Erlent Mikill viðbúnaður vegna réttarhalda yfir ræningjum í Gautaborg Mikill viðbúnaður hefur verið við dómhúsið í Gautaborg undanfarna daga þar sem staðið hafa yfir réttarhöld vegna ráns sem framið var á flugvellinum í Gautaborg í mars í fyrra. Átta manns eru ákærðir í málinu. Erlent 11.1.2007 11:50 Hryðjuverkamaður enn á lífi Eitt helsta skotmark Bandaríkjamanna í sprengjuárás í Sómalíu á mánudag er enn á lífi að því er BBC segir frá. Fazul Abdullah Mohammed, sem tilheyrir Al Kaída samtökunum, var sagður hafa látist í sprengjuárásinni á mánudaginn en sendiherra Bandaríkjamanna sagði í dag að hann væri enn á lífi. Mohammed er talinn hafa átt þátt í sprengjuárásum á bandarísk sendiráð í Afríku árið 1998. Erlent 11.1.2007 11:35 Unga fólkið vill Royal Yngstu kjósendurnir í Frakklandi eru hrifnari af frambjóðanda Sósíalistaflokksins, Ségoléne Royal, en innanríkisráðherranum Nicholas Sarkozy. Í könnun sem gerð var fyrir fríblaðið Metro myndu 53% 18-29 ára Frakka kjósa Royal ef valið stæði á milli þessara tveggja í seinni umferð forsetakosninganna. Erlent 11.1.2007 10:37 Flokksbræður Bush ekki sannfærðir Samflokksmenn Bush Bandaríkjaforseta virðast ekki að fullu sannfærðir um Íraksstefnu forsetans og ákvörðun hans að fjölga í herliði Bandaríkjamanna. Í gær höfðu allt í allt 7 öldungadeildarþingmenn repúblikana lýst því yfir að þeir styddu ekki fjölgun hermanna í Írak. Sumir höfðu jafnvel lýst andstöðu við stefnu flokksbróður síns úr ræðustóli þingsins. Erlent 11.1.2007 10:34 Viltu eitt eða tvö egg ? Bóndinn var ekki heima þegar þrjú svín brutust út úr stíu sinni á býli hans, sem er í Temerin í Serbíu, um sjötíu kílómetra norðvestan við Belgrad. Svínin röltu sér inn í íbúðarhúsið til að skoða sig um. Þar velti eitt þeirra um sjónvarpstæki með miklum látum. Erlent 11.1.2007 10:12 Carlsberg reiðubúið að greiða fyrir lestarsamgöngur í Valby Danska bruggfyrirtækið Carlsberg segist reiðubúið að greiða hluta af kostnaði við að leggja neðanjarðarlestarteina út í Valby í Kaupmannahöfn ef það verði til þess að lest komi við í fyrirhugaðri byggð sem ætlunin er reisa þegar fyrirtækið flytur þaðan til Fredericia. Erlent 11.1.2007 10:02 Fyrrverandi Eþíópíuleiðtogi fær lífstíðarfangelsi Mengistu Haile Mariam, fyrrverandi leiðtogi Eþíópíu, var fjarverandi þegar lífstíðarfangelsisdómurinn var kveðinn upp yfir honum í morgun, rétt eins og hann hefur verið fjarverandi öll réttarhöldin. Meðan Mugabe er við völd í Zimbabwe, þar sem Mariam hefur hæli, þá mun hann ekki verða framseldur til Eþíópíu til að afplána dóminn. Erlent 11.1.2007 09:30 Réðust inn á ræðismannsskrifstofu Erlent 11.1.2007 09:28
Mikill viðbúnaður vegna réttarhalda yfir ræningjum í Gautaborg Mikill viðbúnaður hefur verið við dómhúsið í Gautaborg undanfarna daga þar sem staðið hafa yfir réttarhöld vegna ráns sem framið var á flugvellinum í Gautaborg í mars í fyrra. Átta manns eru ákærðir í málinu. Erlent 11.1.2007 11:50
