Lífið

Svona lítur lúsin út

Meðfylgjandi má sjá mynd sem ónefnd móðir í Reykjavík tók af lús sem fannst í hári barnsins hennar. "Hún var dauð í morgun, var lifandi þegar ég fór að sofa um ellefu leytið en þá voru sirka 7 og hálfur tími síðan hún kom úr hausnum á barninu," svaraði hún spurð út í kvikindið. Vert er að taka fram að það er svo nauðsynlegt að fólk leiti og kembi börnunum sínum um leið og tilkynning kemur frá skólunum. Lýsnar vilja vera þar sem heitast er á höfðinu, ef börnin eru með stutt hár þá vill hún dvelja ofan á þar sem mesta hárið er. Stúlkur eru frekar með hana í hnakkanum og þar sem taglið er.

Lífið

760 milljóna hús fyrir mömmu

Poppstjarnan Beyonce hefur verið að skoða glæsilegt hús í heimbæ sínum Houston ef marka má nýjustu fréttir. Húsið kostar 5,9 milljónir dollara, rúmlega 760 milljónir króna.

Lífið

Fótboltagoð í eins náttfötum

Strákarnir í knattspyrnuliðinu Manchester United höfðu það náðugt í löngu flugi til Katar á dögunum. Rauðu djöflarnir ákváðu að klæða sig í stíl – í náttföt með mynd af Kalla kanínu.

Lífið

María Birta flott í tauinu á frumsýningu XL

María Birta virðist vera með buxnadragta-trendið alveg á hreinu, en eins og Lífið greindi nýlega frá verða þær það allra heitasta með vorinu. María tók trendið alla leið og mætti glerfín í buxnadragt frá Kormáki og Skildi, með slaufu og axlabönd á frumsýningu XL um helgina. Lífið heyrði stuttlega í Maríu.

Lífið

Bieber vinsælastur á Twitter

Hinn ungi poppsöngvari Justin Bieber er orðinn vinsælasti maður í heimi á Twitter. Hann skaust fram fyrir söngstjörnuna og Íslandsvinkonuna Lady Gaga í gær, en bæði eru þau með yfir 33 milljónir fylgjenda. Í þriðja sæti kemur síðan söng- og leikkonan Katy Perry sem er með yfir 31 milljón fylgjenda. Bieber fær um 40 þúsund nýja fylgjendur á dag en Gaga um 30 þúsund. Fjöldi fylgjenda á Twitter er sagður ágætis vísbending um vinsældir listamanna almennt.

Lífið

Enn eitt ástarsambandið

Ærslabelgurinn Lindsay Lohan birti mynd af sé á Instagram með Wanted-hönknum Max George fyrir stuttu. Lindsay hefur verið lengi á eftir Max og virðist loksins hafa klófest hann.

Lífið

Stjörnurnar á Sundance kvikmyndahátíðinni

Sundance kvikmyndahátíðin stendur nú yfir í Utah í Bandaríkjunum, en það sem skilur hana frá mörgum öðrum slíkum hátíðum er að hún er mun látlausari en gengur og gerist. Stjörnurnar koma ekki uppstrílaðar á viðburði heldur eru þær hversdagslega klæddar, sem er skemmtileg tilbreyting. Við skulum skoða nokkur dæmi.

Lífið

Þekkir þú þennan páfagauk?

Meðfylgjandi mynd var tekin af páfagauk sem fannst í dag við Hesthamra í Grafarvoginum. Fólk er beðið að deila myndinni svo eigandinn finnist sem fyrst. Hafðu samband við okkur á netfangið ritstjorn@visir.is ef þú veist hver eigandinn er.

Lífið

Fjör á frumsýningu XL

Kvikmyndin XL var frumsýnd í Kringlubíói á föstudaginn. Þangað mættu leikarar myndarinnar og aðstandendur hennar og sáu afraksturinn á hvíta tjaldinu.

Lífið

Nýr skemmtistaður opnar í Austurstræti

Skemmtistaðurinn Loftið opnaði formlega á efri hæð Austurstrætis 9 á föstudaginn var í sama húsnæði og áður hýsti verslunina Egil Jacobsen og veitingastaðinn La Primavera. Verslunin Egill Jacobsen var stofnuð af dönskum kaupmanni árið 1906 og í eigu sömu fjölskyldu allt til ársins 1997. Eins og sjá má á myndunum sem Sigurjón Ragnar ljósmyndari tók voru gestir áberandi kátir enda andrúmsloftið afslappað og rómantískt.

Lífið

Kominn í 380 þúsund á eBay

Hæsta boðið í klapptréð sem aðstandendur kvikmyndarinnar Django Unchained árituðu fyrir Guðmund Felix Grétarsson er um 380 þúsund krónur á uppboðssíðunni eBay.

Lífið

Fékk nóg af útlitsdýrkun í fjölmiðlum

,,Mér ofbýður útlitsdýrkunin sem ríkir í fjölmiðlum og þetta er málefni sem ég hef lengi hugsað um. Ég veit ekki hver ákvað að fólk vildi eingöngu sjá konur í sjónvarpi sem uppfylla einhver ákveðin útlitsskilyrði. Umræðan og gagnrýnin sem verður til í hvert skipti sem einhver kona reynir að storka þessum gildum er mér alveg óskiljanleg, mér finnst skrýtið að til sé fólk sem vill koma í veg fyrir að jákvæðar og þarfar breytingar eigi sér stað í þessum efnum".

