Erlent
KB Banki svarar ásökunum Ekstra Bladet Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings Banka, kom fram á fréttamannafundi í höfuðstöðvum þeirra í Kaupmannahöfn í dag. Þar sagði hann að þeir hefðu sent Ekstra Bladet bréf þar sem rangfærslur blaðins eru leiðréttar en blaðið hefur undanfarið verið að birta greinar sem segja KB Banka vera tengdan við hina ýmsu glæpastarfsemi. Erlent 17.11.2006 17:24
Tom Cruise setur Ítalíu á annan endann Ítalir hafa ekki upplifað annað eins síðan bandamenn frelsuðu Róm úr höndum Þjóðverja, í síðari heimsstyrjöldinni. Tom Cruise ætlar að gifta sig á Ítalíu, á morgun, og það er allt orðið vitlaust. Erlent 17.11.2006 16:27
Íranar tilbúnir að ræða við Ítali um Miðausturlönd Talsmaður forseta Ítalíu hefur skýrt frá því að ráðherranum hafi borist bréf frá forseta Írans, þar sem hann segist vera fús til viðræðna við Ítali um ástandið í Miðausturlöndum. Erlent 17.11.2006 14:36
Kóksvelgur fær bætur Rússnesk kona hefur fengið 8000 krónur í skaðabætur frá Coca Cola fyrirtækinu vegna brjóstsviða og svefnleysis, sem rakið var til þess að hún svolgraði í sig þrjá lítra á dag, af drykknum. Erlent 17.11.2006 14:20
Vilja rannsókn á dauða palestínumanna Ísraelsk mannréttindasamtök hafa krafist tafarlausrar rannsóknar á dauða tveggja Palestínumanna, sem voru skotnir í áhlaupi hersins á Vesturbakkanum, fyrr í þessum mánuði. Erlent 17.11.2006 13:56
Bretar banna auglýsingar á fitandi mat Bresk yfirvöld hafa bannað allar auglýsingar, á óhollum matvælum, í sjónvarpsþáttum sem höfða til barna upp að sextán ára aldri, hvort sem er að nóttu eða degi og á hvaða sjónvarpsrás sem er. Erlent 17.11.2006 13:45
Thai Airways íhugar að hætta við kaup á risaþotu Wallop Bhukkanasut, einn af æðstu stjórnendum taílenska ríkisflugfélagsins Thai Airways, segir tafir á afhendingu A380 risaþotum flugfélagsins hafa orðið til þess að flugfélagið verði að endurskoða langtímaáætlanir sínar. Svo getur farið að flugfélagið falli frá kaupum á risaþotunum. Erlent 17.11.2006 13:27
Telur að SWIFT verði dæmt fyrir persónuverndarbrot Búist er við að eftirlitsmenn Evrópusambandsins komist að þeirri niðurstöðu að alþjóðlega bankakerfið SWIFT hafi brotið persónuverndarlög með því að gefa Bandaríkjunum aðgang að milljónum bankafærslna. Þetta sagði Leonard Schrank, framkvæmdastjóri SWIFT í morgun. Erlent 17.11.2006 11:34
Færeyskir havsvívarar fylgjast með fiskinum Færeyska hafrannsóknastofnunin sjósetti þrjá dvergkafbáta á sunnudaginn, eða "havsvívara" eins og þeir heita á tungu grannþjóðar okkar, sem rannsaka hafið og allt sem þar finnst eftir bendingum frá gervihnetti. Fréttavefurinn skip.is greinir frá þessu. Hafsvifförin svonefndu munu fylgjast með hafsvæðunum milli Íslands, Færeyja og Hjaltlands. Erlent 17.11.2006 11:20
Palestínumenn frá Beit Hanoun lögsækja Ísraelsmenn Þrjár palestínskar fjölskyldur, sem misstu 19 fjölskyldumeðlimi í sprengjuárás Ísraelshers á Beit Hanoun í liðinni viku, hyggjast lögsækja ísraelska ríkið og krefjast skaðabóta. Þetta kemur fram á vefsíðu ísraelska dagblaðsins Haaretz. Erlent 17.11.2006 10:46
Drepa 50 milljónir fugla Talið er að um fimmtíu milljónir fugla drepist árlega við að fljúga á fjarskiptamöstur í Bandaríkjunum. Fjarskiptastofnun landsins hefur af því miklar áhyggjur og leitar leiða til þess draga úr þessum felli. Erlent 17.11.2006 10:42
