Erlent
Leitarhundar fundu einn látinn til viðbótar Leitarhundar hafa fundið lík einnar manneskju til viðbótar eftir leirskriðurnar í Ask í Noregi. Roy Alkvist, sem stjórnar leitinni fyrir hönd lögreglu, segir að svo stöddu ekki hægt að veita upplýsingar um aldur eða kyn hins látna. Erlent 2.1.2021 13:33
Bólusetti kærastann og fékk bónorð í leiðinni Robby Vargas-Cortes, sem starfar sem yfirmaður sjúkraflutninga, kom kærasta sínum, hjúkrunarfræðinginum Eric Vanderlee, heldur betur á óvart þegar hann mætti til hans til að fá bóluefni gegn covid-19. Vargas-Cortes mætti í bólusetningu á Þorláksmessu til Vanderlee, sem starfar sem hjúkrunarfræðingur í Canton í Suður-Dakóta í Bandaríkjunum. Erlent 2.1.2021 13:04
Nokkur hundruð lögreglumenn þurfti til að binda enda á partýið Vösk sveit nokkur hundruð lögreglumanna batt í dag enda á gríðarlega fjölmennt partý sem haldið var í yfirgefinni vöruskemmu í grennd við Rennes í Frakklandi. Erlent 2.1.2021 12:51
Bóluefni Moderna verði samþykkt í Evrópu á mánudaginn Richard Bergström, bóluefnastjóri Svíþjóðar, segir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins muni veita samþykki fyrir bóluefni Moderna gegn covid-19 á mánudaginn og að fyrstu skammtarnir verði komnir til Svíþjóðar innan tveggja vikna að því er SVT greinir frá. Ísland hefur gert samning um kaup á 128 þúsund skömmtum af bóluefni frá Moderna, í gegnum Svíþjóð, en það ætti að duga til að bólusetja 64 þúsund manns á Íslandi. Erlent 2.1.2021 11:56
Lögsókn sem átti að heimila Pence að hafna kjörmönnum hent út Alríkisdómari í Texas hefur hafnað lögsókn fulltrúadeildarþingmanns Repúblikana og samflokksmanna hans í Arizona sem miðaði að því að heimila varaforseta Bandaríkjanna að hafna atkvæðum ákveðinna kjörmanna í forsetakosningunum ytra. Erlent 2.1.2021 10:37
Stækka leitarsvæðið og vonast enn til að finna fólk á lífi Björgunaraðilar í Noregi munu stækka leitarsvæðið í sárinu sem leirskriðan við bæinn Ask í Noregi skildi eftir sig í síðustu viku. Erlent 2.1.2021 08:58
Geta ekki stöðvað ólöglegt partý þar sem þúsundir hafa komið saman Lögreglunni í Frakklandi hefur reynst erfitt að stöðva fjölmennt en ólöglegt partý í grennd við borgina Rennes í Frakklandi, sem staðið hefur yfir frá því á fimmtudag. Erlent 2.1.2021 08:08
Segir skilið við flokkinn og gerist óháður þingmaður Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur og formaður Venstre, stærsta hægriflokks landsins, hefur ákveðið að skrá sig úr flokknum. Rasmussen situr enn á þingi og verður því að óbreyttu óháður þingmaður út kjörtímabilið. Erlent 2.1.2021 07:57
„Við viljum fá að vita hvers vegna ljúfi sonur minn er skotinn og drepinn“ Lögregla í Minneapolis í Bandaríkjunum hefur birt upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna sem skutu Dolal Idd, svartan mann á þrítugsaldri, til bana á miðvikudag. Þetta er í fyrsta sinn sem lögregla í Minneapolis drepur mann frá því að George Floyd lést í maí. Erlent 1.1.2021 23:26
Íranir færa út kvíarnar í úranauðgun Íranir hyggjast hefja framleiðslu á 20 prósenta auðguðu úrani sem brýtur í bága við alþjóðlegan kjarnorkusamning sem undirritaður var af ríkinu árið 2015. Erlent 1.1.2021 22:20
