Erlent
Fjögur dauðsföll á tveimur vikum vegna fuglaflensu Kínversk yfirvöld tilkynntu í morgun að kona um þrítugt hefði í gær látist af völdum fuglaflesnsu í norð vestur hluta landsins. Áður hafði verið tilkynnt um þrjú önnur dauðsföll af völdum sjúkdómsins síðasta hálfa mánuðinn. Fimmta manneskjan mun hafa veikst. Erlent 24.1.2009 09:59
Snýr sér að efnahagsmálum Barack Obama Bandaríkjaforseti átti í gær fundi með þingmönnum beggja flokka og hvatti þá til að styðja efnahagsaðgerðir sínar. Ástandið í efnahagslífi þjóðarinnar krefjist þess að þingið taki til sinna ráða, jafnvel þótt sumum þingmönnum hugnist ekki sumir hlutar aðgerðanna. Erlent 24.1.2009 04:00
Örfáir myndu framselja hann Ratko Mladic nýtur enn mikilla vinsælda og stuðnings í Serbíu, þrátt fyrir að hafa verið eftirlýstur stríðsglæpamaður í meira en áratug. Erlent 24.1.2009 03:00
Lögregluþjónn skaut unnustu Lögregluþjónn í Tromsö í Noregi skaut í gær fyrrverandi sambýliskonu sína til bana á bílastæði fyrir utan barnaskóla þar sem hún vann. Því næst gerði hann tilraun til að svipta sig lífi. Erlent 24.1.2009 02:45
Stakk á annan tug ungbarna Geðbilaður maður vopnaður hnífi óð inn á barnadagheimili í flæmskum bæ í gær og stakk þar alla sem á vegi hans urðu. Tvö ungbörn dóu og ein fóstra. Tíu börn til viðbótar liggja mismikið særð á sjúkrahúsi. Meiðsli sumra þeirra kváðu vera alvarleg. Erlent 24.1.2009 02:00
Blóðrauðir gosbrunnar í Napólí Sex gosbrunnar í ítölsku borginni Napólí urðu blóðrauðir á lit í dag. Að sögn lögreglu er talið að hægri-öfgamenn hafi hellt matarlit í brunnana til þess að vekja athygli á framferði Ísraelsmanna á Gaza ströndinni undanfarið. Erlent 23.1.2009 20:40
Lou Hawthorne býður öryggisafritun dýra Klónun dýra er nýjasta lausnin fyrir þá sem misst hafa gæludýr sín og afbera ekki harminn. Erlent 23.1.2009 08:25
Kínverjar leggjast í ferðalög Kínverjar ferðast nú til útlanda sem aldrei fyrr til að taka sér frí frá lægðum í veðri og hagkerfi. Ár uxans gengur í garð í Kína á mánudaginn og nú ber svo við að margir fagna því með því að ferðast til Víetnam og Kambódíu í stað þess að heimsækja ættingja og vini í Kína eins og siður er um áramót. Erlent 23.1.2009 08:20
Óttast glæpaöldu í Bretlandi Bresk yfirvöld óttast að glæpaalda fari um landið með versnandi efnahagsástandi. Tölur frá innanríkisráðuneytinu gefa þetta til kynna en að meðaltali er brotist inn á breskt heimili á tveggja mínútna fresti. Erlent 23.1.2009 08:13
Nýr sími lítur dagsins ljós: Barackberry Af öryggisástæðum er alls óvíst að Barack Obama fái að halda sínum ástkæra Blackberry-síma. Erlent 23.1.2009 07:30
Stakk föður sinn til bana Tæplega sextugur maður fannst stunginn til bana í íbúð við Frimestervej í Kaupmannahöfn síðdegis í gær. Sonur hans á fertugsaldri var handtekinn á staðnum og hefur játað á sig verknaðinn. Erlent 23.1.2009 07:29
Rúmur þriðjungur Breta drekkur of mikið Meira en þriðjungur Breta drekkur of mikið áfengi samkvæmt opinberum tölum sem gerðar voru heyrum kunnar í gær. Heilbrigðisstarfsmenn hafa gefið út að eðlileg áfengisneysla teljist þrír til fjórir drykkir á dag fyrir karlmenn og tveir til þrír fyrir konur. Erlent 23.1.2009 07:27
Fogh undirbýr evrukosningar Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, stefnir að því að boða til nýrrar atkvæðagreiðslu um að Danir falli frá undanþágunni frá þátttöku í myntbandalag ESB og hinum undanþágunum þremur frá ESB-samstarfinu sem samið var um eftir höfnun Dana á Maastricht-sáttmálanum árið 1992. Erlent 23.1.2009 03:45
Eldhestur á Spáni Kaþólikkar eiga sér marga dýrlinga sem sjá um hina og þessa hluti fyrir þá. Einn þeirra er heilagur Antoníus sem er verndari dýra. Erlent 22.1.2009 17:15
Eins og draugaskip Það hefur verið mikið kuldakast bæði austan hafs og vestan undanfarnar vikur. Það hefur komið þjóðum í Austur-Evrópu mjög illa þar sem Rússar skrúfuðu fyrir gasflutninga sína til Evrópu vegna deilna við Úkraínu. Erlent 22.1.2009 15:50
