Lífið
Sundlaugapartý í Vesturbæ Vestubæingar eru nú á endaspretti söfnunnar fyrir nýju fiskabúri í anddyrir Vesturbæjarlaugarinnar. Mímir-Vináttufélag Vesturbæjar stendur að söfnuninni sem lýkur með veglegri fjölskylduhátíð í lauginni í dag. Lífið 29.8.2009 02:00
Geir í rauða hverfinu í Mosó Öll hverfi Mosfellsbæjar verða skreytt mismunandi litum á hinni árlegu bæjarhátíð sem hófst í gær og lýkur á morgun. Litirnir verða bleikir, bláir, gulir og rauðir eftir því um hvaða hverfi er að ræða. Lífið 29.8.2009 02:00
Mjólkar sig á Hverfisgötu í dag „Báðir synir mínir fæddust fyrir tímann og þurftu því að dvelja á vökudeild Barnaspítala Hringsins eftir fæðingu. Ég gat ekki tekið þá á brjóst og þurfti því að nota mjaltavél við það. Mér þótti þetta svolítið fjarstæðukennt en á sama tíma fannst mér þetta nokkuð myndrænt og mér datt í hug að nota þessa reynslu í gjörning,“ segir Katrín I. Jónsdóttir Hjördísardóttir listamaður, sem verður með allsérstakan gjörning á vinnustofu sinni við Hverfisgötu 61 í dag. Lífið 29.8.2009 01:30
Leita af dönsurum í Spiral „Við erum komin með skýra stefnu um hvað við ætlum að gera og erum að gera heildstæðara „lúkk“ fyrir hópinn,“ segir Unnur Gísladóttir framkvæmdastýra Spiral, fyrrum stúdentadansflokksins. Lífið 29.8.2009 01:15
Stofnar nýja söngleikjadeild „Það er skrítið að þetta skuli ekki vera komið fyrr miðað við vinsældirnar á þessu leiklistarlistarformi," segir Ívar Helgason, söngvari, leikari og dansari. Ívar mun sjá um nýja söngleikjadeild innan Söngskólans í Reykjavík í haust í fyrsta sinn og verða áheyrnarprufur haldnar 2. september. Lífið 29.8.2009 01:00
Foo Fighters með safnplötu Rokkararnar í Foo Fighters ætla að gefa út nýja safnplötu síðar á þessu ári. Platan nefnist einfaldlega Greatest Hits og kemur út 2. nóvember. Á henni verða lög af fjórtán ára ferli Dave Grohl og félaga auk að minnsta kosti tveggja nýrra laga. Lífið 29.8.2009 00:30
Kvíðir bleiuskiptingum Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian, sem á von á sínu fyrsta barni í desember, segist kvíða því einna mest að þurfa að skipta um bleiur. Lífið 29.8.2009 00:30
Elma Lísa á trúnó „Fatamarkaðurinn verður í Félagi íslenskra leikara að Lindargötu 6 fyrir aftan Þjóðleikhúsið," svarar Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona sem ætlar að selja notuð föt og fleira fínerí á morgun. „Markaðurinn byrjar klukkan ellefu á morgun og er opin til sex. Ég og Silja Hauks leikstjóri erum saman að halda þetta," segir Elma Lísa. Hvað ætlið þið að selja? „Fullt af alls konar dótir og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi þarna." Bara fyrir konur? „Nei það verða einhver strákaföt líka. Skór, töskur, glingur og góss og svo er opið hús í báðum leikhúsunum á morgun." „Það er rosa mikið að gera því bæði leikhúsinu verða með opin hús. Hjá okkur verða óvæntar uppákomur, heitt á könnunni og trúnóhorn - og það er ókeypis." Ferðu þá á trúnó? „Já ég get tekið hornið af og til og ráðlagt fólki," svarar hún hlæjandi. Lífið 28.8.2009 12:48
Fá lagahöfunda út úr skápnum Tónlistarhátíðin Melodica Acoustic Festival fer fram um helgina, en þetta mun vera í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. Lífið 28.8.2009 06:00
Raul vill komast í raunveruleikasjónvarp Einkaþjálfarinn Raul Rodriguez, sem var nokkuð áberandi hér á landi um tíma, hefur fundið ástina að nýju. Sú heppna heitir Jorie McDonald og er sundfatafyrirsæta í Los Angeles. Lífið 28.8.2009 06:00
Kate Winslet kemur Kela í heimsfréttirnar „Við réðum sérstaka PR-manneskju fyrir ferð okkar út og hún sendi út litla fréttatilkynningu um að Kate talaði inn á myndina. Hún sagðist aldrei á ævinni hafa fengið önnur eins viðbrögð," segir Margrét Dagmar Ericsdóttir, móðir Kela, sólskinsdrengsins, og framleiðandi heimildarmyndarinnar um hann, Sólskinsdrengurinn. Lífið 28.8.2009 05:15
Q4U nýtur vinsælda í Berlín „Það er komið eitthvað Q4U-költ í Berlín og það veit enginn út af hverju," segir Gunnþór Sigurðsson, bassaleikari pönksveitarinnar Q4U. Lífið 28.8.2009 05:00
