Lífið

Hvílir bölvun á Bond?

Þá er það opinbert. Það hlýtur að hvíla bölvun á nýjustu Bond-myndinni, Quantum of Solace. Röð slysa hefur dunið á myndinni, og nú var það sjálfur aðalleikarinn sem meiddist.

Lífið

Fyrstu myndir Ásdísar Ránar fyrir Milljón dollara módelleitina

Vefsíðan Saavy.com hefur birt fyrstu myndirnar og kynningarmyndbandið af Ásdísi Rán fyrir The Million Dollar Model Search raunveruleikaþáttinn. Ljóst að hinar stúlkurnar ellefu í þáttunum munu eiga við ramman reip að draga, en aðdáendur Ásdísar fara afar fögrum orðum um myndirnar í athugasemdakerfi síðunnar. Einn lýsir Ásdísi til dæmis sem holdi klæddri fullkomnun.

Lífið

Í skýjunum yfir föðurhlutverkinu

Leikarinn Ben Affleck fær ekki leið á að ræða opinberlega um jákvæðar tilfinningar sínar eftir að Violet, dóttir hans og leikkonunnar Jennifer Garner, fæddist fyrir tveimur árum.

Lífið

Brangelina fær miðil til að innrétta barnaherbergið

Þau Brad Pitt og Angelina Jolie hafa átt í stökustu vandræðum með að innrétta barnaherbergið fyrir tvíburana sína sem væntanlegir eru í heiminn í ágúst. Eins og önnur hver stjarna leituðu þau upprunalega til barnavöruverslunarinnar Petit Trésor í Beverly Hills um aðstoð. Þegar þau gátu svo alls ekki sammælst um hvaða mublur skyldi velja ákváðu þau að leita aðstoðar annars staðar. Hjá miðli.

Lífið

Jane Fonda skilin í fjórða sinn

Ofurskvísan Jane Fonda hefur losað sig við kærasta sína til eins árs. Leikkonan sjötuga sagði á síðasta ári að hún væri yfir sig ástfangin af hinum hálfáttræða Lynden Gillis, en það virðist hafa verið fljótt að ganga yfir.

Lífið

Pamela mætti nakin með afmæliskökuna

Klámkóngurinn Hugh Hefner fékk aldeilis glaðning á 82ja ára afmælisdaginn í apríl. Baywatch stjarnan Pamela Anderson mætti í veisluna, og færði honum afmælisköku - kviknakin.

Lífið

Jennifer Lopez hannar íþróttafatnað

Jennifer Lopez, sem eignaðist nýverið tvíbura með söngvaranum Marc Anthony, ætlar að setja á markað íþróttavörur í eigin nafni. Lopez leitast við að komast í gott form og vill líta skikkanlega út í ræktinni.

Lífið

Robert Downey Jr. þakkar Burger King lífsbjörgina

Iron Man stjarnan Robert Downey Jr. hefur opinberlega þakkað skyndibitakeðjunni Burger King fyrir að aðstoða sig við að koma lífi sínu á réttan kjöl. Árið 2003 var leikarinn djúpt sokkinn í eiturlyfja- og áfengisneyslu. Eitt kvöldið var hann á bíltúr í Kaliforníu, með hrúgur af eiturlyfjum í bílnum, þegar hann ákvað að stoppa á Burger King og seðja sárasta hungrið. Máltíðin fékk hann til að endurmeta líf sitt.

Lífið

Madonna ræður skilnaðarlögfræðing

Orðrómur um yfirvofandi skilnað poppdrottningarinnar Madonnu og leikstjórans Guy Richie virðist ekki vera í neinni rénun. Fyrir skemmstu neituðu þau því alfarið að nokkur vandræði væru í hjónabandinu, en nú er Madonna sögð hafa ráðið sér skilnaðarlögfræðing.

Lífið

Britney spears pantar sér gröf

Söngkonan og vandræðabarnið Britney Spears hefur valið sér legstað við hlið Marilyn Monroe. Spears var á ferð í hinum fræga Hollywood Forever kirkjugarði um helgina. Þegar hún sá gröf Monroe og ítalska leikarans Rudolph Valentinos ákvað hún að akkurat þarna vildi hún eyða eilífðinni.

Lífið

Ekki gott að selja falsaða vöru

"Það er slæmt ef verið er að blekkja neytendur," segir neytendafrömuðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, Doktor Gunni, um fréttir Vísis af starfsaðferðum bakaría og stórmarkaða. Vinsælt bakkelsi er flutt inn frosið frá Danmörku.

Lífið

Jessica Alba gæti selt myndirnar af frumburðinum

Leikkonan Jessica Alba, sem eignaðist litla dóttur um helgina, virðist að eigin sögn vera fyrsta stjarnan sem ekki ætlar að selja myndir ar afkvæmum sínum til slúðurpressunnar. „Ég hef ekki fengið nein tilboð um slíkt - sem ég veit um,“ sagði leikkonan í viðtali við New York Daily News. Þessu eru heimildamenn Msnbc þó ekki sammála.

Lífið

Tori Spelling eignast dóttur

Beverly Hills stjarnan Tori Spelling og Dean McDermott eiginmaður hennar eignuðust sitt annað barn í gær. Þrettán marka hraust og pattaraleg dóttirin var tekin með keisaraskurði á sjúkrahúsi í Los Angeles. Hún hefur hlotið nafnið Stella Doreen McDermott.

Lífið

Paris Hilton söguð í tvennt

Hótelerfinginn Paris Hilton var söguð í tvennt um helgina. Hilton bauð sig fram í verkið hjá sjónhverfingamönnunum Jeff Beacher og Nathan Burton á Mirage hótelinu í Las Vegas. Aðgerðin var þó ekki varanleg, en djammdrottningin var alheil eftir. Að atriðinu loknu sagði Hilton að henni hefði þótt það afar kynþokkafullt að vera söguð í tvennt.

Lífið

Kreppan flækist ekki fyrir í sölu 200 milljóna glæsihýsa

„Eitt glæsilegasta hús borgarinnar teiknað af Skarphéðni Jóhannssyni- sannkallað tímamótaverk. Hér er byggt af djörfung og glæsimennsku, allt sérhannað," segir í lýsingu fasteignasölunnar Remax Torgs á einni veglegustu villu sem sést hefur í fasteignauglýsingum undanfarið.

Lífið

Ásdís Rán vill selja IceModels

„Ég vona bara að ég finni áhugaverðan einstakling með eldmóð sem getur fetað í mín fótspor," segir fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir. Hún auglýsir á blogginu sínu í dag eftir kaupanda að fyrirsætuskrifstofu sinni, IceModels, og umboðinu fyrir Hawaiian tropic og fleiri fyrirsætukeppnir.

Lífið

Ekkert mál að bera brjóstin - myndir

„Nekt fyrir mér er ekki mikið mál ef hún hefur tilgang," svarar Vigdís Másdóttir leiklistarnemi þegar Vísir spyr hana hvort það hafi verið mikið mál að bera brjóstin í þágu listarinnar en hún túlkar ófrjósemi kvenna á ljósmyndasýningunni Egglost sem var opnuð á veitingahúsinu B5 í Bankastræti í gær.

Lífið