Erlent

Hún gæti verið dáin -foreldrar Madeleine

Óli Tynes skrifar
Madeleine McCann.
Madeleine McCann.
Foreldrar Madeleine McCann hafa nú viðurkennt í fyrsta skipti að hún kunni að vera dáin. Þau hafa fram til þessa ekki viljað ljá máls á því. Talsmaður fjölskyldunnar sagði við fréttamenn að hjónin hafi ekki gefið upp vonina um að hún sé einhversstaðar á lífi og að einhver passi upp á hana.

Það sé þó í eðli fólks að óttast það versta og að þau séu nógu raunsæ til þess að gera sér grein fyrir að líklega sé hún dáin. Talsmaðurinn sagði að þau hefðu óendanlega þörf fyrir að vita hvað varð um dóttur þeirra.

Fimm mánuðir eru nú liðnar frá því Madeleine hvarf á Algarve ströndinni í Portúgal, þar sem hún var í sumarfríi með foreldrum sínum og tvíburasystkinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×