Erlent

Áströlsk plastglös ónýt sem vopn

Stærstu diskótek Danmerkur eru að taka í notkun nýja tegund af plastglösum, sem ekki er hægt að brjóta og því ekki hægt að nota sem vopn. Þau eru talsvert dýrari en glerglös, en endast margfallt betur. Bæði gestir og starfsfólk veitingastaða hafa tekið þessum glösum með fögnuði.

Erlent

Líbanonsstjórn samþykkti tillögu að Hariri-dómstól

Ríkisstjórn Líbanons, - það sem er eftir af henni, samþykkti í dag tillögu Sameinuðu þjóðanna að uppsetningu dómstóls til að rétta yfir mönnunum sem grunað er að hafi myrt Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir einu og hálfu ári. Sex ráðherrar hliðhollir eru Sýrlandi og mótfallnir dómstólnum hafa sagt af sér embætti síðan á laugardaginn.

Erlent

Irwing-feðgar reyna að komast inn á olíumarkað hérlendis

Irwing-feðgarnir, sem á sínum tíma höfðu áhuga á að stofna olíufélag á Íslandi til að keppa við olíurisana þrjá: Olís, Essó og Skeljung, hafa ekki gleymt Íslandi því nú auglýsa þeir eftir umboðsaðila fyrir smurolíur sínar á höfuðborgarsvæðinu.

Erlent

Tilbúnir að ræða Írana og Sýrlendinga

Stjórnvöld í Washington segja koma til greina að hefja á ný viðræður við Írana og Sýrlendinga um framtíð Íraks. Búist er við að ráðgjafahópur bandaríska þingsins leggi til að þau brjóti odd af oflæti sínu og leiti til þessarra tveggja ríkja sem hafi töluverð áhrif á gang mála í Írak.

Erlent

Krafist fangelsis yfir dönskum blaðamönnum

Krafist er fangelsisdóms yfir tveim blaðamönnum og ritstjóra Berlingske Tidende, í Danmörku, vegna trúnaðarupplýsinga sem þeir birtu úr skýrslu sem leyniþjónustumaður lak til þeirra.

Erlent

Stjórnarkreppa í Líbanon

Stjórnarkreppan í Líbanon versnaði enn í gær þegar forseti landsins lýsti því yfir að skipan ríkisstjórnar samræmdist ekki lengur stjórnarskrá. Yfirlýsing ráðherrans hefur ekkert lagalegt gildi en er túlkuð sem vantraustsyfirlýsing. Allir fimm ráðherrar sjía-múslima sögðu af sér embætti á laugardaginn og þeim til viðbótar sagði kristinn ráðherra af sér í morgun.

Erlent

Fulltrúi SÞ hitti leiðtoga Frelsishers Drottins

Yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum flaug í gær til fundar við uppreisnarleiðtoga frá Úganda, sem sakaður er um stríðsglæpi. Hann hefst við í Súdan og er sagður halda konum og börnum í gíslingu.

Erlent

Náði athygli krókódílsins

Belgiskur maður hefur verið útnefndur heimskasti túristi vikunnar, eftir að hann reyndi að taka mynd af krókódíl í Cape Tribulation, í Ástralíu.

Erlent

Kennaraverkfall í minnst 57 dönskum framhaldsskólum

Danskir framhaldsskólanemar geta nú margir setið heima og horft í gaupnir sér þar sem kennsla liggur víða niðri vegna kennaramótmæla. Að minnsta kosti 57 framhaldsskólar eru tómir í dag, að sögn danska ríkisútvarpsins. Baráttan er um peninga, kennararnir vilja fullvissu þess að kosningaloforð verði efnd.

Erlent

Bandalag menningarheima vill brúa bilið milli miðausturs og vesturs

Hópur skipulagður af Sameinuðu þjóðunum, 20 áberandi menn og konur frá ýmsum stöðum og menningarheimum, kalla eftir tafarlausum aðgerðum til að brúa bilið milli múslima og hins vestræna menningarheims. Hópurinn gengur undir nafninu Bandalag menningarheima og krefst fræðslu til að berjast á móti fordómum og fáfræði.

Erlent

Kengfullur elgur hræðir skólabörn

Stæðilegur elgstarfur hefur undanfarið hrætt skólabörn með árásargirni í sænska smábænum Mölndal. Elgurinn er talinn laðast að skólagarðinum vegna sætangandi gerjaðra epla sem liggja þar á flötinni. Ef hann fer ekki að sofa úr sér segja skólayfirvöld að þrautalendingin geti orðið að skjóta hann.

Erlent

Royal með jafnan stuðning á við Sarkozy

Ségolène Royal er óskabarn franska sósíalistaflokksins og ný könnun sem gerð var fyrir franska dagblaðið Le Figaro sýnir jafnan stuðning við hana og Nicholas Sarkozy, sitjandi innanríkisráðherra Frakklands, í fyrstu umferð forsetakosninga, bæði hlytu 34% atkvæða ef kosið væri núna.

Erlent

Leggja til hlé á aðildarviðræðum Tyrkja við ESB

Fulltrúar Austurríkis lögðu til í dag að hlé yrði gert á aðildarviðræðum Tyrklands við Evrópusambandið ef ekkert hefði þokast í rétta átt í deilu Tyrkja og Kýpverja fyrir leiðtogafund Evrópusambandsins í desember. Austurríkismenn hafa verið mestir efasemdarmenn um viðræðurnar við Tyrkland.

