Lífið

Heimsfræg krúttsprengja

Nýbökuðu foreldrarnir Shakira og Gerard Pique deildu mynd af syni sínum, Milan Pique Mebarak í gegnum UNICEF-heimasíðuna fyrir stuttu en snáðinn er tveggja vikna.

Lífið

Stjörnurnar styðja dag rauða nefsins

Stjörnuhönnuðurinn og bítladóttirin Stella McCartney hefur hannað línu af stuttermabolum til styrktar dags rauða nefsins. Bolirnir eru fimm talsins og þá prýða myndir af frægum einstaklingum í gegnum tíðina, svo sem Bítlarnir, Marilyn Monroe og Kate Moss, öll að sjálfsögðu með rauð nef. Bolirnir eru framleiddir í Afríku úr 100% lífrænni bómull.

Lífið

Kjósum Sollu Eiríks til sigurs

Solla Eiríks eigandi Gló er hráfæðiskokkur á heimsmælikvarða. Hún er tilnefnd sem besti hráfæðiskokkurinn á hátíð sem ber yfirskriftina "2012 Best of Raw People Awards" á vefsíðunni Bestofrawfoods.com. Nú þegar Solla er komin í úrslit er mál fyrir lesendur Lífsins að styðja hana heilshugar með því að smella HÉR. Hér má sjá myndir sem teknar voru í 50 ára afmæli Sollu árið 2010 á veitingastaðnum hennar og Elíasar Gló.

Lífið

Fleiri myndir frá atriðunum á Super Bowl

Söngkonan Beyonce stóð við stóru orðin með stórbrotnu atriði í hálfleik á Super Bowl, úrslitaleiknum í NFL-deildinni og einum stærsta íþróttaviðburði vestanhafs. Beyoncé flutti úrval laga sinna og allt ætlaði um koll að keyra þegar þær Kelly Rowland og Michelle Williams, sem eitt sinn mynduðu sveitina Destiny's Child ásamt Beyoncé, komu saman á nýjan leik í miðju atriðinu. Það var svo söngkonan Alicia Keys sem söng þjóðsönginn og Jennifer Hudson kom einnig fram fyrir leikinn. Baltimore Ravens fóru með sigur af hólmi í leiknum.

Lífið

Er þessi líkami 44ra ára?

Danska fyrirsætan Helena Christensen er búin að hanna nýja nærfatalínu fyrir Triumph. Helena módelar nærfötin að sjálfsögðu sjálf og er í fáránlega góðu formi.

Lífið

Baksviðs með Beyoncé

Meðfylgjandi myndir voru teknar í nótt eftir frábæra frammistöðu Beyoncé Knowles á úrslitaleiknum í NFL baksviðs. Eins og sjá má tók eiginmaður söngkonunnar, tónlistarmaðurinn Jay-Z, á móti henni opnum örmum.

Lífið

Barnaveisla hjá Playboy-kanínu

Holly Madison, fyrrverandi Playboy-kanína, hélt barnaveislu um helgina en hún á von á sínu fyrsta barni innan skamms með kærastanum Pasquale Rotella.

Lífið

Fjölmenni tók á móti Vilborgu pólfara

Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Anton Brink þegar Vilborgu Örnu pólfara var fagnað í Hörpu. Móttakan var fjölsótt, þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ákveðið að heiðra hana með hríðarbyl. "Allir voru svo glaðir og stoltir af þessari ótrúlegu konu sem lét draum sinn rætast, draum sem er örugglega martröð fyrir flesta aðra," sagði Kolbrún Björnsdóttir fjölmiðlakona sem tók á móti Vilborgu ásamt fjölda manns.

Lífið

Vill hún Bieber aftur?

Myndir náðust af ungstirninu Selenu Gomez fyrir utan heimili popparans Justins Bieber í Los Angeles um helgina. Stutt er síðan parið hætti saman – ætli loginn lifi enn?

Lífið

Ofboðslega er hún grönn

Það er ekki sjón að sjá leikkonuna Denise Richards þessa dagana. Hún virðist vera búin að leggja mikið af uppá síðkastið og er orðin hættulega mjó.

Lífið

Húrrandi hamingja í Hörpu

Meðfylgjandi myndir tók Valgarður Gíslason ljósmyndari í Hörpu í gærkvöldi þegar ljóst var að tvö lög, lögin Ég á líf og Ég syng, kepptu um sigurinn í Söngvakeppni Sjónvarpsins.

