Erlent
Japanskur þingmaður opnar skrifstofu í Second Life Japanskur þingmaður varð nýverið sá fyrsti til þess að opna skrifstofu í sýndarveruleikanum Second Life. Þingmaðurinn, Kan Suzuki, freistar þess að ná endurkjöri á þing í kosningum sem fram fara í júlí. Sýndarveruleikinn Second Life hefur um sjö milljón skráða notendur. Erlent 11.6.2007 07:59
Breska strandgæslan leitar svara Tveggja ára barn sem fannst fljótandi undan suðurströnd Englands í gærkvöldi er látið. Ekki hefur verið skýrt frá nafni þess. Barnið fannst um 400 metra frá tómum Zodiac bát, rúma mílu frá Littlehampton í Vestur Sussex. Breska strandgæslan segir málið allt hið undarlegasta. Erlent 11.6.2007 07:41
Miklar rigningar í Kína Milljónir hafa þurft á hjálp að halda og að minnsta kosti 23 hafa látið lífið í miklum rigningum í Kína. Á sumum stöðum hefur rignt látlaust í fjóra daga. Tæplega 160 þúsund manns hafa misst heimili sín vegna rigninganna. Skriður hafa einnig fallið vegna rigningarinnar og þá hafa miklir vindar eyðilagt heilu hverfin. Erlent 11.6.2007 07:18
Bush lofar Búlgörum stuðningi George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, er nú í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu, en hann lýkur þar átta daga ferðalagi sínu um Evrópu. Erlent 11.6.2007 07:16
Kínverskar verksmiðjur sakaðar um barnaþrælkun Verksmiðjur í Kína hafa verið sakaðar um barnaþrælkun í framleiðslu á varningi fyrir Ólympíuleikanna sem fram fara í landinu á næsta ári. Barnaþrælkun er ekki það eina sem verksmiðjurnar eru sakaðar um. Erlent 11.6.2007 07:15
UMP vinnur stórsigur í Frakklandi Samkvæmt útgönguspám í Frakklandi mun flokkur Nicolas Sarkozy, forseta landsins, vinna stórsigur í þingkosningum. Fyrri umferð þeirra fór fram nú um helgina. Talið er að flokkur hans eigi eftir að hljóta að minnsta kosti 383 af 577 þingsætum, eða um sextíu og sjö prósent þeirra. Erlent 11.6.2007 07:08
Dýrka Filippus prins sem guð Filippus prins, eiginmaður Elísabetar Englandsdrottningar, er dýrkaður sem guð af frumbyggjaættflokki á eyju í Vanúatú-eyjaklasanum í Suður-Kyrrahafi. Erlent 11.6.2007 06:00
George Bush tekið sem hetju í Albaníu George W. Bush var fagnað sem hetju í fyrstu heimsókn Bandaríkjaforseta til Albaníu í gær. Í Tirana sagði hann að það gengi ekki að ræða út í það óendanlega um sjálfstæði Kosovo-héraðs, sem enn tilheyrir formlega Serbíu en hinn albanski meirihluti íbúanna vill að fái sjálfstæði sem fyrst. Erlent 11.6.2007 05:15
Nefnd semji ljóð við þjóðsönginn Leiðtogi stjórnarandstöðuflokks á Spáni hyggst flytja frumvarp þess efnis að skipuð verði nefnd sem hefði það hlutverk að semja texta við þjóðsöng Spánverja. Erlent 11.6.2007 04:15
Sverð Napóleons á 400 milljónir Gullskreytt sverð Napóleons Bónaparte, sem hann notaði í herför á Norður-Ítalíu árið 1800, var í gær selt á uppboði í Frakklandi fyrir 4,8 milljónir evra, sem svarar 408 milljónum króna. Erlent 11.6.2007 03:45
Ríkisstjórn Verhofstadts fallin Ríkisstjórnarflokkar frjálslyndra og sósíalista biðu afhroð í kosningum til belgíska sambandsþingsins í gær, samkvæmt fyrstu tölum eftir að kjörstöðum var lokað. Erlent 11.6.2007 03:15
Öruggur sigur hægrimanna Kjósendur í Frakklandi virtust ætla að veita Nicolas Sarkozy forseta ótvírætt umboð til að hrinda í framkvæmd efnahagsumbótaáformum sínum, með því að veita hinum hófsama hægriflokki hans, UMP, stórt forskot á keppinauta til vinstri í kosningum til þjóðþingsins í gær. Erlent 11.6.2007 03:00
Vill láta loka Guantanamo Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að hann teldi ráðlegast að loka tafarlaust herfangelsinu við Guantanamo-flóa á Kúbu og flytja fangana í fangelsi í Bandaríkjunum. Erlent 11.6.2007 02:45
Yfirvöld segja að þeim líði vel Danskir skipverjar, sem var rænt undan ströndum Sómalíu fyrir viku, eru enn í haldi mannræningja. Dönsk yfirvöld segja að ekki sé vitað annað en að þeim líði vel. Þau gáfu hvorki nánari skýringar á líðan þeirra né hvort lausnargjalds hefði verið krafist. Erlent 11.6.2007 02:15
Smitaði táningsstúlkur af HIV Rúmlega þrítugur maður hefur verið handtekinn í Svíþjóð grunaður um að hafa smitað tvær stúlkur af HIV. „Við teljum að hann hafi verið í sambandi við alls um 130 stúlkur og ungar konur sem hann hitti á netinu,“ segir Diana Sundin hjá lögreglunni í Stokkhólmi á vefútgáfu Aftonbladet. Erlent 11.6.2007 01:30
Sex manns finnast skotin Sex manns fundust látin af skotsárum í íbúðarhúsi í Delavan í Wisconsin, um 60 km suðvestur af Milwaukee, að því er lögregla greindi frá í gær. Auk þess fannst tveggja ára stúlkubarn með skotsár á brjósti í bíl skammt frá húsinu. Stúlkan er nú þungt haldin á sjúkrahúsi. Erlent 11.6.2007 01:15
