Erlent
Vilja afnám dauðarefsinga Þing Evrópuráðsins samþykkti í gær ályktun þar sem skorað er á rússnesk stjórnvöld að afnema dauðarefsingu, að draga herlið sitt til baka frá Moldóvíu og að saksækja þá sem bera ábyrgð á mannréttindabrotum, einkum í Téténíu. Erlent 22.6.2005 00:01
Sophia Loren heiðursborgari Ítalska leikkonan Sophia Loren var kjörin heiðursborgari í strandbænum Pozzuoli í Suður-Ítalíu í gær. Leikkonan, sem er sjötug, brast í grát við athöfn sem bæjarbúar héldu henni til heiðurs. Erlent 22.6.2005 00:01
Verkfalli afstýrt á elleftu stundu Samningamönnum fimm hundruð tæknimanna hjá norska olíurisanum Statoil og stjórnendum fyrirtækisins tókst á elleftu stundu í gærkvöldi að afstýra verkfalli tæknimannanna sem átti að hefjast á miðnætti. Erlent 22.6.2005 00:01
Uppbygging gengur hægt Uppbygging í Aceh-héraði í kjölfar jarðskjálftans annan í jólum gengur afar hægt. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðaþróunarstofnunar Bandaríkjanna um ástandið í Indónesíu sem birtist í gær. Erlent 22.6.2005 00:01
Berjast gegn veiðum Japana Andstæðingar hvalveiða berjast nú fyrir því að fá Japana til þess að láta af áformum um að tvöfalda hvalveiðar í vísindaskyni. Japanar tilkynntu á ráðstefnu Alþjóðahvalveiðiráðsins í gær að þeir hygðust auka árlegar veiðar á hvölum í vísindaskyni um helming frá og með næsta ár, og hafa þau áform vakið mikla úlfúð hjá andstæðingum hvalveiða. Erlent 21.6.2005 00:01
Sótt gegn herskáum Palestínumönnum Ísraelskar öryggissveitir hafa síðasta sólarhringinn handtekið að minnsta kosti 50 Palestínumenn sem grunaðir eru um að tilheyra herskáum samtökum í kjölfar þess að átök hafa aftur blossað upp á milli Ísraela og Palestínumanna. Þetta er í fyrsta sinn í hálft ár sem öryggissveitirnar láta til sín taka fyrir alvöru, en síðustu tvo daga hafa tveir Ísraelar látist í árásum palestínskra uppreisnarmanna. Erlent 21.6.2005 00:01
Baðst afsökunar á liðhlaupi Bandaríkjamaðurinn Charles Jenkins baðst afsökunar í gær á liðhlaupi sínu árið 1965 áður en hann fór frá Bandaríkjunum til Japan, þar sem hann býr nú. Erlent 21.6.2005 00:01
Hlutleysið rannsakað Danska ríkisstjórnin ætlar að verja rúmum fimmtíu milljónum íslenskra króna í að rannsaka hvort fréttastofur danska ríkisútvarpsins rísi undir ábyrgð sinni að flytja "fjölbreyttar, hlutlausar og óháðar fréttir." Erlent 21.6.2005 00:01
Bush hrósar Víetnömum Phan Van Khai, forsætisráðherra Víetnams, hitti George Bush í Hvíta húsinu í gær. Leiðtogarnir ræddu um áhuga Víetnams á aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO, viðskipti og mannréttindamál. Erlent 21.6.2005 00:01
Sakfelldur fyrir að myrða þrjá Félagi í bandarísku samtökunum Ku Klux Klan var í dag sakfelldur fyrir að hafa drepið þrjá mannréttindaforkólfa árið 1964. Edgar Ray Killen, sem nú er áttræður, er sagður hafa verið leiðtogi samtakanna og látið drepa þá Michael Schwerner, Andrew Goodman og James Chaney, en þeir höfðu aðstoðað blökkumenn í Mississippi-ríki við að komast á kjörskrá. Erlent 21.6.2005 00:01
Barnaníður fær tíu ár í Kambódíu Hollenskur karlmaður var í gær dæmdur í tíu ára fangelsi í Kambódíu fyrir að beita sex kambódíska drengi kynferðislegu ofbeldi. Erlent 21.6.2005 00:01