Maraþon í hversdagsleika Í gær fóru fyrstu Eðlileikarnir, maraþon í hversdagsleika, fram. Lífið 28.8.2009 04:00
Keppt um Viðeyjarhnossgætið „Við vorum með Töðugjöld í fyrsta sinn í fyrra og þessi keppni er partur af þeirri dagskrá núna á laugardaginn," segir Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og verkefnastjóri Viðeyjar um keppnina um Viðeyjarhnossgætið. Lífið 28.8.2009 03:00
Leika löggur á Broadway Daniel Craig og Hugh Jackman leika löggur frá Chicago í nýju Broadway-leikriti, A Steady Rain, sem verður frumsýnt í New York 29. september. Þetta verður í fyrsta sinn sem Craig stígur á svið á Broadway en hann er þaulvanur því að leika á sviði í London. Lífið 28.8.2009 02:00
Sögufrægir búningar boðnir upp í Þjóðleikhúsinu Opið hús verður í Þjóðleikhúsinu á morgun og af því tilefni verða sögufrægir búningar boðnir upp um þrjúleytið. Lífið 28.8.2009 01:00
Spáir Gaga stuttum ferli Tori Amos spáir því að ferill Lady Gaga verði ekki langur og aðdáendur hennar muni fljótt fá leið á henni. Lífið 28.8.2009 00:30
Sjúk íslensk sunddrottning Vísir hafði samband við Ragnheiði Ragnarsdóttur sunddrottningu til að forvitnast um mataræðið hjá henni og hvað hún gerir til að halda sér í formi. „Ég er að æfa 12 – 13 sinnum í viku og hugsa vel um hvað ég borða. Svo stunda ég Ropeyoga og pilates með sundinu. Ég er með ropeyoga bekk heima og svo fer ég alltaf til Elínar. Kannastu við hana? Hún er með Elín.is,“ svarar Ragnheiður. „Þegar ég er að æfa og er að keppa þá borða ég engan sykur. Ég borða ávexti, grænmeti, steiki til dæmis eggjahvítu á pönnu í morgunmat. Ég borða prótein og kolvetni og fitu í hverri einustu máltið." Af hverju eggjahvítu í morgunmat? „Í eggjahvítu eru góð prótein og fæ mér tómata eða epli með eða hnetur. Ég reyni að blanda réttum fæðutegundunum saman. Ég er með svipað matarprógram og flestir sem eru bestir í sundi í heiminum. Það nægir ekki að borða bara vel daginn fyrir keppni heldur alltaf," segir Ragnheiður. „Svo borða ég prótein í rauninni í hverri máltið eins og kotasælu, skyr, eggjahvítu kjöt og fisk. Svo finnst mér voða gott að fá mér OhYeah próteindrykk með súkkulaðibragði því í honum er mikið prótein og fíla bragðið í tætlur." „Það er algjör misskilningur að borða ekki prótein og það á líka við um fitu. Það á ekki að sleppa góðri fitu eins og ólivuolíu og hnetum - en í hófi. Ég er ekki að meina að háma í sig salthnetur. Óje prótein? „Já. Mér finnst súkkulaðið gott. Þetta OhYeah er algjör snilld og bragðast eins og kókómjólk. Þá fullnægi ég súkkulaðiþörfinni,“ svarar Ragnheiður. Færðu þér nammi? „Sykurneysla er náttúrulega bara venja og sykur er ekki hollur fyrir líkamann í neinu formi. Það er ávaxtasykur í ýmsu eins og nammi og kók eða djús. Ég hef haldið mig frá þessu því það gerir mann bara slappan og þreyttan. Það er engin orka í þessu. Sumir segja allt er gott í hófi en það eru fáir sem geta leyft sér eitt súkkulaði á laugardögum og ekkert meir. En ég viðurkenni að ég fæ mér köku þegar ég er búin með sundmót en ég sleppi sykrinum á meðan ég er að æfa fyrir mót og af því að það er svo óholt fyrir líkamann . Líkaminn veit ekkert hvað hann á að gera við sykurinn. Þetta er bara ávani. Það er ýmislegt sem maður getur fengið sér í staðinn ein og OhYeah til dæmis. Ég borða líka próteinstangir. Það er skárra en að fá sér Snickers.“ Drekkur þú áfengi? „Þegar ég er að æfa og keppa þá held ég mig frá því. En ef ég fer í frí þá fæ ég mér eitt eða tvö rauðvínsglös af og til - kannski með góðri steik. En nei, ég hef enga þörf fyrir áfengi. Ég verð aldrei full. Það eyðileggur alveg æfingarnar og skapið," svarar Ragnheiður. „Ef ég er svöng finnst mér líka ótrúlega gott að setja vanilluskyr frá Kea og með Makademian hnetum út í. Þær eru sjúklega góðar á bragðið." Lífið 27.8.2009 15:30
