Erlent

Internetfíkn er vaxandi vandamál

Internetfíkn er nú vaxandi vandamál um allan heim. Sérfræðingar telja að á milli 5 og 10 prósent Bandaríkjamanna þjáist af internetfíkn og að hlutfallið sé enn hærra hjá öðrum þjóðum.

Erlent

Karadzic fyrir dómara í dag

Radovan Karadzic fyrrum leiðtogi Bosníuserba verður leiddur fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í dag og formlega ákærður fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu.

Erlent

Slæmar horfur í N-Kóreu

Hungurvofan ógnar nú lífi og velferð milljóna manna í Norður-Kóreu vegna mikilla flóða og uppskerubrests. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að ástandið þar sé nú verra en nokkru sinni síðan hungursneyðin mikla felldi hundruð þúsunda fyrir um áratug.

Erlent

Miliband segist ekki stefna á leiðtogasæti

David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands og ein helsta vonarstjarna Verkamannaflokksins, segist ekki stefna á að verða leiðtogi flokksins. Þetta fullyrðir hann þrátt fyrir að hafa skrifað grein um framtíð Verkamannaflokksins án þess að minnast einu orði á Gordon Brown, formanns flokksins og forsætisráðherra.

Erlent

Olmert lætur af embætti eftir tvo mánuði

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, tilkynnti í dag að hann muni láta af embætti eftir tvo mánuði. Olmert hefur átt í miklum erfiðleikum undanfarna mánuði vegna meintrar spillingar og gæti afsögnin bent til þess að staða hans í þeim málum sé verri en hann hefur viljað viðurkenna til þessa. Þá hefur hann lengi sætt ámæli fyrir stríðið við Hezbollah í fyrrasumar, sem hann hóf en tókst ekki að ljúka með ótvíræðum sigri.

Erlent

Tyrkneskir dómstólar banna ekki stjórnarflokkinn

Stjórnlagadómstóll Tyrklands hefur undanfarna daga íhugað hvort banna skuli stjórnarflokk landsins, Réttlætis- og þróunarflokkinn, sem hefur meirihluta á tyrkneska þingi og hefur farið með stjórnað landinu undanfarið. Forystumenn flokksins voru meðal annars sakaðir um að vilja að koma fót trúarlegri stjórnskipan að íslömskum sið.

Erlent

11 ára drengur stunginn 40 sinnum á götu úti

Lögreglan í Frakklandi hefur hafið morðrannsókn eftir að 11 ára drengur var fundinn á götu úti með fjörtíu stungusár. Sár drengsins voru svo mörg og alvarleg að haldið var í fyrstu að villt dýr hefði ráðist á drenginn

Erlent

Nýr gjaldmiðill kynntur í Simbabve

Seðlabanki Simbabve hefur tilkynnt að nýr gjaldmiðill verði tekin í gildi til þess að reyna að sporna við þeirri ofurverðbólgu sem er þar í landi. Nokkrum núllum verður sleppt við núverandi Simbabve-dollara þannig að 10 milljarða dollaraseðill verður dollaraseðill.

Erlent

Stór jarðskjálfi reið yfir Los Angeles

Jarðskjálfti sem mældist 5,4 á Richter reið yfir Los Angeles og nágrenni í gærkvöldi. Þetta er stærsti jarðskjálfti sem orðið hefur í suðurhluta Kaliforníu í rúman áratug.

Erlent

Karadzic er kominn til Haag

Radovan Karadzic fyrrum leiðtogi Serbíu er kominn til Haag í Hollandi. Þangað var hann fluttur með flugi í nótt frá Belgraad.

Erlent

Doha-viðræður út um þúfur

Viðræður Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um afnám niðurgreiðslna og tolla á landbúnaðarvörur fóru út um þúfur í dag. Samningamenn telja að mörg ár geti liðið áður en þráðurinn verður tekinn upp aftur.

Erlent

Sjö sakfelldir fyrir stríðsglæpi

Sjö Bosníu-Serbar hafa verið sakfelldir fyrir þjóðarmorð og dæmdir í fangelsi fyrir aðild sína að fjöldamorðunum á múslímum í Srebrenica í Bosníu sumarið 1995.

Erlent

Karadzic áfrýjaði ekki framsalinu

Radovan Karadzic fyrrum forseti Serbíu skilaði ekki inn áfrýjun á framsali sínu til stríðsglæpadómstólsins í Haag áður en fresturinn til að gera slíkt rann út síðdegis í gær.

Erlent

Bush samþykkir dauðadóm yfir hermanni

Bush bandaríkjaforseti hefur samþykkt dauðadóm yfir hermanni sem dæmdur var fyrir morð og nauðgun. Er þetta í fyrsta sinn í rúma hálfa öld að Bandaríkjaforseti samþykkir dauðadóm yfir hermanni.

Erlent

Obama sækir í sig veðrið

Barack Obama forsetaframbjóðandi demókrata sækir í sig veðrið í skoðanakönnunum í Bandaríkjunum. Hann hefur níu prósenta forskot yfir keppinaut sinn John McCain frambjóðanda Repbublikana.

Erlent

Mikil loftmengun í Peking

Gríðarleg loftmengun er í Peking sem sérfræðingar segja að geti haft áhrif á árangur keppenda á Olympíuleikunum sem hefjast 8. ágúst.

Erlent