Erlent „
Hún er bara krakki!“: Sextán ára svört stúlka skotin til bana af lögreglumanni Lögreglumaður skaut sextán ára gamla svarta stúlku til bana í Ohio í Bandaríkjunum í gær. Að sögn fjölskyldu stúlkunnar hafði hún hringt eftir aðstoð þegar hópur „eldri krakka“ veittist að henni. Erlent 21.4.2021 07:26
Derek Chauvin fundinn sekur um morðið á George Floyd Kviðdómarar í Minneapolis í Bandaríkjunum hafa fundið fyrrverandi lögregluþjóninn Derek Chauvin sekan um morðið á George Floyd. Myndbönd af dauða Floyd í haldi lögreglu fóru eins og eldur í sinu um Bandaríkin og leiddu til umfangsmikilla mótmæla og jafnvel óeirða. Erlent 20.4.2021 21:08
Segir sönnunargögnin í máli Chauvin yfirþyrmandi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir sönnunargögnin í máli fyrrverandi lögregluþjónsins Derek Chauvin fyrir meint morð hans á George Floyd, vera „yfirþyrmandi“. Forsetinn ræddi við fjölskyldu Floyd í síma í dag. Erlent 20.4.2021 16:33
Blóðtappar skráðir sem afar sjaldgæf aukaverkun Janssen bóluefnisins Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur gefið út að blóðtappar skuli vera skráðir sem afar sjaldgæf aukaverkun bóluefnis Janssen gegn kórónuveirunni. Telur EMA að hugsanleg tengsl séu milli bólusetningar með efninu og mjög sjaldgæfra tilfella blóðtappa, líkt og í tilfelli bóluefnis AstraZeneca. Erlent 20.4.2021 14:39
Telja losun færast í fyrra horf strax á þessu ári Tímabundinn samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna kórónuveirufaraldursins í fyrra gengur nær algerlega til baka á þessu ári ef marka má spá Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA). Útlit er fyrir mestu aukningu í losun á milli ára í meira en áratug. Erlent 20.4.2021 14:05
Margir áfangar í geimskoti SpaceX og NASA Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX munu á fimmtudaginn skjóta fjórum geimförum af stað til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Verður það í fyrsta sinn sem eldflaug og geimfar eru endurnýtt til að koma geimförum út í geim. Erlent 20.4.2021 13:32
Þverpólitískur stuðningur við bann gegn eign einkaaðila á stórum kattardýrum Fjórir öldungadeildarþingmenn hafa lýst yfir stuðningi við frumvarp sem leggur bann við því að stórum kattardýrum sé haldið í einkaeigu. Frumvarpið leggur einnig bann við aðgengi almennings að afkvæmum stórra kattardýra. Erlent 20.4.2021 11:42
Forseti Tjad féll í átökum við uppreisnarmenn Idriss Deby, forseti Tjad, er dáinn. Hann er sagður hafa dáið vegna sára sem hann hlaut þegar hann heimsótti víglínu hers Tjad og uppreisnarmanna í norðurhluta landsins. Upplýsingar um dauða forsetans eru enn á reiki. Erlent 20.4.2021 11:21
Xi vill sanngjarnari heimsstjórn Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því málefnum heimsins yrðu stýrt á sanngjarnari máta og að ríki heimsins legðu ekki tálma á önnur. Hann kallaði eftir aukinni ráðfærslu milli ríkja á alþjóðasviðinu og sagði að aðskilnaður og útskúfun á heimsmarkaði væri ekki jákvæð. Erlent 20.4.2021 10:48
Grænlendingar afnema fjöldatakmarkanir Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi á Grænlandi í gær þar sem gripið er til töluverðra afléttinga. Erlent 20.4.2021 08:01
Smit á Nýja-Sjálandi en áfram opið fyrir ferðalög til Ástralíu Starfsmaður á flugvellinum í Auckland á Nýja Sjálandi hefur verið greindur með kórónuveiruna, aðeins einum sólahring eftir að opnað var fyrir ferðalög á milli Nýja Sjálands og Ástralíu. Erlent 20.4.2021 08:00
Walter Mondale fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna látinn Walter Mondale, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, er látinn. Hann var 93 ára. Mondale var varaforseti Jimmy Carter, sem sagði Mondale „besta varaforsetann í sögu landsins“. Erlent 20.4.2021 07:28
Heimsfaraldurinn hefur valdið mikilli aukningu í útblæstri Ein af afleiðingum alheimsfaraldurs kórónuveirunnar er mikil aukning í útblæstri koltvísýrings. Þetta segir talsmaður Alþjóða orkumálastofnunarinnar í samtali við breska blaðið The Guardian. Erlent 20.4.2021 07:04
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna staðfestir fyrirhugaða Íslandsheimsókn Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur staðfest komu sína til Íslands í maí hvar hann mun sækja fund aðildarríkja Norðurskautsráðsins. Þetta staðfesti Blinken í ræðu sem hann flutti í kvöld þar sem meginviðfangsefnið var um forystuhlutverk Bandaríkjanna í loftslagsmálum. Erlent 19.4.2021 22:46
Enginn undir stýri í Teslu sem hafnaði á tré með þeim afleiðingum að tveir létust Tvær bandarískar stofnanir fara með rannsókn vegna banaslyss sem varð í Texas um helgina þar sem grunur leikur á að enginn hafi verið undir stýri í sjálfkeyrandi Teslu sem hafnaði utan vegar með þeim afleiðingum að tveir létust. Erlent 19.4.2021 22:13