Erlent

Egeland fundar með leiðtoga Frelsishers Drottins

Jan Egeland, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, flaug í gær til fundar við Joseph Kony, leiðtoga Frelsishers Drottins sem nú hefst við í Súdan, til að reyna að semja um lausn kvenna og barna sem hreyfingin heldur föngnum. Viðræðurnar báru lítinn árangur þar sem Kony sagðist ekki halda neinum föngum.

Erlent

Kókaín í Kristjánsborg, þinghúsi Dana

Kókaínleifar fundust á þremur salernum danskra þingmanna í Kristjánsborgarhöll, þegar danska dagblaðið BT gerði þar athugun á 30 salernum nýverið. Prófin voru gerð með sömu tækni og aðferðum og lögreglan notar.

Erlent

Mótmæla ásókn Walmart í Mexíkó

Mexíkóskir og bandarískir mótmælendur tóku höndum saman í gær til þess að mótmæla aukinni starfsemi bandarísku verslunarkeðjunnar Walmart í Mexíkó, sem nú rekur 870 útibú í Mexíkó. Mótmælendurnir segja að búðirnar útrými litlum verslunareigendum sem geti ekki keppt við verðið og þar með ógni þær menningu Mexíkóa og þjóðfélagsmunstri.

Erlent

300 heimili í hættu vegna skógarelda í Kaliforníu

100 heimili voru rýmd í gær og 200 til viðbótar eru í hættu í Kaliforníu þar sem skógareldar brenna stjórnlaust í hæðunum. Eldurinn geisar á yfir 50 hektara svæði í kringum Elsinore-vatn, sem er um 120 kílómetra austur af Los Angeles. Þykkur runna- og trjágróður er í hæðunum í nágrenni vatnsins.

Erlent

Selst talsvert af ódýrara húsnæði

Húsnæðisverð heldur áfram að hækka og á einum mánuði hefur það hækkað um 0,7%. Það er mikil hækkun ef litið er til þess að að á síðustu sex mánuðum nemur hækkunin innan við 3%. Veltan á markaðnum hefur heldur aukist en sérstaklega er hreyfing á ódýrara húsnæði.

Erlent

Stjórnarkreppan í Líbanon versnar enn

Stjórnarkreppan í Líbanon fer hríðversnandi þar sem sjötti ráðherrann hefur ákveðið að segja af sér embætti. Forseti landsins, Emile Lahoud lýsti því yfir í gær að ríkisstjórnin samræmdist ekki lengur stjórnarskrá eftir að fimm ráðherrar sögðu af sér embætti á laugardaginn. Yfirlýsing forsetans hefur ekkert lagalegt gildi eða afleiðingar en er sterk vantraustsyfirlýsing engu að síður.

Erlent

Ræða um Írak við Írani og Sýrlendinga

Til greina kemur að stjórnvöld í Washington hefji á ný viðræður við Írani og Sýrlendinga til að leita lausna á stöðunni í Írak. Ráðgjafarhópur um Írak skilar niðurstöðu í lok ársins þar sem líklega verður lagt til að Bandaríkjamenn brjóti odd af oflæti sínu og leiti til Sýrlands og Írans þar sem grannþjóðirnar tvær hafi mikil áhrif á gang mála í Írak.

Erlent

Leiðtogar arabaríkja vilja friðarráðstefnu

Utanríkisráðherra aðildarríkja Arababandalagsins samþykktu á neyðarfundi sínum í dag að kalla eftir friðarráðstefnu vegna ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem að kæmu fulltrúar Sameinuðu þjóðanna, Palestínu og Ísraels.

Erlent

Um 20 hermenn létust í umferðarslysi í Chile

Að minnsta kosti 20 chileskir hermenn létust í dag þegar rúta sem þeir voru farþegar í steyptist fram af brú og ofan í á. Slysið átti sér stað í suðurhluta Chile. Ekki liggur fyrri hvernig það bar að en miklar rigningar höfðu verið á svæðinu.

Erlent

Páfi segir hungursneyðina í heiminum hneyksli

Benedikt sextándi páfi sagði í dag að það væri hneyksli að fólk í heiminu sylti og kallaði eftir róttækum breytingum á efnahagskerfi heimsins til þess að binda enda á hungursneyð hundraða milljóna manna.

Erlent

Árásir andófsmanna hafa fjórfaldast á árinu í Afganistan

3700 manns hafa fallið í átökum í Afganistan og árásir andófs- og hryðjuverkamanna hafa fjórfaldast það sem af er ári samkvæmt nýrrri skýrslu eftirlitsnefndar sem fulltrúar afganskra stjórnvalda, erlendra stuðningsríkja og Sameinuðu þjóðanna eiga sæti í.

Erlent

Vilja segja sig úr lögum við Georgíu

Suður-Ossetíumenn greiddu í dag atkvæði um hvort þeir segðu sig endanlega úr lögum við Georgíu. Atkvæðagreiðslan nýtur ekki viðurkenningar á Vesturlöndum en Rússar segja að virða beri niðurstöðuna

Erlent

Maliki boðar uppstokkun á stjórninni

Demókratar vonast til að hægt verði að hefja brottflutning bandarískra hermanna frá Írak á næstu mánuðum. Forsætisráðherra Íraks boðar algera uppstokkun á ríkisstjórn landsins.

Erlent

Egeland fundaði með umdeildum uppreisnarleiðtoga

Jan Egeland, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, átti stuttan fund með Joseph Kony, leiðtoga Uppreisnarhers Drottins í Úganda, í frumskógi í Suður-Súdan fyrr í dag. Þar hugðist Egeland reyna að fá Kony til þess að sleppa börnum, konum og særðum sem uppreisnarher hans hefur rænt en Kony sagði herinn aðeins halda hermönnum föngnum.

Erlent