Erlent

Skakkur Japani

Ekki er ólíklegt að nú sé japanskur flugfarþegi skakkur einhversstaðar í Tokyo. Þökk sé japönsku tollgæslunni.

Erlent

Segir grafhýsi Kleópötru fundið

Æðsti yfirmaður fornleifa í Egyptalandi telur sig hafa fundið grafhýsi Kleópötru. Hann vonast til þess að rómverski hershöfðinginn Markús Antoníus hvíli henni við hlið.

Erlent

Mengistu dæmdur til dauða

Hæstiréttur Eþíópíu hefur dæmt Mengistu Haile Mariam til dauða. Mengistu var leiðtogi marxista sem tóku völdin í landinu eftir að keisarinn Haile Selassie missti stjórn á ríkinu í kjölfar mikillar hungursneyðar. Valdatímabil hans einkenndist af miklum ofsóknum í garð þeirra sem hann skilgreindi sem andstæðinga sína.

Erlent

Óttast að lífi 700 þúsund manns sé ógnað

Kínversk stjórnvöld hafa nú sent her- og lögreglumenn að nokkrum stíflum í Sichuan-héraði í Kína en hætta er á að þær bresti og ógni þar með lífi um 700.000 manns á jarðskjálftasvæðinu.

Erlent

Carter vill að Clinton gefist upp

Jimmy Carter fyrrum forseti Bandaríkjanna hefur nú bæst í hóp þeirra sem hvetja Hillary Clinton til að gefast upp og játa sig sigraða í forkosningum Demókrataflokksins.

Erlent

Phoenix lenti á Mars

Geimfarið Phoenix lenti á Mars rétt fyrir miðnætti í gærkvöld að íslenskum tíma. Geimfarinu er ætlað að er rannsaka jarðveg á norðanverðri stjörnunni til að komast að því hvort þar kunni að hafa verið frumstætt líf.

Erlent

Harry Potter-aukaleikari stunginn til bana

Átján ára gamall breskur drengur sem lék lítið hlutverk í væntanlegri Harry Potter-kvikmynd, Harry Potter og blendingsprinsinn, var stunginn til bana fyrir utan bar í Suðvestur-London þegar átök brutust þar út á laugardag.

Erlent

Stofnandi FARC látinn

Manuel Marulanda, stofnandi og leiðtogi FARC-skæruliðahreyfingarinnar í Kólumbíu, er allur. Hann lést af völdum hjartaáfalls. Talið er að dauði hans geti þýtt endalok hreyfingarinnar.

Erlent

Fjárframlag ef samvinnuþýðir

Alþjóðasamfélagið hét í dag jafnvirði rúmra 7 milljarða króna til hjálparstarfsins í Búrma ef erlendir hjálparstarfsmenn fá ótakmarkaðan aðgang að hamfarasvæðum þar.

Erlent

Suleiman kosinn forseti

Líbanska þingið kaus í dag Michel Suleiman, yfirmann hersins, í embætti forseta. Þar með er bundinn endir á 18 mánaða þrátefli í líbönskum stjórnmálum og komið í veg fyrir borgarastyrjöld í landinu.

Erlent

Hætta á að 69 stíflur bresti

Nær 70 stíflur á hamfarasvæðinu í suðvestur Kína gætu brostið vegna jarðhræringa þar síðasta hálfa mánuðinn. 70 þúsund hús hrundu í öflugum eftirskjálfta á svæðinu í morgun.

Erlent

Risaþota brotnaði í tvennt

Boeing 747-risaþota brotnaði í tvennt þegar hún rann út af flugbraut í flugtaki frá Savantem-flugvellinum í Brussel í Belgíu í dag. Flugvélin var í vöruflutningum og í eigu bandarísks flugfélags. Fjórir af fimm í áhöfn slösuðust lítillega í óhappinu.

Erlent

Segja Marulanda fallinn

Talsmaður stjórnarhersins í Kólumbíu greindi frá því í morgun að Manuel Marulanda, leiðtogi og stofnandi FARC-skæruliðasamtakanna, væri allur.

Erlent

Eftirskjálfti skók Sichuan-hérað í morgun

Öflugur eftirskjálfti skók Sichuan-hérað í Suðvestur-Kína í morgun. Skjálftinn fannst alla leið til Peking sem er í um fimmtán hundruð kílómetra fjarlægð frá upptökum skjálftans sem reið yfir fyrir tæpum hálfum mánuði og varð tugum þúsunda að bana.

Erlent

Glæsilegt brúðkaup Jóakims og Marie

Að sögn Danmarks Radio og Ekstrabladet féllu ófá tár í kirkjunni í Møgeltønder á Suður-Jótlandi þegar Jóakim prins kvæntist hinni frönsku heitkonu sinni, Marie Cavallier.

Erlent

Rannsókn lögreglu komin af fótum fram

Fjórði mannsfóturinn rak á land á lítilli eyju nálægt Vancouver á Kyrrahafsströnd Kanada á fimmtudaginn. Lögregla stendur ráðþrota gagnvart fótunum fjórum en hinir fyrstu þrír

Erlent

Tsvangiari heim í dag

Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, er væntanlegur aftur heim í dag. Hann frestaði heimkomu sinni fyrir viku vegna ótta um fyrirsát.

Erlent