„Notið skynsemina“ Saksóknarinn Steve Schleicher biðlaði til kviðdómenda að treysta innsæinu og hlusta á sönnunargögnin áður en þeir tækju ákvörðun í máli gegn lögregluþjóninum Derek Chauvin, sem ákærður er fyrir að hafa banað George Floyd í Minneapolis í fyrra. Flutningur lokaræðna fer nú fram og munu kviðdómendur í kjölfarið gera upp hug sinn. Erlent 19.4.2021 21:08
Leggjast gegn bólusetningarvottorði til ferðalaga Sérfræðinganefnd Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) leggst gegn því að ríki gerir sönnun fyrir því að fólk hafi verið bólusett gegn kórónuveirunni að forsendu fyrir því að það fái að ferðast á milli landa. Slíkt fyrirkomulag er talið auka á ójöfnuð og skapa nýjan ójöfnuð í ferðafrelsi í fólks. Erlent 19.4.2021 16:46
Telja um 150.000 hermenn við landamæri Úkraínu Rússar hafa safnað saman um 150.000 hermönnum við landamæri Úkraínu og á Krímskaga, að sögn utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Hann telur hættuna á frekari stigmögnun átaka í Austur-Úkraínu augljósa. Erlent 19.4.2021 16:25
Fyrsti leiðtogi kúbverska Kommúnistaflokksins utan Castro-ættarinnar Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, verður næsti leiðtogi kommúnistaflokks landsins. Hann tekur við af Raúl Castro og verður þannig fyrsti leiðtogi flokksins sem ber ekki eftirnafnið Castro. Erlent 19.4.2021 15:40
Útgöngubann í Nýju-Delí framlengt um viku Milljónum íbúa Nýju-Delí á Indlandi er gert að halda sig heima við í viku til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar sem breiðist nú um landið eins og eldur í sinu. Allar verslanir og verksmiðjur þurfa jafnframt að hætta starfsemi fyrir utan þær sem veita nauðsynlega þjónustu eins og matvöruverslanir. Erlent 19.4.2021 13:52
Berjast við gróðureld á Borðfjalli Á þriðja hundrað slökkviliðsmanna frá Höfðaborg glíma nú við mikinn gróðureld sem brennur í hlíðum Borðfjalls í Suður-Afríku. Íbúar í hverfi í hlíðum fjallsins voru látnir yfirgefa heimili sín í varúðarskyni. Grunaður brennuvargur er í haldi lögreglu vegna eldsins sem kviknaði í gærmorgun. Erlent 19.4.2021 12:28
Litlu Marsþyrlunni tókst ætlunarverkið Fyrsta tilraunaflug þyrilvængjunnar Ingenuity á reikistjörnunni Mars gekk að óskum í morgun. Leiðangursstjórn bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA bárust fyrstu gögnin sem staðfestu að þyrlan hefði flogið og fyrstu myndirnar af tilrauninni. Erlent 19.4.2021 11:15
Navalní fluttur á sjúkradeild í öðru fangelsi Rússnesk yfirvöld segja að heilsa Alexei Navalní, eins helsta stjórnarandstæðings landsins, sé „ásættanleg“ eftir að hann var fluttur á fangelsissjúkrahús. Navalní er í hungurverkfalli vegna ófullnægjandi læknisaðstoðar og þjáist af miklum bak- og fótverkjum sem læknar telja ógna lífi hans. Erlent 19.4.2021 10:33
Baerbock kanslaraefni þýskra Græningja Græningjar í Þýskalandi hafa tilkynnt að Annalena Baerbock, þingkona og annar leiðtogi flokksins, verði kanslaraefni flokksins í þingkosningunum sem fara fram í Þýskalandi þann 26. september. Erlent 19.4.2021 09:57
Þyrlan á Mars: Fyrsta tilraunaflugferðin í morgun Þyrilvængjan Ingenuity átti að reyna að fljúga í fyrsta skipti á reikistjörnunni Mars nú í morgun. Búist er við að upplýsingar um hvernig til tókst berist til jarðar nú fyrir hádegið. Hægt verður að fylgjast með því í beinni útsendingu á Vísi. Erlent 19.4.2021 09:26
Helmingur fengið bóluefni en dregur úr aðsókn Bandarísk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því um helgina að helmingur Bandaríkjamanna eldri en 18 ára hefði fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni gegn Covid-19. Erlent 19.4.2021 07:33
Mótmælaalda fyrir lokadag réttarhaldanna yfir Chauvin Mótmælafundir gegn lögregluofbeldi voru víða haldnir í Bandaríkjunum um helgina en í dag er síðasti dagur réttarhaldanna yfir lögreglumanninum sem drap George Floyd á síðasta ári. Dráp hans varð til þess að til mótmæla kom um gervöll Bandaríkin. Erlent 19.4.2021 06:56
Leiðtogi Sinn Féin biðst afsökunar á morðinu á Mountbatten lávarði Mary Lou McDonald, leiðtogi Sinn Féin, hefur beðist afsökunar á dauða Mountbatten lávarðs, frænda hertogans af Edinborg. Mountbatten var myrtur af Írska lýðveldishernum (IRA) árið 1979. Erlent 19.4.2021 06:47
Leita manns sem skaut þrjú til bana Lögregla í Texas leitar nú Stephen Nicholas Broderick, 41 árs gamals manns sem grunaður er um að hafa skotið þrjú til bana í borginni Austin í dag. Maðurinn, sem er fyrrverandi lögreglumaður, er talinn vopnaður og hættulegur. Erlent 18.4.2021 22:38
Fundu stúlkuna með móður sinni í Sviss Átta ára stúlka sem frönsk lögregluyfirvöld höfðu lýst eftir fannst ásamt móður sinni í Sviss. Stúlkunni var rænt af heimili ömmu sinnar á þriðjudag, en amma hennar hafði haft forræði yfir henni undanfarna mánuði. Erlent 18.4.2021 22:04