Erlent

Yfir 20 létust í námuslysi í Kína

Að minnsta kosti 21 námamaður lét lífið er kolanáma í norðausturhluta Kína hrundi á laugardag. Þetta er í annað sinn á innan við viku sem alvarlegt námuslys verður í Kína.

Erlent

Yfirmaður þróunaraðstoðar í Sómalíu er allur

Byssumenn hafa banað yfirmanni þróunaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna í Sómalíu, eftir því sem talsmenn Sameinuðu þjóðanna fullyrða. Osman Ali Ahmed var skotinn í höfuðið þegar hann var að yfirgefa moskvu í Mogadishu, höfuðborg landsins. Hann lést af völdum sára sinna á spítala.

Erlent

Átök i Gleðigöngu í Búdapest

Til átaka kom í Búdapest í Ungverjalandi í gær þegar hægri öfgamenn réðust með bensínsprengjum og grjóti að þátttakendum í árlegri hátíðargöngu samkynheigðra, svokallaðri Gleðigöngu. Lögregla beitti vatnsdælum og táragasi til að stöðva árásirnar og dreifa árásarmönnunum. Gangan hélt síðan áfram.

Erlent

Hjó hausinn af Adolf Hitler

Karlmaður var handtekinn í Berlín í dag eftir að hann hjó hausinn af vaxmyndastyttu af Adolf Hitler á opnun á Madame Tussauds í borginni.

Erlent

Mannskæð átök í Mongólíu

Fimm manns hafa látið lífið og um þrjú hundruð særst í átökum sem brutust út eftir þingkosningar í Mongólíu um síðustu helgi. Forsetinn Nambaryn Enkhbayar lýsti á föstudag yfir neyðarástandi í landinu í fyrsta skipti, vegna ofbeldisins.

Erlent

Betancourt grét af gleði

Fyrrum gíslinn Ingrid Betancourt grét af gleði þegar hún kom til Frakklands síðdegis í dag. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og eiginkona hans Carla Bruni tóku á móti henni á herflugvelli við París.

Erlent

Sérsveit skipuð gegn hnífaglæpum

Átján ungmenni hafa fallið fyrir morðingjahendi í hnífaárásum í Lundúnaborg það sem af er þessu ári. Sextán ára piltur og tveir rúmlega tvítugir háskólanemar voru stungnir til bana í borginni í gær. Lundúnalögreglan hefur skipað sérsveit gegn hnífaglæpum í höfuðborginni.

Erlent

Segir af sér vegna ásakana um misferli

Ray Lewis, aðstoðarborgarstjóri London, sagði af sér í dag í kjölfar ásakana um að hann sé viðriðinn kynlífs og fjármálahneysli. Lewis segir að ásakanirnar séu rangar en ákvað engu að síður að láta af störfum.

Erlent

Betancourt komin til Frakklands

Hin fransk-kólumbíska Ingrid Betancourt er komin til Frakklands tveimur dögum eftir að hún var frelsuð úr gíslingu. Henni var fagnað eins og hetju við komu hennar til Frakklands. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti tók á móti henni en hann hefur barist fyrir frelsun hennar úr gíslingu.

Erlent

Mörg þúsund flýja heimili sín vegna elda í Kaliforníu

Einn slökkviliðsmaður hefur farist í skógereldunum sem loga á rúmlega tvö þúsund ferkílómetra svæði í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Mörg þúsund íbúum hefur verið gert að yfirgefa heimili sín. Margir þrjóskast þó við og reyna að bjarga eigum sínum.

Erlent

Reglubundið flug frá Kína til Taívans

Fyrsta flugvélin í reglubundnu flugi frá Kína til Taívans lenti í morgun á eyjunni. Er þetta í fyrsta sinn í nærri 60 ár sem reglubundið flug er tekið upp á milli landanna.

Erlent

Maður fæddi stúlku

Thomas Beatie, sem fæddist sem kona en lifir sem karlmaður eftir að hafa undirgengist kynskiptaaðgerð, fæddi stúlkubarn á spítala í Oregon í dag.

Erlent

Leita hælis hjá bandaríska sendiráðinu

Um 220 manns hafa safnast saman fyrir utan bandaríska sendiráðið í Harare, höfuðborg Simbabve, í von um að þeim verði veitt pólitískt hæli. Fólkið segist hafa orðið fyrir ofsóknum í kjölfar forsetakosninganna sem fram fóru í landinu um síðustu helgi.

Erlent

Bush ætlar á Ólympíuleikana

George W. Bush Bandaríkjaforseti ætlar að vera viðstaddur opnunarhátíð Ólympíuleikana sem haldnir verða í Kína í næsta mánuði. Talsmaður forsetans staðfesti þetta á blaðamannafundi síðdegis.

Erlent