Hryðjuverkamaður enn á lífi Eitt helsta skotmark Bandaríkjamanna í sprengjuárás í Sómalíu á mánudag er enn á lífi að því er BBC segir frá. Fazul Abdullah Mohammed, sem tilheyrir Al Kaída samtökunum, var sagður hafa látist í sprengjuárásinni á mánudaginn en sendiherra Bandaríkjamanna sagði í dag að hann væri enn á lífi. Mohammed er talinn hafa átt þátt í sprengjuárásum á bandarísk sendiráð í Afríku árið 1998. Erlent 11.1.2007 11:35
Unga fólkið vill Royal Yngstu kjósendurnir í Frakklandi eru hrifnari af frambjóðanda Sósíalistaflokksins, Ségoléne Royal, en innanríkisráðherranum Nicholas Sarkozy. Í könnun sem gerð var fyrir fríblaðið Metro myndu 53% 18-29 ára Frakka kjósa Royal ef valið stæði á milli þessara tveggja í seinni umferð forsetakosninganna. Erlent 11.1.2007 10:37
Flokksbræður Bush ekki sannfærðir Samflokksmenn Bush Bandaríkjaforseta virðast ekki að fullu sannfærðir um Íraksstefnu forsetans og ákvörðun hans að fjölga í herliði Bandaríkjamanna. Í gær höfðu allt í allt 7 öldungadeildarþingmenn repúblikana lýst því yfir að þeir styddu ekki fjölgun hermanna í Írak. Sumir höfðu jafnvel lýst andstöðu við stefnu flokksbróður síns úr ræðustóli þingsins. Erlent 11.1.2007 10:34
Viltu eitt eða tvö egg ? Bóndinn var ekki heima þegar þrjú svín brutust út úr stíu sinni á býli hans, sem er í Temerin í Serbíu, um sjötíu kílómetra norðvestan við Belgrad. Svínin röltu sér inn í íbúðarhúsið til að skoða sig um. Þar velti eitt þeirra um sjónvarpstæki með miklum látum. Erlent 11.1.2007 10:12
Carlsberg reiðubúið að greiða fyrir lestarsamgöngur í Valby Danska bruggfyrirtækið Carlsberg segist reiðubúið að greiða hluta af kostnaði við að leggja neðanjarðarlestarteina út í Valby í Kaupmannahöfn ef það verði til þess að lest komi við í fyrirhugaðri byggð sem ætlunin er reisa þegar fyrirtækið flytur þaðan til Fredericia. Erlent 11.1.2007 10:02
Fyrrverandi Eþíópíuleiðtogi fær lífstíðarfangelsi Mengistu Haile Mariam, fyrrverandi leiðtogi Eþíópíu, var fjarverandi þegar lífstíðarfangelsisdómurinn var kveðinn upp yfir honum í morgun, rétt eins og hann hefur verið fjarverandi öll réttarhöldin. Meðan Mugabe er við völd í Zimbabwe, þar sem Mariam hefur hæli, þá mun hann ekki verða framseldur til Eþíópíu til að afplána dóminn. Erlent 11.1.2007 09:30
Krefjast þess að Guantánamo-búðunum verði lokað Staðið verður fyrir mótmælum víða um heim í dag þar sem þess verður krafist að fangabúðum Bandaríkjamanna við Guantánamo-flóa verði lokað. Það eru eru mannréttindasamtök víða um heim sem standa fyrir mótmælunum þar sem þess verður minnst að búðirnar hafa verið starfræktar í fimm ár. Erlent 11.1.2007 09:15
Apple sakað um að hafa stolið vörumerkinu iPhone Bandaríska tæknifyrirtækið Cisco Systems hefur höfðað mál á hendur Apple og sakar það um að hafa stolið vörumerkinu iPhone. Apple kynnti í fyrra dag fyrsta farsímann sem fyrirtækið hefur hannað undir þessu nafni en Cisco segist hafa átt vörumerkið iPhone frá árinu 2000. Erlent 11.1.2007 09:12