Drógu bátskrifli flóttamanna út á haf Thailenski sjóherinn er sakaður um að hafa dregið nokkur bátskrifli með tæplega eittþúsund flóttamönnum á haf út og skilið þá þar eftir. Í bátunum var fólk sem kallar sig Rohingya og kemur frá Burma. Þar er fólkið ekki viðurkennt sem minnihlutahópur og þúsundir hafa flúið land undanfarna áratugi. Erlent 22.1.2009 14:09
Caroline langar ekki lengur í þingsæti Hillary Caroline Kennedy dóttir fyrrverandi Bandaríkjaforseta hefur dregið til baka umsókn sína um að taka sæti Hillary Clintons í öldungadeild þingsins. Erlent 22.1.2009 13:54
Grunaður um að myrða móður sína Kona fannst látin í íbúð í Nørrebro-hverfinu í Kaupmannahöfn í morgun og er talið að hún hafi verið myrt. Sonur hinnar látnu hefur verið handtekinn, grunaður um verknaðinn, en það var hann sem hafði samband við lögreglu og greindi frá því að lík væri í íbúðinni. Áverkar á líkinu benda til þess að konan hafi fengið þungt högg í andlitið. Erlent 22.1.2009 08:27
Jákvæðar úrtölur hjá Parmigiani Svissneski armbandsúraframleiðandinn Parmigiani kvíðir því ekki að hinir efnameiri hætti að kaupa sér úr þótt aðrir framleiðendur í sama bransa finni fyrir samdrætti. Erlent 22.1.2009 08:22
Ísraelsher rannsakar fosfórnotkun á Gaza Ísraelsher rannsakar nú hvort fosfórsprengjum hafi verið varpað á óbreytta borgara á Gaza-svæðinu en mannréttindasamtökin Amnesty International fullyrða að slík atvik hafi átt sér stað. Erlent 22.1.2009 08:11
Obama sver á ný Barack Obama bandaríkjaforseti sór embættiseið sinn aftur í gærkvöldi til að hafa það örugglega á hreinu að hann gegni embættinu réttilega en John Roberts, forseti Hæstaréttar, fipaðist þegar hann fór með eiðstafinn fyrir Obama við embættistökuna á þriðjudaginn. Erlent 22.1.2009 08:09
Fjórir af tíu brotamönnum sleppa með aðvörun Fjórir af hverjum tíu afbrotamönnum sem fremja alvarleg brot í Bretlandi sleppa með aðvörun þegar í raun ætti að ákæra þá og rétta yfir þeim. Þetta hefur Telegraph eftir David Ruffley, skuggaráðherra lögreglumála, sem nýlega gagnrýndi aukastörf lögreglumanna harðlega. Erlent 22.1.2009 07:53
Danska tollgæslan kvartar yfir skorti á eftirliti Danska tollgæslan hefur þungar áhyggjur af slælegu eftirliti með vopnum, lyfjum og peningum við landamæri. Niðurskurður og skortur á úrræðum er orsök þess vanda að sögn Jørn Rise, formanns Tollvarðafélags Danmerkur. Erlent 22.1.2009 07:37
Augu Japana hvíla á Obama Augu Japana hvíla á Barack Obama. Þessu slær japanska dagblaðið Yomiuri Shimbun fram í fyrirsögn og greinir frá því að ákall Obama til bandarísku þjóðarinnar um að styðja hið nýja tímabil ábyrgðarinnar hafi vakið þjóðarathygli í Japan. Erlent 22.1.2009 07:34
Breski pósturinn græðir á tá og fingri Að minnsta kosti ein opinber stofnun í Bretlandi er í bullandi gróða þrátt fyrir ófremdarástand í efnahagsmálum en það er pósturinn. Gróði Royal Mail síðustu níu mánuði ársins 2008 var hvorki meira né minna en 225 milljónir punda, sem jafngildir um 40 milljörðum króna. Erlent 22.1.2009 07:32
Guantánamo lokað innan árs Fyrsti dagur Baracks Obama í embætti Bandaríkjaforseta var annasamur. Hann kallaði saman helstu ráðgjafa sína í bæði efnahagsmálum og hermálum til að fjalla um þau erfiðu verkefni, sem blasa við strax í byrjun embættistíðar hans. Erlent 22.1.2009 06:45
Ný norðurskautsstefna Meðal síðustu embættisverka George W. Bush Bandaríkjaforseta var að móta nýja stefnu Bandaríkjanna gagnvart Norðurheimskautssvæðinu, sem á næstu árum og áratugum verður væntanlega aðgengilegra en áður vegna hlýnunar jarðar. Erlent 22.1.2009 05:45
Vilja hafa meiri áhrif á herliðin Stjórnvöld í Afganistan vilja fá að ráða meiru um starfsemi herliðs Atlantshafsbandalagsins í landinu. Erlent 22.1.2009 05:00
Úkraínustjórn fagnar sigri Úkraínustjórn fagnaði í gær sigri á Rússum í gasdeilunni, sem varð til þess að skrúfað var fyrir gas til Evrópuríkja í tvær vikur. Erlent 22.1.2009 04:00
Piparúðinn vekur athygli „Lögreglan beitir piparúða á íslenska mótmælendur“ er fyrirsögnin á frétt Reuters-fréttastofunnar um mótmælin á Austurvelli. Erlent 22.1.2009 03:15