BioNTech í kapphlaupi til að fylla upp í ESB-gatið Stjórnendur þýska lyfjafyrirtækisins BioNTech gagnrýna Evrópusambandið fyrir seinagang í pöntunum á bóluefni fyrirtækisins og Pfizer. Þeir segja fyrirtækin nú leggja allt kapp á að auka framleiðsluna til að brúa bilið sem seinagangurinn, og of mikið traust ESB til annarra framleiðenda, hafi búið til. Erlent 1.1.2021 21:06
Bandaríkjaþing virðir neitun Trumps að vettugi Bandaríska þingið hefur ákveðið að þvinga í gegn frumvarpi um fjárveitingar til varnarmála þrátt fyrir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi beitt neitunarvaldi sínu og neitað að skrifa undir lögin. Erlent 1.1.2021 20:21
Birta nöfn allra sem saknað er í Ask Norska lögreglan birti í dag nöfn þeirra sem saknað er eftir að leirskriður féllu á bæinn Ask aðfaranótt miðvikudags. Á meðal þeirra sem saknað er eru tvö börn, tveggja og þrettán ára, auk mæðgina á sextugs- og þrítugsaldri. Erlent 1.1.2021 19:35
Bretar formlega gengnir úr Evrópusambandinu Bretland hefur formlega segið skilið við Evrópusambandið en Bretar yfirgáfu innri markað sambandsins og tollabandalagið klukkan ellefu í gærkvöldi. Þetta markar nýtt tímabil í sögu Bretlands en það hefur verið aðili að Evrópusambandinu, og þar áður Evrópubandalaginu, frá 1. janúar 1973. Erlent 1.1.2021 15:21
Handtekinn grunaður um að spilla bóluefni viljandi Lyfjafræðingur í Wisconsin í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn fyrir að eyðileggja hundruð skammta af bóluefni Moderna við Covid-19, með því að geyma þá við stofuhita í tvær nætur. Erlent 1.1.2021 10:40
Tíu enn saknað eftir leit í nótt Tíu er enn saknað í norska bænum Ask, þar sem gríðarlegar leirskriður féllu í fyrrinótt. Leitarhundur ásamt þjálfara, voru látnir síga niður úr þyrlu á hamfarasvæðinu í nótt til að meta aðstæður og leita að fólki. Enginn fannst í aðgerðinni. Erlent 31.12.2020 09:34
Einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna látinn Samuel Little, einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna, lést í gær á sjúkrahúsi í Kaliforníu. Little játaði á sig yfir níutíu morð víðsvegar um Bandaríkin og var dæmdur í margfalt lífstíðarfangelsi. Erlent 31.12.2020 08:50
Grænland lokað næstu tvær vikur Grænlenska landsstjórnin hefur bannað allt farþegaflug til Grænlands næstu tvær vikur, til 12. janúar. Aðeins verður leyft farþegaflug á vegum stjórnvalda og neyðarflug. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem Kim Kielsen forsætisráðherra og Henrik L. Hansen, landlæknir Grænlands, héldu í Nuuk í gær. Erlent 31.12.2020 06:12
Hundrað þúsund lögreglumenn munu koma í veg fyrir samkomur Yfirvöld í Frakklandi hafa ákveðið að setja hundrað þúsund lögreglumenn í viðbragðsstöðu á gamlárskvöld til þess að sporna gegn samkomum og fögnuðum. Útgöngubann er í gildi frá klukkan 20 og mun lögregla vera með sýnilega viðveru á almenningssvæðum. Erlent 30.12.2020 23:39
Þingmenn munu neyðast til að taka afstöðu með eða á móti Trump Öldungadeildarþingmaðurinn Josh Hawley greindi frá því í dag að hann hygðist mótmæla þegar Bandaríkjaþing „telur“ kjörmannaatkvæðin eftir forsetakosningarnar 6. janúar næstkomandi. Erlent 30.12.2020 23:04
