Erlent
Kínverjar tóku Shaikh af lífi Bretinn Akmal Shaikh, sem kínverskur dómstóll dæmdi til dauða fyrir heróínsmygl, var tekinn af lífi klukkan hálfþrjú í nótt að íslenskum tíma, líklegast með byssuskoti í höfuð eins og tíðkast í kínverskum aftökum. Erlent 29.12.2009 07:20
Að segja 2010 hjá BBC Innanhússumræður eru nú um það hjá breska ríkisútvarpinu BBC hvernig orða skuli árið 2010 en gert er ráð fyrir því í reglum að samræmi sé meðal allra þeirra, sem tala í hljóðvarp þess eða sjónvarp, um hvernig vísað er til ártalsins. Erlent 29.12.2009 07:17
Al Qaeda stóðu að baki sprengjutilraun Hryðjuverkasamtökin al Qaeda hafa lýst á hendur sér tilraun til þess að sprengja farþegavél Northwest-flugfélagsins í loft upp á jóladag í flugi milli Amsterdam og Detroit en nígerískur farþegi um borð í vélinni reyndi að sprengja sprengju sem hann hafði meðferðis en mistókst. Í yfirlýsingu al Qaeda segir að ætlunin hafi verið að hefna fyrir aðgerðir Bandaríkjahers í Yemen og hafi nýrri gerð af sprengju verið beitt sem hafi ekki sprungið vegna tæknilegra mistaka. Þá segir að Bandaríkjamenn megi búast við fleiri árásum. Erlent 29.12.2009 07:14
Landnám Ísraela ógnar friðarferli Byggðar verða nærri 700 nýjar íbúðir í Austur-Jerúsalem samkvæmt ákvörðun sem Ísraelsstjórn kynnti í gær. Erlent 29.12.2009 01:15
Umbótasinnar myrtir í Teheran Ómögulegt er að fá staðfest hversu margir hafa látist í mótmælunum í Íran, þar sem stjórnvöld hafa takmarkað mjög starf erlendra fréttamanna í landinu. Samkvæmt írönskum ríkisfjölmiðlum létust átta á sunnudaginn en umbótasinnar segja að fimmtán hafi látist. Hundruð manna hafa verið tekin höndum. Erlent 29.12.2009 00:30
Finninn fljúgandi gripinn á jóladag Matti Nykanen, fjórfaldur Ólympíumeistari í skíðastökki, er í haldi lögreglu í Finnlandi grunaður um að hafa reynt að drepa konu sína á jóladag. Erlent 29.12.2009 00:15
31 kíló af Kókaíni áttu meðal annars að fara til Íslands frá Portúgal Lögreglan í Portúgal handtók tvo menn og haldlagði 31 kíló af kókaíni í Porto í byrjun desember en samkvæmt frétt sem birtist í spænskum fjölmiðlum þá telur lögreglan áreiðanlegt að efninu hafi átt að dreifa á fíkniefnamarkaði á Spáni og Íslandi. Erlent 28.12.2009 21:58
Um 120 grindhvalir drápust við Nýja Sjáland Minnst 120 grindhvalir drápust á tveimur sólarhringum á Nýja Sjálandi um helgina. Yfir 100 hvalir strönduðu við Suðurey Nýja Sjálands á laugardaginn, en aðrir 20 drápust við Norðurey. Erlent 28.12.2009 15:50
Tuttugu fórust í sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti 20 manns létu lífið og tugir slösuðust þegar sjálfsmorðssprengja sprakk í göngu sjía múslima í Karachi í Pakistan í morgun. Erlent 28.12.2009 13:53
Benedikt páfi heldur ótrauður áfram Benedikt XVI páfi heimsótti súpueldhús fyrir heimilislausa í gær. Þetta var fyrsta ferð hans út fyrir Vatíkanið eftir að hann varð fyrir árás á aðfangadagskvöld. Páfinn gekk á meðal almennings, heilsaði fólki og kyssti börn. Erlent 28.12.2009 11:37
Kínverskt flutningaskip laust úr haldi Sómalskir sjóræningjar slepptu í gær kínverska flutningaskipinu De Xin Hai ásamt 25 manna áhöfn en skipinu rændu þeir í október þegar það flutti 76.000 tonn af kolum frá Suður-Afríku til Indlands. Erlent 28.12.2009 08:53
Fjölga borgaralega klæddum lögreglumönnum Óeinkennisklæddum lögreglumönnum í farþegaflugi verður fjölgað í kjölfar atburðanna sem áttu sér stað í flugi milli Amsterdam og Detroit á jóladag. Erlent 28.12.2009 08:41
Fundu leifar hershöfðingja Kínverskir fornleifafræðingar telja sig hafa fundið gröf hins alræmda hershöfðingja Cao Cao sem uppi var á þriðju öld. Erlent 28.12.2009 08:34
Skuggalegir skoteldar Tæplega fertugur maður í Greve, rétt utan við Kaupmannahöfn, hefur verið handtekinn fyrir að selja lífshættulega og ólöglega flugelda úr tveimur vörubílum við verslunarmiðstöð þar í bænum. Erlent 28.12.2009 08:32
Bretar forðast vask Mikil örtröð varð í breskum verslunum í gær þegar almenningur notaði síðustu daga ársins til að kaupa sjónvörp, þvottavélar og fleiri heimilistæki áður en virðisaukaskattur hækkar úr 15,5 prósentum í 17,5 um áramótin þar í landi. Erlent 28.12.2009 08:30
Skálmöld í Teheran Fimm íranskir stjórnarandstæðingar eru nú látnir í mótmælum í Teheran, höfuðborg Írans, að sögn írönsku IRNA-fréttastofunnar. Dauðsföllin eru í rannsókn en talið er að þau séu orsök ólögmætrar valdbeitingar lögreglu. Erlent 28.12.2009 08:28
