Erlent
Er farmiðinn til tunglsins að verða of dýr? NASA fagnar nú 40 ára afmæli fyrstu hringferðarinnar um tunglið en kostnaður setur spurningarmerki við geimferðir framtíðarinnar. Erlent 23.12.2008 08:43
Norðmenn vilja örmerkja ketti Norsk heilbrigðisyfirvöld krefjast þess kettir verði örmerktir til að veita nákvæmar upplýsingar um sjúkdóma sem þeir kunni að bera. Erlent 23.12.2008 08:40
Danir ósáttir við tölvur og farsíma Danir kvarta mest yfir tölvum og farsímum af öllum neytendavarningi þar í landi. Þetta kemur fram í ársskýrslu dönsku neytendasamtakanna en símalínur þeirra eru rauðglóandi þessa dagana vegna kvartana yfir göllum í þessum búnaði. Erlent 23.12.2008 08:36
Kröfðust gagnárásar með kjarnavopnum Japanski forsætisráðherrann Eisaku Sato krafðist þess árið 1965 að yrði landið fyrir kjarnorkuárás myndi Bandaríkjaher þegar beita kjarnavopnum gegn árásaraðilanum. Erlent 23.12.2008 08:28
Taldi ísbjörninn Knút einmana Tæplega fertugur maður var verulega hætt kominn í gær þegar hann klifraði yfir girðingu sem skilur ísbjörninn Knút, helstu stjörnu dýragarðsins í Berlín, frá aðdáendum sínum. Erlent 23.12.2008 08:22
Ísraelskir fornleifafræðingar í sjöunda himni Fornleifafræðingar í Ísrael munu aldeilis eiga gleðileg jól eftir að þeir fundu 264 ævaforna gullpeninga við uppgröft í almenningsgarði í Jerúsalem á sunnudaginn. Erlent 23.12.2008 08:09
Dick Cheney talinn verstur varaforseta Fjórðungur Bandaríkjamanna er þeirrar skoðunar að Dick Cheney sé versti varaforseti sem gegnt hefur embætti í landinu. Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem CNN opinberaði í gær. Erlent 23.12.2008 07:27
Risavinningurinn el gordo dreifðist víða Mörg þúsund vinningshafar deildu með sér 360 milljarða króna risavinningi spænska lottósins sem gengur undir nafninu sá feiti, eða el gordo, í gær. Töluvert var um að Bretar, búsettir á Spáni, keyptu sér miða í von um að hreppa væna flís af feitum sauð og sumum varð svo sannarlega að ósk sinni. Erlent 23.12.2008 07:23
Hamas gerir hlé á árásum Hamasliðar á Gasa ströndinni hafa fallist á sólarhrings vopnahlé í átökum þeirra og Ísraelsmanna. Egyptar gengu á milli stríðandi fylkinga og lofa Hamas að gera hlé á eldflaugaárásum sínum á Ísraelskt landsvæði. Erlent 22.12.2008 13:47
Líkir stjórn Browns við þriðja ríki Hitlers Erkibiskupinn af Kantaraborg líkir efnahagsstjórn Gordons Brown við þriðja ríki Adolfs Hitler. Erlent 22.12.2008 08:24
Bresk hundaathvörf full af yfirgefnum hundum Æ meira er um að breskir hundaeigendur losi sig við hunda sína með því að skilja þá eftir á víðavangi þegar fjárhagsaðstæður þrengja að. Talsmaður stærsta hundaathvarfs Lundúna segir húsnæði athvarfsins nú yfirfullt og að hann muni ekki annað eins ástand. Athvarfið beitir sér fyrir því að finna yfirgefnum hundum nýja eigendur og heimili. Erlent 22.12.2008 08:10
Dómstóll heimilar ekki skilnað átta ára barns Sádi-arabískur dómstóll hefur hafnað kröfu um að heimila skilnað átta ára stúlku og tæplega sextugs manns en það var móðir stúlkunnar sem gerði kröfu um skilnaðinn. Erlent 22.12.2008 07:26
Indverjar útiloka ekki stríð við Pakistan Indverjar útiloka ekki árás á nágrannaríki sitt Pakistan til að hefna fyrir hryðjuverkaárásirnar á Mumbai í lok nóvember en indversk stjórnvöld draga ekki fjöður yfir þá skoðun sína að Pakistanar beri ábyrgð á ódæðisverkunum á Taj Mahal-hótelinu og fleiri stöðum í Mumbai þar sem tæplega 200 manns biðu bana. Erlent 22.12.2008 07:23
Brown segist ekki halda kosningar eftir áramótin Bretar munu ekki ganga til kjörklefanna og velja sér nýja þingmenn og ríkisstjórn í febrúar eða mars eins og verið hefur í umræðunni. Þetta segir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, í viðtali við Daily Mirror. Erlent 22.12.2008 07:21
Fjórfalt fleiri breskir en bandarískir hermenn falla í Afganistan Bretar hafa misst fjórfalt fleiri hermenn í Afganistan en Bandaríkjamenn síðastliðnar sjö vikur. Þetta kemur fram í skýrslu Bandaríkjahers sem fjallar meðal annars um væntanlega fjölgun bandarískra hermanna í Afganistan. Erlent 22.12.2008 07:17