Baráttunni „engan veginn lokið“ í Bretlandi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur biðlað til landsmanna að halda sig heima um áramótin og sýna þolinmæði. Baráttunni væri „engan veginn lokið“ þar sem veiran væri í mikilli útbreiðslu, þá sérstaklega vegna nýja afbrigðisins sem hefur hingað til verið kennt við Bretland. Erlent 30.12.2020 21:06
Stjórnvöld hunsa ráðleggingar sérfræðinga um sykur- og alkóhólneyslu Bandarísk stjórnvöld hunsuðu ráðleggingar vísindamanna þegar ný viðmið um ráðlagða dagskammta voru gefin úr. Ráðgjafanefnd hafði mælt með því að ráðlögð neysla sykurs og alkóhóls yrðu minnkuð en ekki var farið að tillögum nefndarinnar. Erlent 30.12.2020 20:41
Yfirvöld í Essex lýsa yfir neyðarástandi: Óska eftir aðstoð frá hernum Neyðarástand er að skapast í Essex vegna Covid-19 faraldursins og hafa yfirvöld á svæðinu biðlað til breska hersins um aðstoð. Essex er á efsta viðbúnaðarstigi en ástandið er hvergi verra á Englandi heldur en í suðurhluta sýslunnar. Erlent 30.12.2020 18:38
Fimmtán enn saknað í Ask Fimmtán er enn saknað eftir að stærðarinnar leirskriður féllu í nótt í bænum Ask í Noregi. Erlent 30.12.2020 17:16
Mæla með frekari grímunotkun í ljósi metfjölda dauðsfalla Yfirvöld í Svíþjóð lögðu til í dag að farþegar almenningsamganga notuðust við grímur á háannatíma. Það yrði væri gert til að sporna gegn mikilli dreifingu nýju kórónuveirunnar. Svíar tilkynntu í dag að 8.846 hefðu greinst smitaðir nýverið og voru 243 ný dauðsföll tilkynnt. Erlent 30.12.2020 16:09
Skriða féll hundrað metrum frá heimili Hafdísar Íslensk kona sem búsett er í norska bænum Ask þar sem aurskriður féllu í nótt lýsir því að skriða hafi fallið um hundrað metrum frá heimili hennar í bænum. Uggur sé í bæjarbúum en þeir standi saman í hamförunum. Erlent 30.12.2020 15:27
Breska þingið samþykkir viðskiptasamning við ESB Breska þingið samþykkti nú rétt í þessu viðskiptasamning breskra stjórnvalda og Evrópusambandsins. 521 þingmaður greiddi atkvæði með samningnum en 73 gegn honum. Erlent 30.12.2020 15:02
Meint fjársvik Navalní til rannsóknar í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi opnuðu í gær rannsókn sem snýr að meintum fjársvikum stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní. Hann er sagður grunaður um að hafa notað persónulega um 600 milljónir króna sem hann safnaði meðal annars til and-spillingar stofnunar sinnar. Erlent 30.12.2020 14:39
Deilurnar um ávísanirnar halda áfram Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, kom sér undan því í gær að halda atkvæðagreiðslu um það að senda hverjum Bandaríkjamanni tvö þúsund dala ávísun. Frumvarpið hefur áður verið samþykkt í fulltrúadeildinni, þar sem Demókratar eru í meirihluta. Þar að auki hafði Donald Trump, fráfarandi forseti, krafist þess að frumvarp þar að lútandi yrði samþykkt. Erlent 30.12.2020 13:45
Mannfall eftir sprengjuárás á flugvelli í Jemen Fimm manns hið minnsta eru látnir og fjöldi særður eftir sprengjuárás á flugvelli í jemensku hafnarborginni Aden í morgun. Sprengingar heyrðust og skotið var úr byssum á flugvellinum skömmu eftir að flugvél með nýrri ríkisstjórn landsins lenti á flugvellinum eftir að hafa komið frá Sádi-Arabíu. Erlent 30.12.2020 13:30