Slaka á reglum Bandarísk stjórnvöld hafa slakað á reglum sem varða vegabréfaeftirlit. Hertar reglur voru settar eftir árásirnar á tvíburaturnana árið 2001. Þær hafa valdið því að bandarískir ferðalangar hafa þurft að bíða í marga mánuði eftir að fá vegabréf sín. Erlent 11.6.2007 00:30
Gat á hitahlíf Atlantis Bandaríska geimferjan Atlantis lagðist upp að alþjóðlegu geimsstöðinni nú undir kvöld heilu og höldnu. Á leiðinni að stöðinni kom í ljós lífið gat sem hafði komið á hitahlíf geimferjunnar. Erlent 10.6.2007 20:30
Sverð Napóleons selt á 400 milljónir Gullbryddað sverð sem áður var í eigu Napóleons Frakkakeisara var selt á litlar 4,8 milljónir evra, jafnvirði rúmlega 400 milljóna íslenskra króna á uppboði í Frakklandi í dag. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir mun sem áður var í eigu keisarans. Erlent 10.6.2007 20:05
Uppreisnarmenn sprengja upp brú nærri Bagdad Uppreisnarmenn í Írak sprengdu í dag upp brú nærri Bagdad sem Bandaríkjaher notar en ekki liggur fyrir hvort einhver hafi særst eða látist í tilræðinu. Svo virðist sem um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða. Erlent 10.6.2007 19:36
Útlit fyrir stórsigur mið- og hægrimanna í Frakklandi Útgönguspár benda til þess að bandalag mið- og hægrimenn hafi unnið stórsigur í frönsku þingkosningunum í dag og hafi ríflegan meirihluta í neðri deild þingsins - sjötíu til áttatíu prósent þingsæta. Endanleg úrslit liggja þó ekki fyrir fyrr en eftir viku. Einnig var kosið til þings í Belgíu í dag og benda fyrstu tölur til þess að stjórn frjálslyndra og sósíalista sé fallin. Kristilegir demókratar í Flæmingjalandi eru sigurvegarar kosninganna með rúm þrjátíu prósent atkvæða. Erlent 10.6.2007 18:30
Madeleine Svíaprinsessa 25 ára í dag Fjöldi fólks kom saman við konungshöllina í Stokkhólmi í dag til þess að samgleðjast með Madeleine Svíaprinsessu sem fagnaði 25 ára afmæli sínu. Erlent 10.6.2007 17:54
Útlit fyrir að stjórnin sé fallin í Belgíu Útlit er fyrir að átta valdatíð Guys Verhofstadts, forsætisráðherra Belgíu, sé á enda því fyrstu tölur eftir þingkosningar í dag benda til þess að kjósendur hafi fellt ríkisstjórn frjálsyndra og sósíalista í landinu. Erlent 10.6.2007 17:16
Tugir látnir eftir flóð í Kína Á sjöunda tug manna eru látnir og yfir 600 þúsund hafa þurft að yfirgefa heimili sín eftir mikil flóð í suðurhluta Kína. Flóðin má rekja til mikilla rigninga í nokkrum héruðum landsins en þar hefur rignt sleitulaust í fjóra daga. Erlent 10.6.2007 16:38
Powell: Ég myndi loka Guantánamo í strax í dag Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, vill að Bandaríkjastjórn loki fangabúðunum við Gunatánamo-flóa hið fyrsta. „Ef ég fengi að ráða myndi ég loka búðunum strax í kvöld," sagði Powell í þættinum Meet the Press á NBC-sjónvarpsstöðinni í dag. Erlent 10.6.2007 16:16
Áttunda hverju barni í Danmörku enn þá refsað með ofbeldi Því fer fjarri að foreldrar séu hættir að rassskella börn sín eða refsa þeim á annan hátt með ofbeldi í Danmörku. Þetta sýnir ný rannsókn sem greint er frá vef Jótlandspóstins. Erlent 10.6.2007 15:35
Galdranornir brenndar í Úganda Þrjár konur, sem sakaðar voru um fjölkynngi, voru grýttar og svo brenndar lifandi í flóttamannabúðum í Úganda á dögum. Eftir því sem Sky-sjónvarpsstöðin greinir frá mun ökumaður leigumótorhjóls hafa tekið undarlega sótt sem læknar á svæðinu gátu ekki skýrt en hún dró manninn að lokum til dauða. Erlent 10.6.2007 15:17
Á þriðja tug slasaður eftir umferðarslys í Belgíu Tuttugu og þrír slösuðust, þar af fjórir alvarlega, þegar rúta með breska ferðamenn ók á bíl og í framhaldinu á hús í bænum Middelkerke í Belgíu í dag. Nítján hinna slösuðu voru í rútunni en tveir farþegar í bílnum og tveir íbúar í húsinu slösuðust lítillega í óhappinu. Erlent 10.6.2007 14:55
Sjö skotnir í heimahúsi í Wisconsin Lögregla hefur fundið sex manns látna og barn illa sært eftir skotárás í bænum Delavan í suðurhluta Wisconsin-ríkis í Bandaríkjunum. Erlent 10.6.2007 14:36
Paris Hilton ætlar að taka út sína refsingu Bandaríski hótelerfinginn Paris Hilton segist ekki ætla að aðhafast frekar vegna fangelsisvistar sinnar heldur sitja inni þann tíma sem dómstólar ákveði. Í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í gær hvetur hún fjölmiðla til þess að snúa sér að öðrum málum en hennar, til að mynda Íraksstríðinu. Erlent 10.6.2007 13:28