Birta myndir og nöfn barnaníðinga Barnaverndarsamtök í Bretlandi hafa sett nöfn og myndir "týndra" barnaníðinga á vefsíðu sína, og biðja þá sem bera kennsl á þá að láta lögregluna vita þegar í stað. Þetta eru menn sem hafa afplánað refsingu sína og farið í felur. Erlent 17.11.2006 10:25
Má bjóða yður eigið ál ? Norskur maður hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi og háar fjársektir fyrir að stela fimmtíu og fimm tonnum af áli frá einu af álverum Norsk Hydro. Erlent 17.11.2006 09:58
Kúrdar felldir í Tyrklandi Tyrkneskar hersveitir felldu þrjá liðsmenn hins svokallaða Kúrdiska verkamannaflokks, í skotbardaga, í austurhluta landsins. Mánuður er síðan skæruliðarnir lýst yfir vopnahléi. Erlent 17.11.2006 09:38
Stjórnvöld í Tsjad heita á þjóðina að verja landið Stjórnvöld í Afríkuríkinu Tsjad heita á þjóðina að taka höndum saman og verja landið fyrir "stríði sem Súdan sendir yfir landamærin". Einnig er stefnt að því að Tsjadbúar sendi hermenn til Mið-Afríkulýðveldisins til þess að hjálpa þarlendum stjórnvöldum að verjast uppreisnarmönnum. Erlent 17.11.2006 09:30
Mikil lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hrapað um 4% síðan í gærkvöldi. Tunnan af hráolíu féll í morgun niður fyrir 56 dollara og hefur vísitala kauphalla víða um heim lækkað töluvert sem og gengi bréfa í hinum ýmsu olíu- og orkufyrirtækjum. Erlent 17.11.2006 09:26
Tonga kallar eftir aðstoð Ástrala og Nýsjálendinga Stjórnvöld á Tonga-eyjum í Kyrrahafi hafa beðið Ástrali og Nýsjálendinga að senda lögreglu og hermenn til landsins til að stilla til friðar í höfuðborginni Nuku'alofa. Átta hafa látist í uppþotum og mótmælum lýðræðissinna í vikunni. Ástralir og Nýsjálendingar munu verða við beiðninni og senda 150 manna lið til eyjanna. Erlent 17.11.2006 09:15
Allawi óttast að Írak sé að liðast í sundur Ayad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks, sagðist í gær óttast að land sitt sé að liðast í sundur. Hann segir að það muni aðeins auka á ofbeldið ef þjóðinni er skipt niður eftir trúarhópum eða þjóðarbrotum. Allawi tók við embætti forsætisráðherra fyrst eftir að Saddam Hússein var hrakinn frá völdum en tapaði fyrir öfgatrúuðum sjíum. Erlent 17.11.2006 09:00
12.500 milljarðar króna til vopnakaupa í Rússlandi Vladimir Pútín, forseti Rússlands, sagði á fundi með yfirmönnum í rússneska hernum að kjarnorkuvopn Rússa yrðu áfram að vera fær um að eyða hverjum þeim óvini sem ógni Rússlandi, hann hafi af því tilefni samþykkt nýja vopnaáætlun fram til ársins 2015. Rúmlega 12.500 milljarðar króna eru eyrnamerktir fyrir þessa vopnaáætlun. Erlent 17.11.2006 08:30
Nóbelsverðlaunahafinn Friedman allur Hagfræðingurinn Milton Friedman er látinn, 94ra ára að aldri. Friedman hlaut Nóbelsverðlaunin fyrir hagfræði árið 1976 og höfðu kenningar hans mikil áhrif meðal annars á stjórnarfar Margrétar Thatcher og Ronalds Reagans en hann var einarður talsmaður einkavæðingar og gjaldeyrisstjórnunar. Honum er eignuð setningin: "hádegisverðurinn er aldrei ókeypis". Erlent 17.11.2006 08:18
Fjórum Bandaríkjamönnum og Austurríkismanni rænt í Írak Fjórum Bandaríkjamönnum, einum Austurríkismanni og níu Írökum var rænt úr bílalest í Írak seint í gær, nærri kúvæsku landamærunum. Nokkrum Írakanna hefur verið sleppt og greindu þeir frá atvikinu. Ekki er vitað hverjir mannræningjarnir eru og þeir hafa ekki enn krafist lausnargjalds. Erlent 17.11.2006 07:58
