Erlent
Asíubréf lækkuðu í morgun Hlutabréf á asískum mörkuðum lækkuðu í morgun, einkum bréf iðn- og framleiðslufyrirtækja hvers kyns. Bréf alþjóðlega námufyrirtækisins Rio Tinto Group, móðurfélags Alcan í Straumsvík, lækkuðu til að mynda um 5,3 prósentustig og Keppel-fyrirtækið, sem smíðar olíuborpalla, lækkaði um rúmlega sjö prósentustig eftir að stór pöntun til þess var dregin til baka. Erlent 12.1.2009 08:22
Humarinn Georg slapp naumlega við að verða étinn Dýraverndunarsamtök björguðu hundrað og fjörutíu ára gömlum risahumri naumlega frá því að enda ævina á matardiski. Erlent 12.1.2009 08:15
Bresk ferðaþjónusta berst í bökkum vegna ruddalegs starfsfólks Breska ferðaþjónustan á á hættu að tapa sem nemur rúmlega 750 milljörðum króna komi tvennt ekki til - pundið hætti að veikjast og breskir hótelstarfsmenn venji sig á almenna mannasiði. Erlent 12.1.2009 08:08
Aftakaveður í Noregi um helgina Norðmenn fengu heldur betur að finna fyrir náttúruöflunum um helgina þegar aftakaveður gekk yfir nánast allan Noreg á sama tíma. Snjóflóð og grjótskriður lokuðu vegum, óvenjuhátt sjávaryfirborð olli flóðum víða við strendur og úrkoma var langt yfir meðallagi enda gengu tvær krappar lægðir samtímis yfir landið. Erlent 12.1.2009 07:25
Fimmtán dönsk börn í SMS-meðferð í fyrra Um það bil 15 dönsk börn og ungmenni gengust á síðasta ári undir meðferð hjá sérstakri hjálparstofnun á Sjálandi til að venja sig af SMS-fíkn. Að sögn starfsmanns stofnunarinnar var yngsti skjólstæðingurinn tólf ára gamall. Erlent 12.1.2009 07:24
Slapp ótrúlega vel frá hákarlsárás Þrettán ára stúlka þykir hafa sloppið ótrúlega vel frá árás fimm metra langs hvíthákarls undan austurströnd Ástralíu um helgina en hákarlinn beit brimbretti, sem stúlkan var á, í tvennt og slasaði hana alvarlega á hægra fæti. Erlent 12.1.2009 07:20
Morðalda í Mexíkó Morð og mannrán eru um þessar mundir tíðari í Mexíkó en nokkru sinni fyrr og hyggjast stjórnvöld þar í landi grípa til stórhertra aðgerða gegn eiturlyfjahringjum og skipulagðri glæpastarfsemi. Erlent 12.1.2009 07:17
Pandan Gu Gu söm við sig Pandan Gu Gu í dýragarðinum í Peking er allt annað en gestrisin í garð óboðinna gesta. Á því fékk maður að kenna á miðvikudag þegar hann klifraði yfir eins og hálfs metra háa girðingu til að ná í leikfang sem fimm ára sonur hans hafði misst ofan í búr pöndunnar. Erlent 12.1.2009 06:00
Bush heldur upp á afmælið með fallhlífarstökki George H.W. Bush eldri, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ætlar að halda upp á 85 ára afmælið sitt með því að stökkva í fallhlíf. Sonur hans, George W. Bush yngri og núverandi Bandaríkjaforseti segir hann klikkaðan. Erlent 11.1.2009 20:57
Obama boðar breytingar á utanríkisstefnu Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, boðaði breytingar á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í viðtali í dag. Hann sagðist vilja beinar viðræður á skilyrða við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. Hann segist ætla að standa við loforð sitt um að loka Guantanamo-fangabúðunum. Erlent 11.1.2009 19:34
Harðir bardagar á Gaza í dag Ísrelskir hermenn börðust í návígi við herskáa Palestínumenn í úthverfum Gaza-borgar í dag. Bardagarnir munu þeir hörðustu frá upphafi landhernaðar Ísraela á Gaza fyrir rúmri viku. Erlent 11.1.2009 19:15
