Erlent
Fayed ber vitni í Díönurannsókn í dag Mohamed al Fayed mun bera vitni fyrir rannsóknarnefndinni um dauða Díönu prinsessu í dag. Erlent 18.2.2008 09:07
Dræm kjörsókn í Pakistan í upphafi kjördags Kjörstaðir í Pakistan hafa nú verið opnir í fjóra tíma en kjörsókn virðist dræm víðsvegar í landinu í byrjun kjördags. Erlent 18.2.2008 09:04
Líkurnar aukast á að finna líf á öðrum plánetum Ný rannsókn hefur leitt í ljós að sennilega séu mun fleiri plánetur sem líkjast jörðinni að gerð í Vetrarbrautinni en áður var talið. Og þar með aukast líkurnar á að líf finnist á öðrum plánetum. Erlent 18.2.2008 08:46
Yfir þúsund lögreglumenn réðust inn í úthverfi Parísar Yfir þúsund franskir lögreglumenn réðust inn í eitt af úthverfum Parísar í morgun og leituðu að persónum sem stóðu fyrir uppþotunum í borginni í nóvember í fyrra. Alls hafa um 30 manns verið handteknir en ekki er vitað hvort meðal þeirra séu þeir sem lögreglan leitar að. Erlent 18.2.2008 08:13
Ráðherrafundur EB um Kosovo haldinn í dag Utanríkisráðherrar Evrópubandalagsins koma saman til fundar í dag til að ræða sjálfstæði Kosovo. Reiknað er með að mörg ríki innan bandalagsins muni viðurkenna sjálfstæði Kosovo í dag. Erlent 18.2.2008 07:17
Ekkert lát á íkveikjum í Danmörku Ekkert lát varð á íkveikjum í Danmörku í gærkvöldi og nótt og sitja nú tíu manns í fangageymslum lögreglu af þeim sökum. Erlent 18.2.2008 07:15
Lagði út um hálfa milljón vegna morðsins á Bhutto Talibani af pakistönskum uppruna greiddi rúmlega sjö þúsund dollara, jafnvirði nærri hálfrar milljónar króna, fyrir morðtilræðið við Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans. Erlent 17.2.2008 23:08
Innkalla 65 þúsund tonn af nautakjöti í Bandaríkjunum Landbúnaðarstofnun Bandaríkjanna hefur innkallað 143 milljónir punda, um 65 þúsund tonn, af frosnu nautakjöti frá sláturhúsi í Kaliforníu vegna gruns um illa meðferð í nautgripum þar. Erlent 17.2.2008 22:49
Áfram óeirðir í Danmörku - um 400 eldar á þremur kvöldum Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið tíu manns í eftirmiðdaginn og í kvöld í tengslum við óeirðir og elda sem kveiktir hafa verið til þess að mótmæla endurbirtingu mynda af Múhameð spámanni í dönskum blöðum í síðustu viku. Erlent 17.2.2008 22:19
Stjórnvöld í Kósóvó hafa lýst yfir sjálfstæði Stjórnvöld í Kósóvó lýstu í dag yfir sjálfstæði héraðsins. Mikil spenna hefur ríkt undanfarna daga vegna þessarar ákvörðunar sem tekin er í óþökk Serba og Rússa. Fyrir helgi samþykkti Evrópusambandið að senda tvö þúsund manna gæslulið til Kósóvó til að annast eftirlit með lög- og dómgæslu og borgaralegri stjórn í héraðinu eftir að sjálfstæði hefði verið lýst yfir. Erlent 17.2.2008 15:51
80 þúsund hermenn gæta öryggis í Pakistan Áttatíu þúsund hermenn eru að störfum víðsvegar í Pakistan til að tryggja öryggi fyrir þingkosningar sem fara fram í landinu á morgun. Asif Ali Zardari, ekkill Benazir Bhutto og leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins í landinu kallar eftir friði eftir að sjálfsmorðssprengja varð 37 manns að bana þar í gær. Erlent 17.2.2008 14:47
Bush vill tryggja frið í Kósóvó Bush Bandaríkjaforseti segir að allt verði gert til að tryggja að ekki komi til átaka í Kosovo-héraði þegar að ráðamenn þar lýsa yfir sjálfstæði frá Serbíu. Fastlega er búist við að það gerist í dag. Erlent 17.2.2008 10:42
Áttatíu féllu í sjálfsvígsárás í Kandahar Minnst áttatíu féllu og fjölmargir særðust í sjálfsvígssprengjuárás á vinsælum útivistarstað í Kandahar-héraði í Suður-Afganistan í morgun. Árásin er sú mannskæðasta í landinu í marga mánuði. Héraðsstjórinn í Kandahar segir Talíbana hafa verið að verki en þeir hafa ekki lýst árásinni á hendur sér. Erlent 17.2.2008 10:29
Leiðtogar í Kenýu verða ekki þvingaðir Utanríkisráðherra Kenýa segir ekki hægt að þvinga ráðamenn þar í landi til að semja um lausn á deilunni um úrslit forsetakosninga í desember. Erlent 17.2.2008 09:58
Kveiktu í barnaheimili í Árósum Kveikt var í barnaheimili í Tilst, úthverfi Árósa, á sjöunda tímanum í kvöld að íslenskum tíma. Lögreglan segir að hættan sé yfirstaðin og tveir piltar á aldrinum 15 og 16 ára hafi verið handteknir. Slökkvistarf er lokið og talið er að einungis lítill hluti af barnaheimilinu hafi eyðilagst. Erlent 16.2.2008 20:32