Mamman í fangelsi Emily Price, táningsstúlka frá Cheltenham á Englandi hefur heldur betur komið móður sinni í klandur með því að hlaða niður tónlist með vinsælum hljómsveitum á tölvu sína. Þar sem móðirin, Sylvia að nafni, er ábyrgðarmaður stúlkunnar hefur henni verið send sekt upp á hálfa milljón króna fyrir athæfi dótturinnar. Erlent 21.6.2005 00:01
Viss um að komast til valda á ný Saddam Hussein saknar valdatíma Ronalds Reagan, segist ekki tengjast Osama bin Laden á nokkurn hátt og er handviss um að hann komist til valda í Írak á ný. Þetta kemur fram í viðtölum við fimm fangaverði sem hafa annast Saddam undanfarið ár og birtast í nýjasta hefti <em>GQ</em>. Erlent 21.6.2005 00:01
Sænskur gísl frelsaður í Írak Sænskur gísl sem verið hefur í haldi mannræningja í Írak í rúma tvo mánuði hefur verið frelsaður. Frá þessu greindi utanríkisráðuneyti Svíþjóðar í dag. Ekki hafði verið greint frá því að manninum, hinum 63 ára Ulf Hjertström, hefði verið rænt en hann segist í samtali við <em>Aftonbladet</em> hafa verið í haldi frá því á föstudaginn langa. Erlent 21.6.2005 00:01
Dæmdur 41 ári síðar Bandaríkjamaðurinn Edgar Ray Killen, sem nú er áttatíu ára, var í gær dæmdur fyrir að hafa átt aðild að morði á þremur mönnum í Mississippi af hópi Klu Klux Klan-manna árið 1964. Erlent 21.6.2005 00:01
Annað morðið í mánuðinum Stjórnarandstæðingurinn George Hawi, leiðtogi líbanskra kommúnista, beið bana í bílsprengjuárás í gær. Erlent 21.6.2005 00:01
Komust óhindrað inn í kjarnorkuver Sextán útlendingar með fölsuð vegabréf komust nýlega inn í kjarnorkuver í Tennessee í Bandaríkjunum sökum lélegrar öryggisgæslu. Frá þessu greinir dagblaðið <em>Washington Post</em> og þykir um mikið hneyksli að ræða þar sem öryggisyfirvöld í Bandaríkjunum hafa ítrekað varað við því að kjarnorkuver kunni að verða næsta stóra skotmark hryðjuverkamanna. Erlent 21.6.2005 00:01
Afganir ósáttir við Pakistana Stjórnvöld í Afganistan þrýsta nú á Pakistana að herða aðgerðir gegn hryðjuverkamönnum í Pakistan. Afganar telja þá ekki leggja sig fram og segja að það verði aldrei friður í Afganistan nema ríkisstjórnir beggja landa taki höndum saman í baráttunni við hryðjuverkamenn. Erlent 21.6.2005 00:01
Fundu lík af 2500 ára stúlku Þýska lögreglan var kölluð til þegar líkamsleifar unglingsstúlku fundust í Neðra-Saxlandi. Lögreglan fól hins vegar fornleifafræðingum málið. Líkið var 2500 ára gamalt en ótrúlega vel varðveitt. Það er talið vera einn merkasti fornleifafundur Evrópu í áratugi. Erlent 21.6.2005 00:01
Yfirbuguðu talibana í Kandahar Afgönsk lögregla hefur aftur náð landsvæði í Suður-Afganistan á sitt vald sem talibanar lögðu undir sig í síðustu viku. Lögreglan lét til skrarar skríða gegn uppreisnarmönnum í morgun og með stuðningi bandarískra hersveita voru 32 menn drepnir og 15 teknir höndum. Erlent 21.6.2005 00:01
Þjóðaratkvæði frestað í Póllandi Pólverjar munu fresta fyrirhugaðri kosningu um stjórnarskrá Evrópusambandsins í óákveðinn tíma að því er Aleksander Kwasniewski, forseti landsins, greindi frá í dag. Til stóð að Pólverjar greiddu atkvæði um sáttmálann í október en vegna þeirrar óvissu sem ríkir um sáttmálann eftir að Frakkar og Hollendingar höfnuðu honum telja pólsk yfirvöld ekki ástæðu til að leggja hann í dóm þjóðarinnar. Erlent 21.6.2005 00:01
