Erlent

Obama skoraði þrennu og Huckabee tvennu

Barak Obama skoraði þrennu í forkosningunum í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Obama vann í öllum þremur ríkjunum sem kosið var í, Louisiana, Nebraska og Washington. Eftir gærkvöldið hefur Obama jafnmarga kjörmenn og Hillary Clinton.

Erlent

Réttindi homma og lesbía ógna færeysku stjórninni

Hin nýja stjórn Færeyja hefur ákveðið að leggja í salt umræður um réttindi homma og lesbía á eyjunum. Þetta getur repúblikaninn Funnur Helmsdal ekki sætt sig við og segir að hann muni styðja frumvarp um aukin réttindi homma og lesbía verði slikt lagt fram á þinginu á Færeyjum.

Erlent

Boðað til kosninga í Búrma

Herforingjastjórnin í Búrma boðaði í dag til þingkosninga í landinu árið 2010. Kosningarnar verða þær fyrstu í Búrma í tvo áratugi.

Erlent

Einn stærsti pottur í sögu Evrópulottósins

Það voru fjölmargir sem fengu dágóða upphæð í vasann þegar dregið var í evrópulottóinu í gærkvöldi. Potturinn var jafnvirði nærri fjórtán milljarða króna og einn sá stærsti í sögu lottósins.

Erlent

Pútín: Nýtt vígbúnaðarkapphlaup hafið

Pútín, Rússlandsforseti, segir nýtt vígbúnaðarkapphlaup hafið í heiminum. Hann fordæmir stækkun Atlantshafsbandalagsins upp að landamærum Rússlands og áform Bandaríkjamanna um eldflaugavarnarkerfi í Póllandi og Tékklandi.

Erlent

Handtekinn vegna smygls á fólki í gastanki

Ökumaður flutningabíls sem hafði átta laumufarþega í gastanki bílsins þegar hann var stöðvaður í suðurhluta Lundúna hefur verið handtekinn vegna gruns um að smygla fólki á milli landa. Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar er hinum 55 ára gamla ökumanni haldið á lögreglustöð í suðurhluta borgarinnar á meðan verið er að hlúa að fólkinu sem andaði að sér gasi.

Erlent

Áforma samsteypustjórn í Kenía

Stjórnarflokkur Kenía og stjórnarandstaðan hafa komist að tímamótasamkomulagi um samsteypustjórn. Viðræður hafa staðið yfir í höfuðborginni Naíróbí sem miða að því að enda átök síðustu vikna í landinu. Enn er ekki ákveðið hver muni leiða samsteypustjórn eða hlutverk flokkanna í henni.

Erlent

Picasso verkum stolið úr sýningarsal

Tveimur málverkum eftir Pablo Picasso var stolið af svissneskri listasýningu á verkum meistarans á miðvikudag. Verkunum var stolið eftir lokun sýningarsalarins í bænum Pfaeffikon í Zurich.

Erlent

Smyglfarþegar gasflutningabíls á sjúkrahúsi

Átta manns eru á sjúkrahúsi með snert af gaseitrun eftir að þeir fundust í tanki gasflutningabíls frá Þýskalandi í suðurausturhluta London. Laumufarþegarnir uppgötvuðust þegar bílstjórinn stöðvaði á Harrow Manorway í Bexley til að athuga farminn.

Erlent

Sarkozy blæs nýju lífi í úthverfi

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti er að leggja lokahönd á áætlun um að blása nýju lífi í úthverfi sem aðallega eru byggð innflytjendum. Meðal áforma er betri menntun og atvinnumöguleikar, sérstaklega fyrir ungt fólk.

Erlent

Byssumaður banaði fimm í ráðhúsi St. Louis

Byssumaður skaut fimm manns til bana í ráðhúsi St. Louis í Bandaríkjunum og særði fjóra, þar á meðal borgarstjórann, áður en lögregla skaut hann banaskoti. Byssumaðurinn var þekktur fyrir að hafa óbeit á borgarfulltrúum og embættismönnum borgarinnar. Samkvæmt upplýsingum lögreglu réðist byssumaðurinn inn á fund í ráðhúsinu og öskraði „Skjótið borgarstjórann!"

Erlent

Mitt Romney hættur

Mitt Romney hefur nú staðfest þann orðróm að hann sé hættur við að sækast eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum fyrir komandi forsetakostningar. Þetta kom fram í ræðu sem Romney hélt nú rétt í þessu.

Erlent

Höfuðlaust lík fannst í London

Höfuðlaust lík manns fannst bakvið verslun í norðvesturhluta Lundúna í gær. Fyrstu rannsóknir benda til að höfuðið hafi verið tekið af eftir að maðurinn dó samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar.

Erlent

Jolie segir Íraka þurfa hjálp

Óskarsverðlaunaleikkonan Angelina Jolie er í heimsókn í Írak í von um að þrýsta á lausn vandamála tveggja milljóna landflótta Íraka. Hún segir fólkið í þessu stríðshrjáða landi vera „mjög mjög varnarlaust” og tilraunir til að leysa vanda þeirra afar máttlausar.

Erlent

ÖSE sniðgengur forsetakosningar í Rússlandi

Helsti kosningaeftirlitsaðili í Evrópu segist munu sniðganga forsetakosningar í Rússlandi sem fram fara 2. mars næstkomandi. Stjórn Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu hefur deilt við Rússa um stærð og umfang eftirlitsins.

Erlent

Tveir í haldi vegna morðsins á Bhutto

Pakistanska lögreglan hefur handtekið tvo menn sem hún segir „mjög þýðingarmikla meinta hryðjuverkamenn” í tengslum við morðið á Benazir Bhutto stjórnarandstöðuleiðtoga. Tilkynning embættismanna í öryggismálum kemur á sama tima og 40 daga sorgartímabili lýkur í Pakistan vegna fráfalls Bhutto. Auk þess snúa nú tveir rannsóknarlögreglumenn Scotland Yard til Pakistan á ný til að hjálpa til við rannsókn morðsins.

Erlent

Segir að Dodi hafi verið Díönu ótrúr

Hljóðupptaka af símtali á milli Kelly Fisher fyrirsætu og fyrrverandi kærasta hennar Dodi Al Fayed var lögð fyrir réttarrannsóknina á dauða Díönu prinsessu í gær. Í símtalinu sem fyrirsætan tók upp segir hún að Dodi að hafi flogið með hana til St. Tropez þar sem hún hefði mátt dúsa í bát á daginn á meðan hann gerði sér dælt við Díönu. Síðan hafi hann eytt nóttunum með henni.

Erlent