Hermenn sendir til höfuðs glæpaklíkum í Mexíkó Yfirvöld í Mexíkó hafa skorið upp herör gegn glæpaklíkum í nokkrum héruðum landsins og hafa þess vegna sent þúsundir hermanna til héraðanna. Erlent 11.1.2007 08:45
Segjast hafa fellt 150 talibana Atlantshafsbandalagið greindi frá því í dag að hermenn bandalagsins og afganski herinn hefðu fellt hátt í 150 uppreisnarmenn úr röðum talibana í austurhluta Afganistans. Erlent 11.1.2007 08:36
Olía aftur byrjuð að streyma frá Rússlandi til Mið-Evrópu Olía er aftur byrjuð að streyma frá Rússlandi til Austur og Mið-Evrópu eftir að Rússar og Hvít-Rússar komust að samkomulagi í gær í olíudeilu sinni. Erlent 11.1.2007 08:30
Daniel Ortega sestur í forsetastól Níkaragúa Daniel Ortega, fyrrverandi byltingarleiðtogi í Níkaragúa, var í gær svarinn inn í embætti forseta landsins, tveimur mánuðum eftir að hann sigraði í forsetakosningum þar í landi. Þúsundir fögnuðu Ortega í höfuðborginni Managúa þar sem hann fagnaði áfanganum ásamt Hugo Chaves, forseta Venesúela, og Evo Morales, forseta Bólivíu. Erlent 11.1.2007 08:00
Krónan tefur fyrir bensínlækkun hér á landi Olíuverð hélt áfram að lækka á heimsmarkaði í gær og er tunnan í Bandaríkjunum komin niður í 54 dollara. Það er lægsta verð í tæp tvö ár og hefur olíuverðið lækkað um 12 prósent frá áramótum. Erlent 11.1.2007 07:30
Flak indónesísku flugvélarinnar loks fundið Hernaðaryfirvöld í Indónesíu hafa skýrt frá því að flak flugvélar sem fórst í Indónesíu á nýársdag sé loks fundið. Það voru fiskimenn sem fundu hluta af flakinu á hafsbotni nærri eyjunni Sulawesi en vélin var á leið þangað. Erlent 11.1.2007 07:30
Bretar fækka hermönnum í Írak með vorinu Á sama tíma og bandarísk stjórnvöld vilja fjölga hermönnum í Írak greinir breska blaðið Daily Telegraph frá því að bresk stjórnvöld hyggist kalla heim hátt í þrjú þúsund hermenn frá landinu fyrir lok maímánaðar. Sagt er að Tony Blair forsætisráðherra muni tilkynna þetta innan tveggja vikna. Erlent 11.1.2007 07:06
Bush viðurkenndi mistök í Írak George Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í fyrsta sinn í gær að hann hefði gert mistök með stefnu sinni í Írak um leið og hann tilkynnti að bandarískum hermönnum yrði fjölgað um 21.500 til þess að reyna að binda enda á blóðbaðið í landinu. Erlent 11.1.2007 07:03
Nýtur meiri vinsælda nú Ehud Barak, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, tilkynnti nýlega að hann hygðist snúa aftur á vettvang stjórnmálanna. Barak gæti, samkvæmt nýrri skoðanakönnun, átt góða möguleika á að verða aftur leiðtogi Verkamannaflokksins. Erlent 11.1.2007 06:15
Fullyrðingar um málamiðlun Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi afnámu í gær toll sem þau settu í síðasta mánuði á olíu frá Rússlandi, þegar Rússar hækkuðu verð á olíu. Áður höfðu talsmenn stjórnvalda í Minsk fullyrt að málamiðlun hefði náðst í deilunni eftir að forsetar grannlandanna tveggja, Viktor Lúkasjenko og Vladimír Pútín, ræddust við í síma í gær. Erlent 11.1.2007 05:00