Saddam saknar Reagan Saddam Hussein segist enn vera forseti Íraks og bauð bandarísku hermönnunum sem gæta hans að heimsækja sig í Írak þegar hann hefði náð völdum þar á ný. Hann saknar gömlu góðu daganna þegar Ronald Reagan seldi honum vopn á tímum Íransstríðsins, þvær sér oft um hendurnar og kann vel að meta Doritos-flögur. Erlent 21.6.2005 00:01
Fundu bát með flóttamönnum Íslendingar í ævintýraleit lentu í öðruvísi ævintýrum en þeir áttu von á við strendur Kanaríeyja. Í stað þess að landa sverðfiskum fundu þeir bát með flóttamönnum frá Afríku. Erlent 21.6.2005 00:01
Sagður haldinn hreinlætisáráttu Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseti, er hinn viðkunnanlegasti, hefur dálæti á kartöfluflögum og er haldinn hreinlætisáráttu. Fimm fangaverðir, sem gættu Saddams um tíu mánaða skeið, sjá ástæðu til að koma þessum upplýsingum á framfæri og einnig því að Saddam telji sig enn vera forseta Íraks. Erlent 21.6.2005 00:01
Alvarlegt lestarslys í Ísrael Að minnsta kosti fimm létust og hundrað særðust þegar farþegalest ók á vöruflutningabíl í Ísrael í dag. Lestin var að koma frá Tel Aviv í suðurhluta landsins og á leið til Beersheba þegar hún skall á flutningabílnum sem var að flytja alifugla. Ísraelskar útvarpsstöðvar greina frá því að svo virðist sem bíllinn hafi bilað á leið sinni yfir lestarteinana. Áreksturinn var svo harður að lestin fór út af teinunum og köstuðust farþegar út úr vögnum lestarinnar. Björgunarmenn reyna nú að ná fólki sem er fast í flaki vagna sem fóru út af sporinu en óttast er að tala látinna kunni að hækka. Erlent 21.6.2005 00:01
Bolton veldur enn vandræðum Repúblikönum í bandarísku öldungadeildinni mistókst á mánudagskvöld að knýja í gegn samþykki tilnefningar John Bolton sem fastafulltrúa Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Demókratar hafa beitt málþófi til að hindra tilnefninguna. Erlent 21.6.2005 00:01
Stirt andrúmsloft á leiðtogafundi Ísraelar ætla að standa við sinn hluta vopnahléssamkomulagsins við Palestínumenn taki þeir síðarnefndu uppreisnarmenn fastari tökum. Þetta kom fram á leiðtogafundi Ariel Sharon og Mahmoud Abbas í gær. Erlent 21.6.2005 00:01
Kommúnistaleiðtogi myrtur í Beirút George Hawi, fyrrverandi leiðtogi Kommúnistaflokksins í Líbanon, var drepinn í Beirút í morgun. Sprengju virðist hafa verið komið fyrir í bíl Hawis og lést hann samstundis þegar hún sprakk. Hann var andsnúinn Sýrlendingum, líkt og Saab Hariri, sem sigraði í kosningunum í Líbanon um helgina. Aðeins þrjár vikur eru síðan dálkahöfundurinn Samir Kassir var drepinn á sama hátt, en hann var einnig þekktur fyrir andstöðu sína við Sýrlendinga. Erlent 21.6.2005 00:01
Bolton hafnað í annað sinn Demókratar á Bandaríkjaþingi hafa öðru sinni hafnað að samþykkja John Bolton sem sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Ráðning Boltons var samþykkt í öldungadeildinni með 54 atkvæðum gegn 38, sem er sex atkvæðum minna en þurfti til að knýja fram lokaatkvæðagreiðslu um ráðninguna. Erlent 21.6.2005 00:01
Handsamaðir við Grikkland Gríska landhelgisgæslan hefur síðustu daga handsamað yfir fimmtíu ólöglega innflytjendur á Eyjahafi. Talið er að átt hafi að smygla þeim frá Tyrklandi til Grikklands. Ekki liggur fyrir hvaðan þeir eru. Erlent 21.6.2005 00:01