Lífið

Hommasenurnar lítið mál

Breski leikarinn Daniel Radcliffe, sem flestir þekkja úr kvikmyndunum um galdradrenginn Harry Potter, skilur ómögulega viðbrögð áhorfenda við kynlífssenum nýjustu myndar hans, Kill Your Darlings.

Lífið

Óþægilegra verður það ekki

Kryddpían Mel B lenti í afar vandræðalegu atviki um helgina þegar hún og eiginmaður hennar Stephen Belafonte stoppuðu á bensínstöð í Los Angeles til að fylla tankinn.

Lífið

Léttklædd eftir sambandsslit ársins

Poppstjarnan Britney Spears fer sko ekki í felur þó að hún sé nýhætt með unnusta sínum Jason Trawick. Hún spókaði sig um í Los Angeles um helgina í afar efnislitlum kjól.

Lífið

Stúdentakjallararinn á nýjum stað

Innangengt er á barinn frá Háskólatorgi, auk þess sem hægt er að ganga inn á hann beint af götunni. Opið er frá 11 til 23 alla daga nema fimmtudaga og föstudaga, þegar opið er til eitt, og þrátt fyrir að markhópurinn sé háskólanemar er staðurinn opinn öllum.

Lífið

Sjónvarpsstjarna fékk gat á hausinn

Sjónvarpskonan heimsfræga, Barbara Walters, var lögð inn á spítala í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, um helgina. Ástæðan er sú að hún datt og fékk skurð á höfuð við breska sendiherrabústaðinn þar í borg.

Lífið

Vildi að ég fengi aðeins meiri bollukinnar

Ég horfði á 2-3 japanskar myndir og nokkrar mjög þungar og dramatískar myndir og svo reyndi ég hvað ég gat að fitna, en Matti vildi endilega að ég fengi aðeins meiri bollukinnar, það tókst...

Lífið

Bieber hneykslar

Ungstirnið Justin Bieber kemur sífellt á óvart þessa dagana. Heimsbyggðin nötraði þegar myndir náðust af Justin reykja jónu fyrir stuttu og ekki skánaði ástandið þegar fyrrverandi lífvörður hans kærði hann fyrir líkamsárás.

Lífið

Borgaði fjórar milljónir fyrir soninn

Elton John er ein ríkasta stjarna Bretlands en hann eignaðist nýverið soninn Elijah með sambýlismanni sínum David Furnish. Parið nýtti sér þjónustu staðgöngumóður og borguðu þeir tuttugu þúsund pund fyrir aðstoðina, rúmar fjórar milljónir króna.

Lífið

Götutískan á tískuvikunum

Herratískuvikurnar hafa verið í fullum gangi síðustu vikur, en þar fengum við að sjá hvað koma skal næsta haust og vetur. Það er þó ekki síður gaman að fylgjast með hvernig fólkið sem sækir sýningarnar klæðir sig á götum úti. Hinn þekkti götuljósmyndari Tommy Ton tók þessar myndir í Mílanó og París fyrir Style.com á síðustu dögum.

Lífið

Fjöldi glæsikvenna í Keflavík

Fjöldi glæsilegra kvenna mættu í sérstakt konuboð Ragnheiðar Elínar Árnadóttur í kosningamiðstöð hennar í Keflavík á föstudaginn var en Ragnheiður býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Eins og sjá má á myndunum var stemningin góð á meðal kvennanna.

Lífið

TREND - Buxnadragtir heitar í sumar

Buxnadragtir verða það heitasta í sumar. Þær sáust á tískupöllunum hjá öllum helstu hönnuðum í fjölmörgum sniðum og litum. Stjörnurnar, sem eru oftast með tærnar þar sem aðrir hafa hælanna hvað varðar tísku, eru nú þegar búnar að tileinka sér þessa tísku og síðustu vikur hafa margar af best klæddu konum heims sést í drögtum. Við skulum sjá hvernig þeim tókst til:

Lífið

Sérðu þetta Bieber?

Selena Gomez byrjaði ferilinn sem Disney-stjarna en hefur mikið verið á milli tannanna á fólki síðan hún hætti með ungstirninu Justin Bieber.

Lífið

Óþægilegt að afklæðast

Þúsundþjalasmiðurinn Jennifer Lopez ljómaði í húðlituðum kjól er hún mætti í viðtal til Jimmy Kimmel fyrir suttu. Þar talaði hún um nýjustu mynd sína Parker og hvað henni fannst um að afklæðast fyrir framan karakterinn sem leikinn er af Jason Statham.

Lífið

Mig langar svo í litla stelpu

Leik- og söngkonan Jennifer Hudson var hress og glöð þegar myndir voru teknar af henni á Sundance-kvikmyndahátíðinni þegar nýjasta mynd hennar The Inevitable Defeat of Mister and Pete var sýnd.

Lífið

Ég sef hjá honum þegar hann vill

Kántrísöngkonan LeAnn Rimes opnaði sig upp á gátt við fréttakonuna Nancy O'Dell hjá Entertainment Tonight. Hún tjáði sig til dæmis um hjónaband sitt og Eddie Cibrian en þau fagna tveggja ára brúðkaupsafmæli í apríl.

Lífið