Erlent

Minnst tíu látist í flóðum í Tékklandi

Minnst tíu hafa farist í miklum flóðum í Tékklandi. Þar hefur verið úrhellisrigning síðustu daga. Jan Fischer, forsætisráðherra landsins, segir að fimm hafi drukknað og fimm látist af völdum hjartáfalls eða meiðsla vegna þess að björgunarmenn hafi ekki náð til fólksins í tæka tíð. Mörg hundruð íbúar á flóða svæðunum hafa verið fluttir burt frá heimilinum sínum og þúsund hermenn sendir til að aðstoða við fólksflutninga.

Erlent

Þingmenn sniðgengu sigurveislu forseta Írans

Ríflega helmingur þingheims í Íran sniðgekk sigurveislu Mahmouds Ahmadinejads, endurkjörins forseta Írans, sem haldin var í gærkvöldi. Þetta mun til marks um djúpstæðan klofning á æðstu stöðum í Íran vegna forsetakosninganna fyrir hálfum mánuði.

Erlent

Api meig á forseta Zambíu

Api meig á Rupiah Banda, forseta Zambíu, á blaðamannafundi utan við skrifstofu forsetans í gær. Apinn var staddur í tré fyrir ofan forsetann og lét vaða yfir jakkann hans.

Erlent

BBC dregur úr kynlífi og blótsyrðum

Breska ríkisútvarpið BBC hyggst beygja sig fyrir vilja meirihluta sjónvarpsáhorfenda og draga verulega úr sjónvarpsefni sem inniheldur ljótan munnsöfnuð eða er kynferðislegt eftir klukkan níu á kvöldin.

Erlent

Átök milli mótmælenda og lögreglu

Lögregla og sérsveitir börðu niður mótmæli í Teheran í Íran í gær. Hundruð mótmælenda höfðu komið saman þrátt fyrir bann og hótanir íranskra yfirvalda.

Erlent

Harmar að hafa aukið á hneyksli

Kaupsýslumaður sem réði ungar konur til að fara í veislur heima hjá Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur beðist afsökunar á því að leggja til efni í nýtt hneykslismál.

Erlent

Fundu brunn og beinagrind

Fornleifafræðingar hafa fundið vatnsbrunn á Kýpur sem þeir telja að sé á bilinu níu þúsund til tíu þúsund ára gamall. Við botn brunnsins var beinagrind af ungri konu, sem talið er að sé frá svipuðum tíma.

Erlent

Koma af stað nýju Kóreustríði

Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa sakað stjórnvöld í Bandaríkjunum um að reyna að koma af stað nýju Kóreustríði. Norður-Kórumenn undirbjuggu í gær heræfingar á austurströnd landsins.

Erlent

Kínverjar lokuðu á Google

Kínversk yfirvöld eru búnir að loka alfarið á Google-leitarvélina. Kínverska ríkisstjórnin hefur átt í deilum við forsvarsmenn Google-leitarrisans en Kínverjar saka þá um að sýna klámfengið efnið þegar leitað er á síðunni auk annarra upplýsinga.

Erlent

Syndugur fylkisstjóri hvattur til þess að segja af sér

Fylkisstjóri Suður-Karólínu í Bandaríkjunum, Mark Sanford, viðurkenndi á blaðamannafundi vestra í dag að hann hefði haldið framhjá eiginkonu sinni. Viðhaldið hans er brasilísk kona sem hann hefur þekkt í allnokkur ár. Sjálfur segir hann ástarsambandið hafa byrjað fyrir stuttu síðan.

Erlent

Banna blót á BBC

Samkvæmt könnun sem ríkissjónvarp Bretlands, BBC, lét gera, kom í ljós að mikill meirihluti áhorfenda og hlustenda BBC eru hneykslaðir á blóti í sjónvarpi sem og útvarpi.

Erlent

Fyrrum ráðherra í Ísrael dæmdur 5 ára í fangelsi

Fyrrverandi fjármálaráðherra Ísraels var í morgun dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir fjársvik og þjófnað. Avraham Hirchson var náinn pólitískur samstarfsmaður Ehuds Olmerts fyrrverandi forsætisráðherra og var ráðherra samgöngumála og síðan fjármála í ríkisstjórn hans.

Erlent

Íranir segja CIA fjármagna mótmælin

Íranska innanríkisráðuneytið segir að bandaríska leyniþjónustan, CIA, fjármagni mótmæli síðustu daga gegn úrslitum forsetakosninganna í landinu fyrir tæpum hálfum mánuði. Það hafi Bretar og Ísraelar einnig gert.

Erlent

Rækta kýr sem ropa minna

Kanadískir vísindamenn vinna nú að því að rækta nýtt kúakyn sem ropar minna en þær hefðbundnu kýr sem nú tíðkast.

Erlent

Gáfu dóttur sinni mannshöfuð

Hjón í Sichuan-héraðinu í Suðvestur-Kína hafa verið dæmd fyrir að matreiða mannshöfuð og gefa dóttur sinni það í súpu en það taldi móðirin geta læknað dótturina af geðrænum kvillum sem hún þjáðist af.

Erlent

Harvard segir upp 275 manns

Harvard-háskólinn í Bandaríkjunum tilkynnti í gær að 275 manns yrði sagt upp þar á bæ, flestum af skrifstofum, í afgreiðslu og úr tæknistörfum hvers kyns.

Erlent

Ómönnuð árásarvél drap 45 talibana

Ómönnuð árásarflugvél á vegum Bandaríkjahers varð 45 talibönum að bana í suðurhluta Pakistan, rétt við afgönsku landamærin, í gær þar sem þeir voru við útför háttsetts talibana sem látist hafði í árás Bandaríkjahers nokkrum dögum áður.

Erlent

Búrkur tákn um undirgefni

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti sagði á mánudag að búrkur íslamskra kvenna væru ekki velkomnar í Frakklandi. Þær væru ekki tákn um trú, heldur um undirgefni kvenna. Franska þingið samþykkti í gær að rannsaka áhrif búrkna og í framhaldinu verður skoðað hvort lög verði sett til að banna þær.

Erlent

Breskir embættismenn reknir frá Íran

Tveir breskir embættismenn í Íran voru sendir úr landi í gær. Það var gert í kjölfar ásakana um að bresk stjórnvöld hafi skipt sér með óeðlilegum hætti af kosningunum í Íran hinn 12. júní síðastliðinn.

Erlent