Erlent
Lítið undir ökuníðingum ? Ástralir hafa hrundið af stað herferð gegn hraðakstri, sem virðist virka á unga menn. Stúlkur eru hvattar til að gefa þeim litla fingurinn, og er þar verið að vísa til fjölskyldudjásna þeirra. Erlent 18.10.2007 14:41
Fagnaðarlæti við komu Bhutto til Pakistans Þúsundir manna fögnuðu Benasír Bhutto við heimkomuna til Pakistans, eftir átta ár í útlegð. Benasír Bhutto hefur verið í sjálfskipaðri útlegð í Bretlandi síðan 1999. Hún hyggst leiða flokk sinn, Þjóðarflokk Pakistans, í kosningabaráttu á næstunni. Erlent 18.10.2007 12:42
Áströlsk börn fundu lík í ferðatösku Hópur barna sem var við leik í almenningsgarði í Ástralíu fann nakið lík barns þegar þau opnuðu ferðatösku sem flaut í tjörn í garðinum. Lögregla leitar nú á svæðinu Rosemeadow í úthverfi Sydney og ræðir við vitni í leit að vísbendingum. Erlent 18.10.2007 12:02
Frakklandsforseti skilur við konu sína Nicolas Sarkozy forseti Frakklands og eiginkona hans Cecilia hafa ákveðið að skilja. Erlent 18.10.2007 11:39
Feitir farþegar ógna flugöryggi SAS flugfélagið hefur beðið öryggisyfirvöld í Skandinavíu að breyta viðmiðunarreglum um þyngd flugfarþega. Erlent 18.10.2007 11:27
Norskir biskupar skera upp herör gegn samkynhneigðum Níu af ellefu biskupum Noregs hafa hótað að hætta að gifta fólk í kirkjum landsins ef ný lög um vígslu samkynhneigðra verða samþykkt. Erlent 18.10.2007 10:41
Bhutto grét við komuna til Pakistan Benazir Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan lenti á flugvelli í Karachi stærstu borgar Pakistan nú rétt í þessu eftir átta ára útlegð. Hundruð þúsunda hafa safnast saman á götum borgarinnar til að fagna komu hennar til landsins. Bhutto tárfelldi og sagðist vera mjög spennt, glöð og afskaplega stolt. Lýðræði yrði að vera til staðar í landinu. Erlent 18.10.2007 09:50
Mannakjöt bragðast eins og svínakjöt - bara örlítið beiskara Þýska mannætan, Armin Meiwes, segist hafa beðið í yfir þrjátíu ár eftir að fá að bragða á mannakjöti. Þetta kom fram í viðtali sem þýska sjónvarpsstöðin RTL tók við hann fyrir skemmstu. Meiwes segir mannakjöt bragðast eins og svínakjöt. Erlent 18.10.2007 09:08
Stal traktorum sér til gamans Lögreglan í Sönderborg í Danmörku handtók í gær karlmann á þrítugsaldri fyrir að stela tveimur traktorum og gröfu. Svo virðist sem maðurinn hafi stolið vélunum sér til gamans. Erlent 18.10.2007 08:41
Kínverjar sármóðgaðir út í Bandaríkjamenn Kínverjar hafa gagnrýnt Bandaríkjamenn harðlega fyrir að hafa veitt Dalai Lama, andlegum leiðtoga Tíbet, Gullorðu Bandaríkjaþings í gær. Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins segir orðuveitinguna hafa grafið undan samskiptum landanna. Erlent 18.10.2007 08:26
Einn lagður inn á spítala eftir að hafa drukkið mengað vatn í Osló Íbúar Óslóar þurfa að minnsta kosti að bíða í tvær vikur áður en þeir geta óhræddir neytt drykkjarvatns úr krönum á ný. Þangað til er fólki ráðlagt að sjóða allt vatn í þrjár mínútur fyrir neyslu. Einn maður hefur verið lagður inn á spítala. Erlent 18.10.2007 08:01
Bhutto snýr aftur til Pakistan Um tuttugu þúsund manns söfnuðust saman í borginni Karachi í Pakistan í morgun til að taka móti Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans og leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Erlent 18.10.2007 07:10
Lestarsamgöngur í Frakklandi lamast vegna verkfalls Búist er miklum töfum á lestarsamgöngum í Frakklandi í dag vegna verkfalls opinberra starfsmanna þar í landi. Verkfallið hófst hófst klukkan sex í gær og stendur einn sólarhring. Erlent 18.10.2007 07:07
Ný skýrsla boðar miklar loftlagsbreytingar Gert er ráð fyrir miklum breytingum á lífríki á norðurskautssvæðinu á næstu árum og áratugum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um loftlagsbreytingar. Erlent 18.10.2007 06:59
