem hún hélt í Sjanghæ í Kína á sunnudaginn. Í lokalagi tónleikanna, "Declare independence", hrópaði hún: „Tíbet, Tíbet", en lagið er ákall um að fólk eigi að krefjast sjálfstæðis. Ekki hefur heyrst af viðbrögðum Kínverskra stjórnvalda en sjálfstæðisbarátta Tíbets er viðkvæmt mál þessa dagana, ekki síst í ljósi þess að styttist í Ólympíuleikana í Beijing.

Lífið

Jessica Alba hamast til að losna við óléttuþyngdina

Jessica Alba er kannski komin sex mánuði á leið, en hún ætlar sér alls ekki að líta út fyrir það. Samkvæmt heimildum Life and Style tímaritsins er leikkonan dauðhrædd við að þyngjast á meðgöngunni og æfir því sem aldrei fyrr.

Lífið

Óskarsverðlaunahafi í bobba

Óskarsverðlaunahafinn nýbakaði Marion Cotillard er ekki vinsælasta konan vestanhafs þessa dagana. Ársgamalt viðtal við hana dúkkaði upp á netinu á dögunum, þar sem hún dregur í efa að hryðjuverkamenn hafi staðið fyrir árásinni á tvíburaturnanna þann 11. september 2001.

Lífið

DeGeneres tárast vegna hommafóbíu

Gamanleikkonan og spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres gerði hlé á dagskrá þáttar síns á föstudag til að ræða málefni sem stendur henni nærri, hommafóbíu. Leikkonan átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hún sagði frá Lawrence “Larry” King, 15 ára gömlum dreng sem var myrtur 12. febrúar síðastliðinn vegna þess að hann var samkynhneigður.

Lífið

Britney neitar því að hún sé ófrísk

Britney Spears hefur neitað orðrómi þess efnis að hún beri barn ljósmyndarans Adnan Ghalib undir belti. Heimildarmenn fjölmiðla sem standa nærri söngkonunni segja að hún hafi séð sig knúna til að svara fullyrðingum í þá veru, eftir að Ghalib sagði vinum sínum í Bretlandi að hann yrði brátt faðir. Ghalib er fæddur í Bretlandi.

Lífið

Boy George hélt fylgdarsveini föngnum

Boy George viðurkenndi fyrir rétti í London í gær að hafa haldið fylgdarsveini sínum föngnum, en hélt því jafnfram fram að hann hefði „löggilta afsökun,“ fyrir því samkvæmt heimildum The Mirror. Culture Club söngvarinn sagðist við fyrirtöku saklaust af ólögmætri fangelsun Audun Carlsen í íbúð sinni, en hann mun hafa handjárnað norska fylgdarsveininn við vegginn með heimagerðum handjárnum.

Lífið

Ásdís Rán keppir um milljónirnar

Íslensk fyrirsæta og þriggja barna móðir keppir nú um að komast að í áströlskum raunveruleikaþætti þar sem sigurlaunin eru 1 milljón dollara eða 65 milljónir íslenskra króna. Við lok dags í gær var hún í öðru sæti í keppninni.

Lífið