Erlent

Mótmælendur dæmdir til dauða í Íran

Þrír Íranir hafa verið dæmdir til dauða fyrir hafa tekið þátt í mótmælunum sem brutust út eftir forsetakosningarnar í sumar þegar Mahmoud Amadinejad var endurkjörinn forseti landsins. Því var haldið fram að hann hefði unnið með víðtæku kosningasvindli.

Erlent

Sendu blöðrur yfir til Norður Kóreu

Um 200 manns komu saman í Suður Kóreu og slepptu blöðrum sem svifu svo yfir til nágrannana í Norður Kóreu. Blöðrurnar voru fylltar af dreifibréfum sem á hafði verið ritaðar fréttir og víðs vegar að úr heiminum.

Erlent

Mótmæltu vinnubrögðum borgarstjórans

Mótmælendur komu saman í Moskvu til að mótmæla borgarstjórunum Yri Lushkov, og vinnubrögðum hans. Lushkov hefur verið borgarstjóri í 17 ár og hefur gjörbreytt Moskvu á þeim tíma. Flestir segja til hins betra. En Luskov hefur verið gagnrýndur fyrir spillingu, eiginkona hans er ríkasta kona Rússlands, en hún er einmitt fyrirferðamikil verktakabransanum í Moskvu. Mómælin í dag fóru friðsamlega fram en þau eru haldin í tilefni þess að sveitastjórnarkosningar eru á næsta leiti.

Erlent

Halda hermönnum í gíslingu

Hópur herskárra múslima sem réðst á höfuðstöðvar pakistanska hersins í borginni Rawalpindi í morgun halda innan við tíu hermönnum í gíslingu.Að minnsti kosti 12 féllu í árásinni.

Erlent

Reynir að fresta staðfestingu Lissabon sáttmálans

Eiríkur Bergmann, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, segir að Vaclav Klaus, forseti Tékkalands, reyni nú hvað hann geti til að koma í veg fyrir að Lissabon sáttmálinn verði samþykktur heima fyrir.

Erlent

Átta hermenn látnir

Átta pakistanskir hermenn eru látnir eftir árás sem gerð var á höfuðstöðvar þeirra í Rawalpindi í morgun. Fjórir árásarmannanna voru skotnir til bana í átökum sem brutust út. Tveggja árásarmanna er hins vegar leitað.

Erlent

Á þriðja hundrað látnir eftir aurskriður

Að minnsta kosti 260 eru látnir eftir aurskriður og flóð sem fellibylurinn Parma hefur valdið á Filippseyjum undanfarna daga. Parma fór yfir Filippseyjar aðeins tveimur vikum eftir að fellibylurinn Ketsana fór þar um og olli flóðum, gífurlegri eyðileggingu og manntjóni. Talið er að 600, að minnsta kosti, hafi látist á Filippseyjum af völdum þessara tveggja fellibylja.

Erlent

Louvre skilar verðmætum

Frakkar létu í gær undan kröfum Egypta um að ómetanlegum menningarminjum á Louvre-safninu í París yrði skilað aftur til Egyptalands. Egyptar, með fornleifafræðinginn Zahi Hawas í fararbroddi, hættu í vikunni samstarfi við Louvre-safnið til þess að þrýsta á kröfu sína. Samstarfsslitin hefðu orðið til þess að fornleifauppgröftur á vegum Louvre í Egyptalandi væri í uppnámi.

Erlent

Kona í dásvefni eignast barn

Fertug kona í Þýskalandi hefur fætt heilbrigt barn þrátt fyrir að hafa verið í dásvefni síðustu 22 vikur meðgöngunnar. Starfsfólk á háskólasjúkrahúsinu í Erlangen sagði aðstandendur konunnar hafa óskað eftir því að barnið yrði látið fæðast þrátt fyrir erfitt ástand móðurinnar, sem fékk hjartaáfall og hefur verið í dái síðan.