Sjö létust í ólöglegum kappakstri Sjö manns létust þegar bíll keyrði inn í mannþröng í ólöglegum kappakstri í Maryland í Bandaríkjunum. Slysið varð klukkan tuttugu mínútur í níu í morgun að íslenskum tíma, um 32 kílómetrum frá Washington DC, höfuðborg Bandaríkjanna. Auk þeirra sjö sem létust slösuðust fjórir, að sögn lögreglunnar. Ekki er vitað nánar um ástand hinna slösuðu. Erlent 16.2.2008 20:15
Eistar bjóða samstarf Utanríkisráðherra segir Eistlendinga fremsta þjóða í vörnum gegn tölvuglæpum. Margt sé hægt að læra af þeim í vörnum gegn þessari einni helstu öryggisógn tuttugust og fyrstu aldarinnar. Erlent 16.2.2008 18:58
Sækir um pólitískt hæli Einn kosningastjóra stjórnarandstöðunnar í Kenýa hefur sótt um hæli sem pólitískur flóttamaður á Íslandi. Vegabréfsáritun hans rennur út á mikvikudaginn, en hann segist vera á aftökulista yfirvalda í Kenýa. Erlent 16.2.2008 18:48
Allt logar í Danmörku Í gærkvöldi og nótt loguðu eldar í fleiri dönskum bæjum en áður, meðal annars í Kaupmannahöfn, Árósum og Óðinsvéum. Reið ungmenni kveiktu í ruslagámum, bílum og skólum. Erlent 16.2.2008 18:47
Hátt í 40 létust í sjálfsmorðssprengingu í Pakistan Þrjátíu og sjö manns biðu bana og níutíu særðust í sjálfsmorðssprengingu á fundi stuðningsmanna Benazir Bhuttos heitinnar í Parachirans í Pakistan í dag. Sprengjuárásin var gerð á lokadegi kosningabaráttu fyrir þingkosningar sem fara fram í landinu á mánudaginn. Erlent 16.2.2008 16:48
Bíll sem nýtist sem kafbátur Svissneski bílaframleiðandinn Rinspeed hefur búið til bíl sem hægt er að aka á þurru landi en líka hægt að nota sem kafbát. Erlent 16.2.2008 13:06
Evrópusambandið sendir 2000 manna lið til Kósóvó Evrópusambandið samþykkti í gærkvöldi að senda tvö þúsund manna gæslulið til Kósóvó til að annast eftirlit með lög- og dómgæslu og borgaralegri stjórn í héraðinu eftir að Kósóvó-Albanar hafa lýst einhliða yfir sjálfstæði frá Serbíu. Fastlega er búist við að þeir geri það á morgun, í óþökk Serba og Rússa. Erlent 16.2.2008 10:20
Fossett talinn af Vellauðugi ævintýramaðurinn Steve Fossett var í gær úrskurðaður látinn. Hans hefur verið saknað í fimm mánuði - eða allt frá því lítil flugvél með hann einan innanborðs hvart yfir eyðimörkinni í Nevada-ríki í Bandaríkjunum. Erlent 16.2.2008 10:16
George Bush á faraldsfæti George Bush Bandaríkjaforseti hóf ferðalag sitt um Afríku í morgun. Fyrsti viðkomustaðurinn er Benín. Forsetinn mun heimsækja fjögur önnur ríki á sex daga ferð sinni um álfuna. Hann fer til Tansaníu, Rúanda, Ghana og Líberíu. Þetta er önnur heimsókn hans til Afríku frá því hann tók við völdum eftir forsetakosningarnar 2000. Erlent 16.2.2008 10:12
Enn átök í Danmörku Til harðra átaka kom milli lögreglu og ungmenna víða í Danmörku í nótt. Þetta er sjötta nóttin í röð sem ungmenni á aldrinum þrettán til átján ára - flest af erlendu bergi brotin - leggja eld að bílum, ruslagámum og húsum í úthverfum Kaupmannahafnar til að tjá óánægju sína með að skopmynd af Múhameð spámanni var birt í dönskum blöðum í vikunni. Erlent 16.2.2008 10:07
Ég er elst í heimi Svo virðist sem hin 114 ára bandaríska kona Edna Parker sé ekki lengur elst í heimi samkvæmt Heimsmetabók Guiness, jafnvel þótt hún hafi ekki gefið upp öndina. Mariam Amash í ísraelska bænum Jisr az-Zarqa heldur því nefnilega fram að hún sé 120 ára, fædd árið 1888 Erlent 15.2.2008 22:06
Eldar loga víða í Danmörku vegna óeirða Eldar hafa verið kveiktir á götum úti víða í Danmörku í kvöld þar sem ungmenni halda áfram að mótmæla því að danskir miðlar hafa á ný birt myndir af Múhameð spámanni. Erlent 15.2.2008 21:24
Illinois morðinginn var afburðanemandi Maðurinn sem hóf skothríð í Northern Illinois háskólanum í Bandaríkjunum í gærkvöld með þeim afleiðingum að fimm féllu hét Stephen Kazmierczak. Hann var 27 ára gamall og stundaði framhaldsnám í félagsfræði við skólann. Hann var vopnaður þremur skammbyssum og haglabyssu. Erlent 15.2.2008 21:24
Bíða þess að vera grýtt og aflimuð Sex manns bíða þess að vera grýttir í hel í Bauchi héraði í Nígeríu. Fjörutíu og sex til viðbótar bíða þess að höggnir verði af þeim limir, fyrir einhver afbrot. Erlent 15.2.2008 15:25
Hamas orðar vopnahlé við Ísrael Hamas samtökin hafa sagt Egyptum að þeir myndu íhuga að semja vopnahlé við Ísrael, ef Ísraelar opnuðu aftur landamæri sín að Gaza ströndinni og hættu hernaðaraðgerðum á landsvæðum Palestínumanna. Erlent 15.2.2008 14:59