Sænskt sjúkrahús jafnað við jörðu á Gaza Ísraelsher jafnaði í dag við jörðu sjúkrahús sem sænska kirkjan rekur á Gazaströndinni. Sjúkrahúsið varð fyrst fyrir flugskeyti úr þyrlu hersins og skömmu síðar rigndi skotum frá skriðdrekum yfir húsið. Engann sakaði, en sjúkrahúsið er gjörónýtt. Erlent 11.1.2009 17:59
Þúsundir gætu látist úr kulda og flensu í Bretlandi Kuldi og flensa gætu fellt þúsundir manna í Bretlandi í vetur að mati mannúðarsamtaka þar í landi. Mikill kuldi, skæð flensa og efnahagskreppan koma illa við eldri borgara og þá sem veikari eru fyrir. Erlent 11.1.2009 16:13
Ellilífeyrisþegi kveikti í þingmanni Reiður ellilífeyrisþegi réðst á singapúrskan þingmann í dag og kveikti í honum, vegna óánægju með að hafa ekki fengið nýársgjöf. Erlent 11.1.2009 15:15
Bretar vilja úr ESB Nærri tveir þriðjuhlutar breskra kjósenda vilja skera á tenglsin við Evrópusambandið að hluta eða alfarið. Erlent 11.1.2009 12:01
Ferja sökk í aftakaveðri Ferja með 250 farþega og 17 manna áhofn innanborðs sökk í aftakaveðri í austurhluta Indonesíu í nótt. Samgönguráðherra landsins sagði að 150 hefði verið náð úr flakinu, en tiltók ekki hvort fólkið var lífs eða liðið. Talsmaður ráðuneytisins sagði fyrr í dag að vitað væri að átján manns hefðu lifað slysið af. Fellibylur geysar nú á svæðinu og er ölduhæð mikil. Erlent 11.1.2009 11:15
Opnað fyrir gasið Eftirlitsmenn frá Evrópusambandinu eru á leið til gasdælustöðva í Úkraínu til að hafa eftirlit með rússagasi sem flæðir um leiðslur þar til viðskiptavina í Mið- og Suður-Evrópu. Rússar skrúfuðu fyrir gas til Úkraínumanna í desember vegna deilna um verð. Þeir sökuðu síðan Úkraínumenn um að stela úr leiðslum gasi sem átti að fara annað og skrúfuðu fyrir það líka. Nú verður opna fyrir það streymi eftir að ráðamenn í Kænugarði samþykktu í gær að hleypa eftirlitsmönnum inn í landið. Þannig fá krókloppnir Evrópubúar aftur gas til húshitunar en það getur þó tekið allt upp í þrjá sólahringa að fá fram fullt flæði. Gasdeila Rússa og Úkraínumann er enn óleyst. Erlent 11.1.2009 10:23
Bretaprins biðst afsökunar Harry Bretaprins hefur beðist afsökunar á orðbragði sínu á upptöku sem breska blaðið News of the World birtir í dag. Upptakan er frá 2006 og tekin af félaga prinsins þar sem þeir og fleiri liðsforingjaefni í breska hernum biðu eftir flugi til æfingabúða á Kýpur. Í samtali notar Harry niðrandi orð um Pakistana og Araba. Hann talar um "Paki" þegar hann vísar til kunningja síns frá Pakistan en það orð þykir afar niðrandi. Harry kallar einnig annan félaga sinn handklæðahaus eða "raghed" sem þykir bera vott um fordóma í garð Araba og vísa til höfuðklúta þeirra. Prinsinn hefur sent frá sér opinbera afsökunarbeiðni og segist harma orðavalið. Ummælin hafi hins vegar ekki átta að vera meiðandi. Erlent 11.1.2009 09:45
Ísraelsher sakaður um að nota fosfórsprengjur Mannréttindasamtökin Human Rights Watch saka Ísraelsmenn um að nota vopn sem innihalda hvítt fosfór í árás sinni á Gaza ströndina. Samtökin segja þetta vera hættulegt fólki sem býr í nágrenni átakanna. Erlent 10.1.2009 20:21
Sjóræningjar fengu þrjár milljónir dollara Sómalskir sjóræningjar hafa í gær og í morgun skilað tveimur skipum sem þeir rændu í nóvember. Annað þeirra er sádí arabísk risaolíuskip. Fyrir það fengust þrjár milljónir bandaríkjadala í lausnargjald. Fimm sjóræningjanna drukknuðu skömmu eftir að þeir höfðu skilað skipinu. Erlent 10.1.2009 12:20