Erlent

Fyrstu myndirnar sýndu lítið

Bandarískt geimfar brotlenti á suðurpól tunglsins í gær. Harkaleg lendingin var vel skipulögð og taldist vel heppnuð. Um borð í geimfarinu eru mælitæki sem ætlað er að finna ummerki vatns á tunglinu.

Erlent

Úthlutun friðarverðlauna vekur furðu

Ákvörðun norsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar um að veita Barack Obama Bandaríkjaforseta friðarverðlaunin í ár vakti furðu víðs vegar um heim. Sjálfur sagðist Obama undrandi og finna til auðmýktar, en hann myndi líta á verðlaunin sem hvatningu til dáða.

Erlent

Friðarverðlaun Nóbels: Obama eða Tsvangirai

Það var uppi fótur og fit þegar norska akademían tilkynnti að friðarverðlaun Nóbels féllu í skaut Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Leiðtogar annarra landa sögðust undrandi en óskuðu forsetanum til hamingju. Á bresku fréttastofunni SKY féllu þau ummæli að Obama hefði fengið verðlaunin fyrir það eitt að vera ekki Georg Bush, forveri sinn í embætti.

Erlent

Ástandið að batna í Zimbabwe

Morgan Tswangirai forsætisráðherra Zimbabwes segir að ástandið í mannréttindamálum hafi skánað mikið síðan flokkur hans myndaði þjóðstjórn með Robert Mugabe forseta.

Erlent

Undrun yfir friðarverðlaunum Obamas

Áttatíu og tveggja ára gömul Bandarísk kona sagði þegar hún heyrði að Barack Obama hefði hlotið friðarverðlaun Nóbels; -Það er dásamlegt. Ég vildi bara að ég vissi af hverju.

Erlent

McCann hjónin snúa aftur til Portúgals

Eftir miklar vangaveltur hefur Gerry McCann nú upplýst að hann muni snúa til Praia da Luz ásamt Kate eiginkonu sinni á þessu ári. Foreldrar hinnar horfnu Madeleine McCann dvelja nú á Spáni en Kate hefur ekki komið til staðarins þar sem dóttir þeirra hvarf í meira en tvö ár. Það hefur Gerry hinsvegar gert.

Erlent

Samferðarmenn dauðans

Illa lyktandi, feitt og síhóstandi fólk eru verstu samferðarmenn í flugi sem fyrirfinnast. Að minnsta kosti ef eitthvað er að marka glænýja könnun vefsíðunnar Travelocity.

Erlent

Leysti þúsundir minka úr haldi

Það varð uppi fótur og fit í minkabúi í Fousing á Vestur-Jótlandi snemma í morgun þegar óþekktur aðili braust þar inn og hleypti minkunum út.

Erlent

Tannfyllingar Hitlers úr gyðingum

Fyllingar í tönnum Adolfs Hitler, leiðtoga þýska nasistaflokksins á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar, voru gerðar úr gulli sem fjarlægt hafði verið úr tönnum gyðinga í útrýmingarbúðum nasista.

Erlent

Styttist í tunglárekstur

Núna eru örfáar klukkustundir í að tveggja tonna þungt toppstykki eldflaugar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA skelli á tunglinu á 9.000 kílómetra hraða á klukkustund og þyrli upp rykskýi sem geimfarið L-Cross, eða Lunar Crater Observation and Sensing Satellite, mun svo mynda rétt áður en það flýgur í gegnum skýið og skellur sjálft á yfirborði tunglsins, þó ekki með sama krafti og fyrra skeytið.

Erlent

Tilfinninganæmur Cameron á flokksfundi Íhaldsmanna

David Cameron viðurkenndi í mikilvægri ræðu á flokksfundi Íhaldsmanna í kvöld að fráfall sonar síns hefði fengið hann til þess að efast um pólitíska framtíð sína. Þetta sagði Cameron í kvöld en kosningaslagurinn í Bretlandi er í fullum gangi þessa dagana.

Erlent