Lífið

Kaupir hús Óskarsverðlaunahafa

Leikarinn Jason Bateman er búinn að kaupa hús í Los Angeles sem var eitt sinn í eigu Óskarsverðlaunahafans Ernest Borgnine sem lést á síðasta ári vegna nýrnabilunar.

Lífið

Glænýtt stjörnubarn

Idol-stjarnan Danny Gokey og eiginkona hans Leyicet eignuðust soninn Daniel Emanuel þann 20. janúar. Þau eru strax búin að setja mynd af litla gullinu í blöðin.

Lífið

Já, ég er trúlofuð

Leikkonan Christina Ricci er búin að trúlofa sig. Sá heppni heitir James Heerdegen og er kvikmyndatökumaður.

Lífið

Dagurinn sem Whitney dó

Dave Grohl, Katy Perry og Taylor Swift eru á meðal tónlistarmanna sem ræða um daginn sem Whitney Houston dó í nýrri heimildarmynd um söngkonuna.

Lífið

Héldu upp á útkomu Flowers

Í tilefni af útgáfu þriðju plötu Sin Fang, Flowers, var haldið útgáfuhóf á skemmtistaðnum Harlem. Þar þeytti Sin Fang sjálfur skífum fyrir gestina og hélt uppi góðri stemningu.

Lífið

Japanar hrifnir af Farmers Market

„Við vorum að fá þær fréttir að salan á Farmers Market í Japan hafi gengið mjög vel í haust sem er auðvitað hið besta mál,“ segir Jóel Pálsson hjá Farmers Market sem þessa dagana er á flakki milli tískuvikna út í heimi.

Lífið

Jim Carrey sem bankaræningi

Jim Carrey er sagður ætla að leika í myndinni Loomis Fargo sem er sannsöguleg og fjallar um bankastarfsmann sem ákveður að ræna vinnuveitanda sinn.

Lífið

Mætti í draggi í áheyrnarprufu

Steven Tyler, söngvari Aerosmith, mætti óvænt í draggi í áheyrnarprufu fyrir American Idol. Tyler, sem er nýhættur sem dómari í keppninni, mætti með ljósa hárkollu, andlitsfarða, í stuttu pilsi og með gervibrjóst.

Lífið

Hún er ógeðsleg mannvera

Poppsöngkonan Lady Gaga stendur í ströngu þessa dagana en fyrrverandi aðstoðarkona hennar, Jennifer O'Neill, kærði hana fyrir að borga sér ekki yfirvinnutíma sem hún hafði unnið.

Lífið

Ofsalega flókin saga

Fjallað verður um hvarf Valgeirs Víðissonar í næsta þætti af Mannshvörfum á Íslandi á Stöð 2 á sunnudagskvöld.

Lífið

Syngur í brúðkaupinu

Popparinn Robbie Williams ætlar að syngja í brúðkaupi föður síns, Pete Conway. Hann gengur að eiga suður-afríska unnustu sína, hina 38 ára Melanie Mills, á næstunni. Hinn 64 ára Conway bar upp bónorðið í Möltu á síðasta ári eftir tveggja ára samband.

Lífið

Hann er frægðarsjúkur

Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian vandar NBA-stjörnunni Kris Humphries ekki kveðjurnar. Kris kvæntist systur Khloe, Kim árið 2011 og standa enn yfir hatrammar deilur um skilnaðinn.

Lífið

Fjölbreyttur fatamarkaður á Kaffibarnum

Í dag á milli 15.00 og 19.00 verður fatamarkaður á Kaffibarnum þar sem fjölbreytileikinn mun ráða ríkjum. Agnes Björt Andradóttir, söngkona hljómsveitarinnar Sykurs, ætlar að selja af sér klæðin ásamt fleirum, en hún er þekkt fyrir skemmtilegan og öðruvísi stíl bæði hversdagslega og þegar hún kemur fram.

Lífið

Barnalán hjá stjörnupari

Suðræna stjörnuparið Penelope Cruz og Javier Bardem eiga von á sínu öðru barni saman. Penelope og Javier giftu sig árið 2010 heima hjá vinum sínum á Bahama-eyjum.

Lífið

Vill ekki fá Stewart í heimsókn

Leikarinn Robert Pattinson hefur tjáð kærustu sinni, Kristen Stewart, að hafa ekki fyrir því að heimsækja sig til Ástralíu. Þar er Pattinson staddur við tökur á myndinni The Rover en samkvæmt blaðinu Star Magazine ku Pattinson vera að skemmta sér vel milli taka.

Lífið