Bandarískur hermaður í lífstíðarfangelsi fyrir nauðgun Bandarískur hermaður sem nauðgaði 14 ára íraskri stúlku og myrti síðan hana og fjölskyldu hennar var í gærkvöldi dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann slapp við dauðarefsingu með því að vitna gegn fjórum félögum sínum sem tóku þátt í verknaðinum, einnig verður einhver hluti fangavistarinnar skilorðsbundinn. Erlent 17.11.2006 07:45
Hjálparstarf í hættu í Darfur Jan Egeland, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, varaði í gær við að hætt væri við að starf hjálparstofnana í Darfur-héraði í vesturhluta Súdans lamist nær algjörlega ef ofbeldi færðist enn í aukana. Hann sagði að það öryggi sem hafi verið til staðar til skamms tíma sé nú hverfandi. Erlent 17.11.2006 07:30
Óumdeildur stórsigur hjá Ségolène Royal Ségolène Royal vann óumdeildan stórsigur á keppinautum sínum í forvali franska Sósíalistaflokksins og hefur því sterkt umboð flokksins, sem alltof oft hefur verið klofinn. Hún fékk rúm 60% atkvæða í forvalinu á meðan keppinautar hennar tveir, báðir eldri flokksmenn og fyrrverandi ráðherrar, skiptu afganginum á milli sín. Erlent 17.11.2006 07:11
Evrópskar friðarumleitanir í Ísrael Frakkar, Spánverjar og Ítalir samþykktu í dag áætlun til þess að reyna að leysa deilurnar við botn Miðjarðarhafsins. í áætlununni er kveðið á um algjört vopnahlé og gefið í skyn að löndin þrjú gætu send eftirlitsmenn til Ísraels. Óvíst er þó hvernig þetta evrópska frumkvæði passar inn í aðrar friðarumleitanir. Erlent 16.11.2006 23:45
Royal frambjóðandi sósíalista Talsmaður Sósíalistaflokksins í Frakklandi staðfesti við fréttamenn nú rétt áðan að frambjóðandinn Segolene Royal verði forsetaefni flokksins. Sagði hann að hún hefði þegar hlotið mikinn meirihluta atkvæðanna en lokaúrslit ættu að verða ljós í fyrramálið. Royal verður fyrsti kvenkyns forseti Frakklands ef hún sigrar í forsetakosningunum í apríl á næsta ári. Erlent 16.11.2006 23:08
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktar um Úganda Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun þar sem skorað er á uppreisnarher drottins í Úganda að sleppa úr haldi öllum þeim börnum og konum sem þeir hafa rænt á síðustu tveimur áratugum. Erlent 16.11.2006 22:51
Æfingaflugtak gekk vel Væntanlegir geimfarar fóru um borð í geimskutluna Discovery í dag til þess að undirbúa sig fyrir geimskotið sem verður í næsta mánuði. Æfingin gekk eins og í sögu og var henni haldið áfram þangað til aðeins fjórar sekúndur voru í flugtak. Erlent 16.11.2006 22:14
Sósíalistar í Frakklandi hafa valið forsetaefni sitt Samkvæmt fyrstu tölum úr prófkjöri sósíalista í Frakklandi er talið að frambjóðandinn Segolene Royal eigi eftir að bera sigur úr býtum. Þetta kom fram hjá franska sjónvarpinu LCI í kvöld. Líklegt þykir að hún hafi hlotið mikinn meirihluta atkvæðanna en úrslit ættu að verða ljós í fyrramálið. Royal myndi verða fyrsti kvenkyns forseti Frakklands ef hún ber sigur úr býtum í komandi forsetakosningum. Erlent 16.11.2006 21:50
Hvalveiðar í Kanada Lið veiðimanna í Kanada mun fara í leiðangur til þess að drepa um 80 Mjaldurhvali. Mjaldurhvalir eru litlir, um þrír til fimm metrar á lengd og hvítir á hörund. Hvalirnir sem á að veiða eru allir fastir í vatni sem á eftir að frysta eftir nokkrar vikur. Erlent 16.11.2006 21:38