Sérfræðingar vonlitlir um vopnahlé á Gaza Þrátt fyrir að Hamas-samtökin og Ísraelar hafi sent fulltrúa til Egyptalands til viðræðna um vopnahlé á Gaza dvína vonir um að nokkuð verði af samkomulagi um slíkt. Sprengjum rigndi yfir Gaza í nótt fimmtánda daginn í röð og flugskeytum var áfram skotið á Ísrael. Erlent 10.1.2009 12:12
Obama til í að tala við Hamas Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, mun að líkindum láta af þeirri stefnu George Bush fráfarandi forseta að einangara Hamas-samtökin og neita viðræðum við þau um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Breska blaðið Guardian hefur þetta eftir heimildarmönnum úr ráðgjafahóp Obama. Erlent 10.1.2009 10:05
Sjóræningjar skila skipi Sómalskir sjóræningjar skiluðu í morgun írönsku flutningaskipi, The Delight, sem rænt var undan strönd Jemen í nóvember. Verið var að flytja þrjátíu og sex þúsund tonn að hveiti með skipinu frá Íran til Þýskalands þegar því var rænt. Tuttugu og fimm manna áhöfn var um borð. Ekki er vitað hvort lausnargjald var borgað fyrir skipið og þá hve há upphæð. Sjórnæningjar skiluðu í gær sádí arabíska risaolíuskipinu Sirius Star sem einnig var rænt í nóvember. Þrjár milljónir bandaríkjadala voru greiddar í lausnargjald fyrir það. Fimm sjóræningjar drukknuðu þegar bát þeira hvolfdi nærri Sirius Star en þeir höfðu þá skömmu áður farið úr olíuskipinu yfir í eigin bát. Ekki er vitað hvort þeir voru með lausnargjaldið á sér. Erlent 10.1.2009 09:56
Viðræður um vopnahlé í Egyptalandi Samningamenn Hamas og Ísraelsstjórnar eru komnir til Egyptalands til að ræða mögulegt vopnahlé á Gaza. Loftárásir og bardagar héldu þó áfram í nótt. Erlent 10.1.2009 09:52
Sirius Star úr höndum sjóræningja Sómalskir sjóræningjar létu í dag frá sér Sádí arabískt risaolíuskip, Sirius Star, sem þeir hertóku úti fyrir strönd Sómalíu um miðjan nóvember. Í gær voru greiddar þrjár milljónir bandaríkjadala í lausnargjald fyrir skipið. Erlent 9.1.2009 14:02
Gasflæðið komist í lag um helgina Evrópusambandið telur að hægt verði að tryggja eðlilegt gasflæði frá Rússlandi til Vestur-Evrópu um helgina. Rússar og ESB sömdu í gær um eftirlit með gasflutningum með leiðslum um Úkraínu til að tryggja að gasi væri ekki stolið. Erlent 9.1.2009 12:09
Þrjátíu féllu í einni árás á Gaza Vitni hafa greint fulltrúum Sameinuðu þjóðanna á Gaza-svæðinu frá því að Ísraelar hafi fellt þrjátíu Palestínumenn í einni árás á hús í Gaza-borg fyrr í vikunni. Þessi sömu vitni segja að ísraelskir hermenn hafi flutt um hundrað Palestínumenn í húsið skömmu áður. Erlent 9.1.2009 12:06
Stærsta raftækjasýning heims svipur hjá sjón Raftækjasýningin í Las Vegas, sem alla jafna laðar að sér mikinn fjölda gesta, er ekki nema svipur hjá sjón í ár. Erlent 9.1.2009 08:36
Öryggisráð SÞ ályktar um vopnahlé á Gaza Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í nótt ályktun um að krefjast þegar í stað vopnahlés á Gaza-svæðinu. Fjórtán af 15 ráðsmönnum samþykktu ályktunina en Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Erlent 9.1.2009 08:31
Ekki fleiri uppsagnir í Bandaríkjunum í rúm 30 ár Líklega hefur fleira starfsfólki ekki verið sagt upp í Bandaríkjunum einn og sama mánuðinn í meira en 30 ár en í nýliðnum desembermánuði. Þetta er talið vera meðal tölfræðilegra staðreynda sem settar eru fram í skýrslu Bandaríkjastjórnar um atvinnuástandið sem gerð verður opinber í dag. Erlent 9.1.2009 08:28