Lífið

Fjölmenni tók á móti Vilborgu pólfara

Ellý Ármanns skrifar
Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Anton Brink í gær þegar Vilborgu Örnu pólfara var fagnað í Hörpu. Móttakan var fjölsótt, þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ákveðið að heiðra hana með hríðarbyl.

"Allir voru svo glaðir og stoltir af þessari ótrúlegu konu sem lét draum sinn rætast, draum sem er örugglega martröð fyrir flesta aðra," sagði Kolbrún Björnsdóttir fjölmiðlakona sem tók á móti Vilborgu ásamt fjölda manns.

Ólafur Ragnar Grímsson skoraði á Jóhönnu Sigurðardóttur og Jón Gnarr að gera Vilborgu kleift að fara í grunnskólana og ræða við ungu kynslóðina. Forsætisráðherrann og borgarstjórinn tóku þeirri áskorun vel.

Frábærar konur frá Styrktarfélaginu Líf heiðruðu Vilborgu og þökkuðu mikið og fallega fyrir stuðninginn við félagið. Jóhanna uppskar mikið klapp þegar hún tilkynnti að ákveðið hefði verið á ríkisstjórnarfundi að styrkja Líf um þrjár milljónir

Magni tók nokkur vel valin lög fyrir viðstadda.

Hér er Vilborg ásamt Kolbrúnu Björnsdóttur fjölmiðlakonu og Dorrit. Ólafur Ragnar tók myndina af þeim á síma Kolbrúnar sem gaf okkur leyfi til að birta hana.
Búnaður Vilborgar sem hún hafði með sér á pólinn var til sýnis og einnig bangsarnir sem kúrðu inni í tjaldinu hennar en hún tók þá í alvörunni með.

"Jón Gnarr kom öllum til að hlæja eins og honum er lagið þegar hann sagði frá markmiði sínu á yngri árum. Hann ætlaði nefnilega að vinna í sirkus þegar hann yrði stór. Svo líkti hann Vilborgu við ísbjörn en við vitum öll hversu hrifinn hann er af þeim dýrum," sagði Kolbrún jafnframt þegar við báðum hana að segja okkur frá móttökunni.

Myndir/Anton Brink





Fleiri fréttir

Sjá meira


×