Mótmælendur skotnir til bana Fjórir mótmælendur voru skotnir til bana í Teheran, höfuðborg Írans, í gær. Meðal hinna látnu var frændi stjórnarandstöðuleiðtogans Mirs Hosseins Mousavi, að sögn breska ríkisútvarpsins. Tugir særðust og um þrjú hundruð manns voru handteknir í mótmælunum. Erlent 28.12.2009 06:00
Mótmælt á Gasa þegar ár er liðið frá innrás Ísraela Sérlegur talsmaður Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um málefni hernámssvæða Ísraela í Palestínu kallar eftir því að Ísraelar láti af aðgerðum til að einangra Gasa-svæðið. Í tilkynningu fréttaveitu SÞ á Þorláksmessu er Erlent 28.12.2009 04:00
Annar Nígeríumaður handtekinn í flugvél frá Delta Annar karlmaður frá Nígeríu var handtekinn um borð í Delta flugvél í dag á sömu leið og landi hans, Umar Farouk Abdulmutallab, sem reyndi að sprengja flugvél í loft upp á jóladag, flaug með. Frá þessu greinir AP fréttastofan. Erlent 27.12.2009 20:23
Blóðug átök í Íran - frændi forsetaframbjóðanda myrtur Að minnsta kosti fjórir mótmælendur hafa verið skotnir til bana af öryggissveitum í Teheran höfuðborg Írans í dag, þar sem þúsundir stjórnarandstæðinga kröfðust afsagnar forseta landsins. Erlent 27.12.2009 19:03
Fjórir skotnir í Íran Lögregla í Teheran í Íran hefur skotið fjóra menn til bana í mótmælum sem fram fara í tengslum við hátíðarhöld Sítamúslíma í borginni. Yfirvöld hafa varað mótmælendur við hörðum viðbrögðum lögreglu ef þeir reynda að boða til mótmæla í tengslum við hátíðarhöldin. Erlent 27.12.2009 14:31
Minnast Benazir Bhutto í Pakistan Stuðningsmenn Benazir Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans minnast hennar í dag þegar tvö ár eru liðin frá því hún var myrt í borginni Rawalpindi. Erlent 27.12.2009 09:58
Sprengjuvargur ákærður Umar Farouk Abdulmutallab hefur formlega verið ákærður fyrir að reyna að tortíma farþegaflugvél og farþegum Delta flugfélagsins skömmu fyrir lendingu í Detroit í Bandaríkjunum á jóladag. Erlent 27.12.2009 09:46
Faðir hryðjuverkamanns varaði bandarísk yfirvöld við syni sínum Faðir sprengjuvargs sem reyndi að granda farþegaþotu sem var á leiðinni frá Hollandi til Bandaríkjanna á föstudaginn segist hafa varað yfirvöld í Bandaríkjunum og Nígeríu við öfgakenndum skoðunum sonar síns. Erlent 26.12.2009 22:00
Frægasti fjársvikari heims datt úr rúminu sínu Alræmdi fjárglæframaðurinn Bernie Maddoff var færður úr fangelsi á spítala eftir að hann rifbeinsbrotnaði, auk þess sem lungu féllu saman. Þá hlaut hann einnig áverka á andliti. Erlent 26.12.2009 21:00
Neda Soltan kjörin maður ársins - harðvítug átök í Íran Hin tuttugu og sex ára gamla Neda Soltan frá Íran hefur verið kjörin maður ársins af breska tímaritinu Times. Neda var skotin í brjóstkassann í júní þegar hún mótmælti ásamt þúsundum eftir að Mahmoud Ahmadinejad var endurkjörinn forseti Írans. Mótmælendur vildu meina að hann hefði svindlað í kosningunum. Erlent 26.12.2009 16:49
Jarðskjálfti fimm árum eftir flóðbylgju Þess er nú minnst víða í Asíu að fimm ár er liðið frá því um 230 þúsund manns fórust í einni mestu flóðbylgju og hamförum í manna minnum. Jarðskjálfti upp á 6,7 á rickter varð undan Malukueyjum í Indónesíu í dag, en engar fréttir hafa borist af manntjóni eða flóðbylgjum vegna hans. Erlent 26.12.2009 12:07
Farþegar yfirbuguðu sprengjumann Tilraun var gerð til að sprengja upp farþegaþotu með tæplega þrjú hundruð manns innanborðs skömmu fyrir lendingu í Detroit í Bandaríkjunum í gær. Farþegum tókst að yfirbuga mann sem hafði vafið sprengjuefni um fætur sér. Eftirlit með farþegum til Bandaríkjanna hefur verið hert og má hver einasti farþega á leið þangað búast við líkamsleit. Erlent 26.12.2009 11:59
Baby P. minnst í Bretlandi Dauða hins sautján mánaða Peter Connelly, oft kallaður Baby P., var minnst í Bretlandi um hátíðarnar en minningarreitur hans var þakinn kveðjum og leikföngum um jólin. Dauði Peters komst í heimsfréttirnar eftir að móðir hans auk stjúpföður urðu honum að bana eftir hrottalegar misþyrmingar. Erlent 26.12.2009 10:43
Umbótasinnar og öryggissveitir berjast í Íran Íranskar öryggisveitir og aðgerðarsinnar í stjórnarandstöðu lentu í átökum í miðborg Teheran í dag samkvæmt BBC sem aftur hefur það eftir AFP. Átökin byrjuðu þegar 200-300 manns reyndu að koma saman á Enghelab-torginu í Teheran. Erlent 26.12.2009 10:31