Sex manns dóu í sprengingu Sex létust og 22 særðust í sprengingu á markaði á Filippseyjum í gær. Önnur sprengja sprakk á sama svæði stuttu síðar og særði tvo. Erlent 11.1.2007 05:00
Villandi upplýsingar frá ESB Evrópusambandið þarf að breyta „ónákvæmum og villandi“ ráðleggingum um bætur til flugfarþega segir umboðsmaður ESB, P. Nikiforos Diamandouros. Erlent 11.1.2007 05:00
Leiði heiminn inn í nýja tíma Þjóðir Evrópu verða að breyta orku-neysluháttum sínum og leiða heiminn inn í „nýja tíma sem taka við af tímum iðnbyltingarinnar", sagði Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins við kynningu á metnaðarfullri áætlun um það hvernig aðildarríkin geta farið að því að verða minna háð innfluttri olíu og gasi og minnkað losun gróðurhúsalofttegunda. Erlent 11.1.2007 04:45
Háttsettur al-Kaída-liði féll Háttsettur liðsmaður Al-Kaída, sem hefur lengi verið eftirlýstur vegna gruns um að standa á bakvið hryðjuverkaárás á bandarísk sendiráð í Austur-Afríku, féll í loftárásum Bandaríkjahers í Sómalíu, að sögn Abdirizak Hassan, starfsmannastjóra forseta landsins. Erlent 11.1.2007 04:15
Bush leggur fram áætlun Demókratar staðráðnir í að láta þingið greiða atkvæði um fjölgun í herliði Bandaríkjanna. Harðir bardagar hafa geisað í Bagdad síðustu daga. Erlent 11.1.2007 04:00
Framsalsáætlun CIA fyrir rétti Réttur í Mílanó hóf á þriðjudag vitnaleiðslur til að skera úr um hvort lögsækja beri 26 Bandaríkjamenn og fimm Ítala fyrir mannrán á múslímaklerki grunuðum um hryðjuverkatengsl árið 2003. Erlent 11.1.2007 03:00
Flugvélin loks fundin Hernaðaryfirvöld í Indónesíu hafa skýrt frá því að flak flugvélar sem fórst í Indónesíu í síðustu viku sé loks fundið. Svo virðist sem hluti af flakinu liggi á hafsbotni nærri Sulawesi, en vélin var á leið þangað. Lengi hefur verið leitað að vélinni og mikil reiði varð þegar herinn tilkynnti að vélin hefði fundist í fjallendi og tólf komist af en það reyndist síðan rangt. Erlent 10.1.2007 23:42
Bandaríkjamenn neita loftárásum Bandaríkin hafa neitað því að hafa ráðist á skotmörk í Sómalíu í dag og segjast aðeins hafa gert árásir á mánudaginn síðastliðinn. Loftárásir voru þó gerðar og segja bandarísk yfirvöld að þar hafi verið að verki eþíópíski herinn. Erlent 10.1.2007 23:20
Chavez hyggur á frekari þjóðvæðingu Hugo Chavez var í dag settur í embætti forseta Venesúela til næstu sex ára. Hann vann stórsigur í kosningum í fyrra og hefur á þeim grundvelli ákveðið að ýta úr vör umfangsmiklum þjóðvæðingarverkefnum. Chavez hafði þegar sagt að hann ætlaði sér að þjóðvæða fjögur olíuverkefni sem og fjarskiptafyrirtæki en bætti svo við í ræðu eftir athöfnina í dag að hann hygðist þjóðvæða jarðgasverkefni líka. Erlent 10.1.2007 22:54
Bush fjölgar hermönnum um 21.500 Samkvæmt nýjustu fregnum mun George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, fjölga hermönnum í Írak um 21.500 manns. Áður var talið að það myndu verða 20.000. Einnig hefur verið skýrt frá því að Bush ætli sér að biðjast afsökunar á því að hafa ekki haft nógu marga hermenn í Írak eftir innrásina. Erlent 10.1.2007 22:25