Þungur róður fram undan hjá dönskum háskólanemum Verulega mun kreppa að dönskum háskólanemum á næsta ári þar sem framlög hins opinbera til skólanna verða skorin niður vegna efnahagsörðugleika í Danmörku. Erlent 22.12.2008 07:14
Búa sig undir skjóta lokun Robert Gates, varnarmálaráðherra í ríkisstjórn George W. Bush, hefur beðið starfsfólk sitt í varnarmálaráðuneytinu um að búa sig betur undir hugsanlega lokun Guantánamo-fangabúðanna á Kúbu. Erlent 22.12.2008 05:00
Viðræðum fram haldið Evrópusambandið hefur samþykkt að bæta tveimur nýjum málefnasviðum við aðildarviðræðurnar við Tyrki. Erlent 22.12.2008 04:45
Athafnir austan hafs og vestan Þess var víða minnst í gær að rétt 20 ár voru liðin frá því risaþota Pan Am-flugfélagsins hrapaði á skoska smábæinn Lockerbie eftir að sprengja sprakk í þotunni. Alls fórust 270 manns, þar af ellefu á jörðu niðri. Erlent 22.12.2008 04:00
NASA safnar gúmmíöndum Í september sjósetti NASA, geimvísindastofnun Bandaríkjanna, 90 merktar baðendur undir Jakobshavnjökli á Grænlandi í þeim tilgangi að rannsaka farveg bráðnunarvatns um jökulbreiðuna. Erlent 22.12.2008 04:00
Lögregla sökuð um afglöp Lögreglumenn sem áttu í höggi við skotglaða hryðjuverkamenn í Taj Mahal-lúxushótelinu í Mumbai í fyrra mánuði tjáðu gestum að þeim væri óhætt að yfirgefa herbergi sín, með þeim afleiðingum að þeir gengu í flasið á morðingjunum sem sölluðu fólkið niður. Erlent 22.12.2008 03:00
Ísraelar hóta Hamas stríði Tugum sprengiflauga var skotið frá Gazasvæðinu að ísraelskum bæjum í gær, og Ísraelsher brást við með loftárás á meintar stöðvar skæruliða Hamas-samtakanna á Gaza. Erlent 22.12.2008 02:00
Uppáhald Stalíns lést í gær Rússneska balletdansmeyjan, Olga Lepeshinskaya, sem dansaði áratugum saman við Bolshoi leikhúsið og vakti mikla athygli einræðisherrans Jósefs Stalín lest í gær, 92 ára að aldri. Erlent 21.12.2008 15:06
Hugsanlega verða vextir af neyðarlánum til bótaþega Svo gæti farið að neyðarlán breska ríkisins til handa bótaþegum verði ekki lengur vaxtalaus nema í undantekningar tilvikum. Félagþjónustan í Bretlandi veitir árlega samanlagt hálfum milljarði punda í vaxtalaus neyðarlán úr opinberum sjóði til rúmlega milljón bótaþega. Erlent 21.12.2008 10:55
Enn átök í Grikklandi Enn kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu víða í Grikklandi í nótt. Til óeirða hefur komið daglega í rúman hálfan mánuð. Erlent 21.12.2008 10:44
Slösuðust þegar Boeing vél fór út af flugbraut Nærri fjörutíu manns slösuðust þegar Boeing sjö þrír sjö farþegaþota Continental flugfélagsins bandaríska rann út af flugbraut í Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Erlent 21.12.2008 10:07
Salan á Fortis að buga Belga Albert II, konungur Belgíu fundaði í gær með helstu ráðamönnum landsins í tilraun sinni til að ráða bót á þeim pólitíska vanda sem upp er kominn í kjölfar efnahagsþrenginga í landinu. Erlent 21.12.2008 06:00
Karadzic nýtur ekki friðhelgi Dómarar á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa úrskurðað að samningur um friðhelgi sem Radovan Karadzic, fyrrum leiðtogi Bosníu-Serba, segist hafa gert við friðarerindreka SÞ árið 1996 sé ógilt. Hin meinta friðhelgi muni því ekki koma í veg fyrir að réttað verði yfir Karadzic vegna ákæru um þjóðarmorð. Erlent 21.12.2008 04:00
Auknar líkur á kosningum Robert Mugabe, forseti Simbabve sagði í gær að flokksfélagar hans í Zanu-Pf ættu að byrja að undirbúa snemmbúnar forsetakosningar og að þeir ættu að safna liði til að tap kosninganna í mars síðastliðnum endurtæki sig ekki. Erlent 21.12.2008 02:00
Féll í loftárás á Gaza Herskár Palestínumaður féll í loftárás Ísraelsmenna á Gaza-svæðið í morgun. Hálfs árs vopnahlé Ísraela og Hamas-samtakanna, sem stjórna Gaza, var ekki framlengt og lauk í gær. Erlent 20.12.2008 10:34