Erlent

Alheimsfaraldi lýst yfir vegna kerfisgalla

Kerfisgalli er ástæðan fyrir því að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur orðið að lýsa yfir alheimsfaraldri vegna fremur vægrar flensu. Þetta er mat bandarísks sérfræðings í smitsjúkdómum.

Erlent

Ekki verður feigum forðað

Ítalska konan Johanna Ganthaler lést í bílslysi í Austurríki fyrir nokkrum dögum. Þetta væri varla í frásögur færandi á Íslandi nema fyrir þá sök að Ganthaler slapp naumlega við að vera á meðal farþega í Air France þotunni sem fórst undan ströndum Brasilíu fyrir skömmu síðan.

Erlent

Stórmarkaður stal fjölskyldumynd og auglýsti með henni

Varasamt getur verið að setja fjölskyldumyndirnar á Netið. Hjónin Jeff og Danielle Smith frá Missouri komust að þessu þegar vinur þeirra, sem staddur var á ferðalagi í Prag í Tékklandi, hringdi og spurði í forundran hvort þau væru farin að leika í auglýsingum þar í landi.

Erlent

Forsetakosningar í Íran í dag

Íranar ganga að kjörborðinu í dag og velja sér forseta. Stendur valið á milli sitjandi forseta, Mahmoud Ahmadinejad, og Mir Hossein Moussavi, leiðtoga umbótasinna.

Erlent

Helfararsafnskyttan ákærð

James von Brunn, sem réðst inn á Helfararsafnið í Washington í fyrradag og skaut öryggisvörð þar til bana, hefur verið ákærður fyrir morð og gæti átt von á dauðarefsingu verði hann sekur fundinn.

Erlent

Bin Laden er í Pakistan

Osama bin Laden er í Pakistan. Þetta segir yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, Leon Panetta, en hann var spurður af fréttamönnum hvort hann væri viss um að svo væri að Bin Laden væri í Pakistan.

Erlent

Inflúensan orðin að alheimsfaraldi

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur skilgreint H1N1-inflúensuna sem alheimsfaraldur en þetta þýðir að flensan breiðast nú hratt út og í að minnsta kosti tveim heimsálfum.

Erlent

WHO boðar til blaðamannafundar vegna flensunnar

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur boðað til blaðamannafundar klukkan fjögur í dag um útbreiðslu inflúensuveirunnar í heiminum. Fastlega er búist við að alheimsfaraldri verð lýst yfir en miklar áhyggjur eru yfir ástandinu vegna fjölda tilfella sem hafa komið upp í Ástralíu undanfarið.

Erlent

Neyðarfundur hjá WHO vegna flensunnar

Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO í dag en hávær orðrómur er uppi um að heimsfaraldri vegna Inflúensu A, eða svínaflensunnar, verði lýst yfir.

Erlent

Eldri Bandaríkjamenn streyma á vinnumarkað

Eldri Bandaríkjamenn, sem geta ekki lifað af lífeyrisgreiðslum sínum, leita sér nú að vinnu sem óðast og hefur fjöldi eldri borgara, sem leita eftir vinnu, aukist um 120 prósent síðasta árið.

Erlent

Fyrstu líkin komin til Brasilíu

Fyrstu líkin úr Air France-flugslysinu komu til herstöðvar brasilíska flughersins í Recife í gær. Þaðan voru þau flutt til réttarrannsóknarstöðvar þar sem vinna hefst við að bera kennsl á þau.

Erlent

Öryggisvörður látinn eftir skotárás í Washington

Öryggisvörður í Holocaust Memorial safninu í Washington sem varð fyrir skotárás í kvöld er látinn. Maður gekk inn í safnið vopnaður riffli og hóf að skjóta. Kollegar öryggisvarðarins skutu byssumanninn sem er mun vera í lífshættu.

Erlent

Reyndust ekki í flokki róttækra múslima

Svo virðist sem tveir farþegar sem voru um borð í Air France þotunni sem fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku hafi ekki verið á lista yfir róttæka múslima, líkt og komið hefur fram í fréttum í dag.

Erlent

Tveir særðir eftir skotárás á safni

Tveir eru særðir eftir skotárás á Holocaust Memorial safninu í Washington DC. Maður gekk inn í andyri safnsins vopnaður riffli og hóf skothríð. Hann hæfði vörð en kollegar varðarins náðu að gjalda skotmanninum í sömu mynt og liggja þeir báðir á George Washington spítalanum.

Erlent

Flugslys Air France: Hugsanlega hryðjuverk

Tveir farþegar frönsku farþegaflugvélarinnar sem fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku, höfðu tengsl við íslömsk hryðjuverkasamtök. Breskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag en aldrei hefur verið útilokað að um hryðjuverk hafi verið að ræða.

Erlent

32 látnir í sprengingu í Írak

32 eru látnir í það minnsta í mikilli sprengingu sem skók fjölmennan markað í suðurhluta Íraks í morgun. Lögregla í bænum Al-Bathaa segir að tála látinna kunni að hækka en tugir manna eru slasaðir eftir árásina. Bíl fylltum af sprengiefni var ekið inn á miðjan markaðinn og hann síðan sprengdur í loft upp.

Erlent

Inflúensutilfellum fjölgar ört í Ástralíu

Alþjóðaheilbrigðistofnunin, WHO, segir að mikil útbreiðsla Inflúensu A í Ástralíu gæti gert það að verkum að stofnunin þurfi að lýsa yfir heimsfaraldri. Það yrði í fyrsta sinn í fjóra áratugi sem heilbrigðisyfirvöld lýsa yfir heimsfaraldri. Fleiri en 1200 manns hafa smitast af veikinni í Ástralíu og hafa tilfelli fjórfaldast á einni viku. Það er ekki mánuður síðan Ástralar höfðu aðeins uppgötvað örfá tilfelli af inflúensunni en nú er svo komið að ekkert land í heiminum utan Norður Ameríku er með fleiri smitaða einstaklinga.

Erlent

Búist við öngþveiti í London

Búist er við öngþveiti á strætum Lundúnaborgar í dag en starfsmenn í neðanjarðarlestakerfinu víðfræga hófu verkfallsaðgerðir í nótt og hafa þúsundir lagt niður vinnu sína. Starfsmennirnir krefjast betri launa og fóru samningaviðræður á milli deiluaðila út um þúfur í gærkvöldi.

Erlent

Lögreglumenn grunaðir um pyntingar

Sex lögreglumenn í London hafa verið reknir eða eru undir sérstöku eftirliti við störf sín vegna ásakanna um slæma meðferð á fólki eftir að lögregla réðst til atlögu við eiturlyfjasala í tveimur aðgerðum í nóvember á síðasta ári. Lögregluyfirvöld segja að ásakannirnar á hendur mönnunum séu alvarlegar og að þær vekji áhyggjur.

Erlent