Michael lifir - myndband Poppgoðið Michael Jackson var með banvænan skammt af deyfilyfinu Propofol í líkama sínum þegar hann lést samkvæmt fréttavef BBC. Þetta kom í ljós eftir að krufningaskýrslur voru gerðar opinberar. Michael lést þann 25. júní síðastliðinn úr hjartaáfalli. Nú hefur komið í ljós að lyfin drógu hann til dauða. Læknirinn hans, Conrad Murray, hefur verið yfirheyrður tvívegis af lögreglunni en hann er ekki kominn með réttarstöðu grunaðs manns samkvæmt fréttavef BBC. Eins og myndbandið, sem fer um internetið eins og eldur í sinu, lítur allt út fyrir að Michael stökkvi út úr sama sjúkrabíl og hann var fluttur af heimili sínu 25. júní síðastliðinn því bílnúmerið er það sama. Lífið 27.8.2009 11:05
Páll Stefáns fær góða aðstoð Nígeríski verðlaunahöfundurinn Chimamanda Ngozi Adichie er meðal þeirra sem skrifa sérstaklega fyrir ljósmyndabók Páls Stefánssonar, Afríka – Fótboltaálfan. Lífið 27.8.2009 06:00
Logi Geirs og Bjöggi láta gott af sér leiða „Ég rakst á frétt á netinu um Alexöndru Líf og hún snerti mig mjög mikið. Þetta er fjölskylda sem hefur þurft að þola ansi mikið og þarf á stuðningi að halda," segir Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska landsliðsins í handbolta og ein af silfurhetjunum. Hann og Logi Geirsson hafa ákveðið að gefa Alexöndru Líf áritaða Silver-landsliðstreyju með áritunum frá öllum leikmönnum handboltalandsliðsins. Þá hafa þeir keypt tíu miða á styrktartónleika Alexöndru. Lífið 27.8.2009 06:00
Hin drungalega Fever Ray Sænska tónlistarkonan Fever Ray hefur hlotið mikið lof fyrir fyrstu sólóplötu sína sem kom út í vor. Margir telja að hún verði ofarlega á listum yfir bestu plötur ársins 2009. Lífið 27.8.2009 06:00
Opnunartónleikar í ömmunni Opnunartónleikar Melodica Acoustic Festival fara fram í versluninni Sexy Grandma í dag. Tónleikarnir verða jafnframt lokatónleikar því verslunin leggur upp laupana á morgun. Lífið 27.8.2009 06:00
Nýtt ár hafið hjá ÍD Djammvika, fjölskyldusýning, ferð til Akureyrar, alþjóðleg samstarfsverkefni og stórsýning með Sinfóníunni eru helstu verkefni Íslenska dansflokksins á sýningarárinu sem nú er að hefjast. ÍD frumsýnir í september Fjölskyldusýningu, brot úr fimm aðgengilegum verkum. Frítt verður inn á sýninguna fyrir börn yngri en 12 ára. Katrín Hall, listrænn stjórnandi flokksins, segir þetta kjörið tækifæri fyrir fjölskylduna að koma saman og upplifa töframátt dansins. Lífið 27.8.2009 06:00
Endurgerir Hring Friðriks Þórs með íslenskri orku Eysteinn Guðni Guðnason kvikmyndagerðarmaður ætlar endurgera mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Hringinn, sem kom út árið 1985. Sú mynd var heldur óvenjuleg því hún var tekin upp í bíl sem ók hringinn í kringum landið án þess að nokkrir leikarar kæmu við sögu. Lífið 27.8.2009 06:00
Bætir tilfinningum við takta Fyrsta plata trommuleikarans Þorvaldar Þórs Þorvaldssonar er komin út. Þorvaldur sækir innblástur sinn í ýmsar tónlistarstefnur, þar á meðal popp, djass og hip-hop, og var platan tekin upp á meðan hann bjó í Bandaríkjunum. Lífið 27.8.2009 06:00
Hundrað útlendingar sóttu um „Þetta er stóraukinn fjöldi,“ segir Garðar Stefánsson sem skipuleggur kvikmyndasmiðju Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem verður haldin í næsta mánuði. Lífið 27.8.2009 05:45
Safna höfuð-leðrum nasista Stríðsmynd Quentins Tarantino, Inglorious Basterds, hefur hlotið mjög góðar viðtökur og er af mörgum talin hans besta mynd í langan tíma. Einkennismerki hans, löng samtöl og blóðug ofbeldisatriði, eru að sjálfsögðu á sínum stað. Lífið 27.8.2009 05:00
Í heimsókn hjá Opruh Söngkonan Whitney Houston ætlar að veita sitt fyrsta langa viðtal í tæp sjö ár í spjallþætti Opruh 14. september. Whitney, sem er 46 ára, ætlar í leiðinni að kynna sína nýjustu plötu, I Look At You, sem er sú fyrsta í sex ár. Lífið 27.8.2009 04:45
Drykkur byrlaður Miðasala á Ástardrykkinn, óperusýningu haustsins hjá Íslensku óperunni, hefst í dag kl. 14. Einungis átta sýningar verða á þessari kunnu gamanóperu en frumsýning er í októberlok. Lífið 27.8.2009 04:15
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist