Erlent

Þrettán talibanar felldir í Suður-Afganistan

Þrettán uppreisnarmenn úr röðum talibana eru sagðir hafa fallið í átökum við hermenn NATO og afgönsku stjórnarinnar í Helmand-héraði í suðurhluta Afganistans síðustu daga. Þá hafa tveir breskir hermenn fallið í átökunum.

Erlent

Ný fréttastöð í Noregi

Norðmenn eignuðust sjónvarpsstöð helgaða fréttaflutningi í gær þegar Nyhetskanalen fór í loftið. Stöðin er á vegum TV 2 sjónvarpsstöðvarinnar og sendir út dagskrá allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Undirbúningur hófst fyrir fjórum mánuðum og stöðin fór svo í loftið á hádegi í gær.

Erlent

Rússar selja Írönum loftvarnarkerfi

Rússar hafa afhent Írönum loftvarnarkerfi en samkomulag um sölu þess náðist á síðasta ári. Kerfið heitir TOR-M1 og er færanlegt. Það samanstendur af þremur tegundum af færanlegum eldflaugapöllum. Þeir geta fylgst með tveimur skotmörkum í einu og geta unnið sjálfstætt við nær allar aðstæður.

Erlent

51% kvenna í USA utan hjónabands

Fleiri bandarískar konur búa nú án eiginmanns en með eiginmanni. Sérfræðingar segja að þetta sé í fyrsta sinn í sögu Bandaríkjanna sem svo sé. Árið 1950 var talan 35% og árið 2000 49% en árið 2005 var talan komin upp í 51%. Þetta kom fram í skýrslu New York Times um bandaríska manntalið sem var tekið árið 2005.

Erlent

11 látnir í Írak í morgun

Sjö manns létust og 24 særðust í sprengjuárás við mosku súnní múslima í miðborg Bagdad í morgun. Einn af þeim sem létust í árásinni var lögreglumaður. Tvær sprengjur sprungu og talið er að seinni sprengjan hafi verið á mótorhjóli. Sú fyrri var falin í bíl sem var búið að leggja við vegarkantinn. Fyrr í dag létust fjórir í sprengjuárás í Karrada hluta Bagdad.

Erlent

Skattskylt kókaín

Annað árið í röð hefur Tennessee fylki í Bandaríkjunum grætt meira en eina og hálfa milljón dollara, eða um 106 milljónir íslenskra króna, á eiturlyfjaskatti. Eiturlyfjasalar þurfa að greiða skatt af öllum ólöglegum eiturlyfjum sem þeir eiga en upplýsingar sem verða til þegar þeir borga skattinn er ekki hægt að nota fyrir dómstólum.

Erlent

Fleiri en 34 þúsund létust í Írak á síðasta ári

Sameinuðu þjóðirnar skýrðu frá því í dag að fleiri en 34 þúsund óbreyttir íraskir borgarar hafi látið lífið í Írak á síðasta ári. Tölur látinna fóru þó lækkandi í nóvember og desember samanborið við september og október. Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Írak sagði á fréttamannafundi í morgun að heildartala látinna væri 34.452 og að fleiri en 36 þúsund hefðu særst.

Erlent

Skógareldar í Ástralíu

Miklir eldar hafa geysað í Ástralíu undanfarna daga og hafa þeir valdið rafmagnsleysi víða um suðurhluta landsins. Rafmagnslaust hefur orðið á sjúkrahúsum og á vegakerfum. Talið er að allt að 200.000 manns hafi orðið rafmagnslaus.

Erlent

Fórst vegna veðurs

Rannsóknarmenn hafa sagt frá því að flugvélin sem fórst í Indónesíu fyrir tæpum þremur vikum hafi sennilega farist vegna slæmra veðurskilyrða. Segja þeir ekkert benda til þess að sprenging hafi orðið í vélinni. Líklegast er talið að vélin hafi verið í heilu lagi þegar hún lenti í sjónum og að skrokkur hennar hafi síðan gefið sig vegna þrýstings.

Erlent

ESB og SÞ fordæma aftökur

Sameinuðu þjóðirnar og leiðtogar Evrópusambandsins hafa fordæmt aftökurnar á samstarfsmönnum Saddams Hússein en þær fóru fram fyrir tveimur dögum. Annar var hálfbróðir Saddams og fyrrum yfirmaður leyniþjónustu Íraks en hinn var yfirdómari í tíð Saddams. Þær fengu báðir dóm í sama máli og Saddam var dæmdur til dauða í.

Erlent

Skipaárekstur á Ítalíu

Gámaskip og skíðabátur fyrir farþega rákust saman í höfninni við Messina á Ítalíu í gær. Fjórir létust úr áhöfn skíðabátsins og tugir farþega slösuðust og þar af voru fimm í alvarlegu ástandi. Enginn úr flutningaskipinu slasaðist.

Erlent

Færeyingar íhuga raforkukaup af Íslendingum

Færeyingar íhuga að kaupa raforku frá vatnsaflsvirkjunum á Íslandi til að hita og lýsa híbýli sín og knýja atvinnulífið, í stað þess að nota olíu til þess. Þetta segir Bjarni Djurholm, sem fer með orkumál færeyinga, í viðtali við Jyllands Posten.

Erlent

Kastró veikari en nokkru sinni fyrr

Leiðtogi Kúbu, Fídel Kastró, er nú veikari en nokkru sinni fyrr eftir þrjár misheppnaðar skurðaðgerðir en Kastró þjáist af alvarlegum innvortis sýkingum. Spænskt dagblað sagði frá þessu í gær og hafði heimildir sínar frá lækninum sem fór til Kúbu seint á síðasta ári að annast Kastró.

Erlent

Rice í Sádi-Arabíu

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, hitti í gær konung Sádi Arabíu en Rice er nú á ferðalagi um Mið-Austurlönd til þess að reyna að fá stuðning við nýlega stefnubreytingu George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, í Írak.

Erlent

Leg grædd í konur

Sjúkrahús í New York ætlar sér að framkvæma ígræðslu á legi en slík aðgerð gæti gert konum sem eru með gallað leg kleift að eignast börn. Legin koma frá látnum líffæragjöfum, rétt eins og þegar um er að ræða aðrar líffæraígræðslur.

Erlent

Rafmagnslaust í sólarhring

Meira en sólarhring eftir að versta óveðrið gekk yfir Svíþjóð á sunnudaginn voru stórir hlutar landsins enn rafmagnslausir með öllu. Hvassviðrið hélt áfram, þótt verulega hafi dregið úr því, en á næstu dögum má búast við öðru fárviðri að sögn veðurfræðinga. Djúp lægð er væntanleg á fimmtudaginn.

Erlent

Lést af völdum vatnseitrunar

Kona sem lést eftir að hafa tekið þátt í vatnsdrykkjukeppni um helgina er talin hafa fengið vatnseitrun að því er kemur fram á vef BBC. Of mikil vatnsdrykkja getur leitt til þess að heilinn bólgni. Þar sem höfuðkúpan umlykur hann skapast við það þrýstingur á heilann sem hamlar honum að stýra lífsnauðsynlegum verkefnum á borð við öndun og manneskjan deyr.

Erlent

Condolezza Rice boðar til leiðtogafundar

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætlar að hitta þá Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínustjórnar, á næstu vikum til að ræða hugmyndir um stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna.

Erlent

Vilja bann við hatursglæpum

Brigitte Zypries, dómsmálaráðherra Þýskalands, segir Þjóðverja ætla að vinna að því að Evrópusambandið samþykki bann við svonefndum hatursglæpum, sem felast í því að hvetja til ofbeldis og haturs – meðal annars með því að afneita því að helför gyðinga á tímum nasista hafi nokkru sinni átt sér stað.

Erlent

Pepsi varaði Coca-Cola við

Fyrrverandi ritari hjá Coca-Cola fyrirtækinu er ákærður fyrir að hafa tekið trúnaðargögn og sýni af vöru sem ekki var búið að kynna, í þeim tilgangi að selja til samkeppnisaðilans Pepsi. Verjandi ritarans segir hann hafa verið fórnarlamb blekkinga tveggja fyrrverandi fanga sem einnig eru ákærðir.

Erlent

Deilur í Mexíkó

Áform yfirvalda mexíkóska fylkisins Coahuila um að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra hefur valdið miklum titringi í landinu. Stjórnarflokkur Felipes Calderon forseta hefur mótmælt frumvarpi að lögum um hjónabönd samkynhneigðra, sem og kaþólska kirkjan, en hún kallar þau aðför að hjónabandinu.

Erlent

Áhætta tengd geni

Hópur vísindamanna frá ýmsum löndum hefur fundið gen sem virðist auka líkurnar á því að fólk fái Alzheimer-sjúkdóminn. Vonast er til að þessi uppgötvun geri vísindamönnum auðveldara að finna meðferð gegn sjúkdómnum þegar fram líða stundir.

Erlent

Kastali Drakúla settur á sölu

Hinn sögufrægi Bran-kastali í Transylvaníu í Rúmeníu hefur verið auglýstur til sölu fyrir sextíu milljónir evra. Kastalinn, sem var reistur á 15. öld, er af sumum talinn hafa verið heimili hins blóðþyrsta fursta Vlad Tepes. Engar sannanir eru fyrir því en margt bendir til að Tepes hafi dvalið í kastalanum í einhvern tíma hið minnsta.

Erlent

Næstráðendur Saddams hengdir

Hálfbróðir Saddams Hussein og fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustu Íraks, Barzan Ibrahim, og fyrrverandi yfirdómari í Írak, Awad Hamed al-Bandar voru teknir af lífi með hengingu fyrir dögun í gær. Eftir aftökurnar greindi talsmaður stjórnvalda frá því að höfuð Ibrahims hefði losnað frá líkamanum við henginguna í því sem hann kallaði „sjaldgæft slys“.

Erlent

Hústökufólk fjarlægt

Lögreglan í Kaupmannahöfn rýmdi í gær hús við Dortheavej sem hústökufólk hafði haft á valdi sínu. Aðgerðir lögreglunnar gengu friðsamlega fyrir sig. Danskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær.

Erlent