Hóf skothríð í dómssal Þrír létust í réttarsal í smábænum Reggio Emilia á Norður-Ítalíu í dag þegar óður maður dró upp byssu og hóf skothríð. Byssumaðurinn, Klirim Fejzo, var í réttarsalnum að hlýða á framburð fyrrverandi konu sinnar í skilnaðarmáli þeirra tveggja þegar hann hóf skothríðina. Erlent 17.10.2007 22:48
Minn bingó vinningur....nei minn Breskur dómari hefur stöðvað greiðslu á 120 milljóna króna bingó vinningi eftir heiftarlegar fjölskyldudeilur um hver ætti hvað. Erlent 17.10.2007 16:52
Mamma Madeleine ekki nógu móðurleg Kate McCann telur að hún sé áreitt af fólki sem telji hana flækta í hvarf Madeleine af því að útlit hennar sé ekki nógu móðurlegt. Susan Healy, móðuramma Madeleine viðurkennir að hjónin hafi gert hræðileg mistök þegar þau skildu börnin þeirra þrjú eftir ein í íbúðinni í Praia da Luz. Erlent 17.10.2007 16:38
Bannað að reykja utandyra Borgarstjórnin í Oakland í Kaliforníu hefur einróma samþykkt ný lög sem banna reykingar utandyra á veitingahúsum. Erlent 17.10.2007 16:09
Angelina Pedersen Ozzy, Scarlett, Angelina, Bono og Shakira eru flutt til Danmerkur. Og einnig John Lennon. Erlent 17.10.2007 15:10
Tyrkneski herinn fékk heimild til innrásar í Írak Tyrkneska þingið samþykkti í dag með miklum meirihluta að gefa tyrkneska hernum heimild til þess að ráðast á víghreiður Kúrda í Norður-Írak. Erlent 17.10.2007 15:05
Ofurherskip til skrauts í norskum höfnum Norska ríkisendurskoðunin segir að norski flotinn hafi ekki aðstöðu til þess að þjálfa mannskap á nýjar ofurfreigátur sem pantaðar hafa verið frá Spáni. Erlent 17.10.2007 14:18
Fáleikar með Danaprinsum Danska Extra Bladet heldur því fram að kalt sé milli þeirra bræðra Friðriks krónprins og Jóakims. Erlent 17.10.2007 13:28
Ævaforn fótspor bylta þróunarkenningum Breskir vísindamenn fundu fyrir skömmu steingervð fótspor af eðlu sem talin eru vera um 315 milljón ára gömul. Uppgötvunin bendir til þess að eðlur hafi komið fram á sjónarsviðið mun fyrr en áður hefur verið talið. Erlent 17.10.2007 12:39
Íransforseta boðið til Rússlands Pútín Rússlandsforseti hefur boðið Ahmadinejad Íransforseta í opinbera heimsókn til Moskvu til að ræða samskipti ríkjanna og kjarnorkudeiluna við Írana. Íransforseti hefur þekkst boðið. Erlent 17.10.2007 12:22
Leyniþjónustumaður ákærður í máli Önnu Politkovskaya Níu hafa verið ákærði í Rússlandi fyrir morðið á blaðamanninum Önnu Politkovskaya sem var skotin til bana í október á síðasta ári. Meðal þeirra sem eru ákærðir er yfirmaður í rússnesku leyniþjónustunni. Erlent 17.10.2007 11:39
Hún gæti verið dáin -foreldrar Madeleine Foreldrar Madeleine McCann hafa nú viðurkennt í fyrsta skipti að hún kunni að vera dáin. Þau hafa fram til þessa ekki viljað ljá máls á því. Erlent 17.10.2007 11:31
Myrti eiginkonu sína í réttarsal Þrír létust og tveir særðust þegar albanskur karlmaður hóf skothríð inni í réttarsal í borginni Reggio Emilia á Ítalíu í morgun. Meðal þeirra sem létust var kona mannsins en réttarhöld í skilnaðarmáli þeirra hjóna stóðu yfir þegar maðurinn skaut hana. Erlent 17.10.2007 11:16
Bróðir barnaníðings; gefðu þig fram Bróðir barnaníðingsins sem alþjóðalögreglan Interpol leitar að hefur hvatt hann til þess að gefa sig fram. Erlent 17.10.2007 11:04
Bretar íhuga að gera tilkall til svæða við Suðurskautslandið Bresk stjórnvöld íhuga nú að gera tilkall til yfirráðar yfir hafsvæði við Suðurskautslandið sem er um milljón ferkílómetrar að stærð. Með því vilja Bretar tryggja hagsmuni sína á svæðinu en frestur til að gera tilkalla til svæða við Suðurskautslandið rennur út í maímánuði árið 2009. Erlent 17.10.2007 11:04
Drykkjarvatn Oslóar eitrað Hættulegur sníkill hefur fundist í drykkjarvatni frá veitu sem sér 80 prósentum Oslóarborgar fyrir vatni. Erlent 17.10.2007 10:30